Jökull - 01.12.1958, Síða 33
VI. Langjökull 1957/58
Fúlakvísl (Þjófad.) 1956/1958 -r- 70 (2ár)
VII. Hrútafell Miðjökull 1951/1958 -- 77 (7 ár)
Vesturjökull 1951/1958 45 (7 ár)
Norðvesturjökull 1951/1958 -- 70 (7 ár)
VIII. Kerlingarfjöll
Loðmimdarjökull (innri) ............................
IX. Norðurlandsjöklar
Gljúfurárjökull .................................... -f- 16
Tungnahryggsjökull, austan ár (E-side) 1952/28 .... 107 (6 ár)
— vestan ár (W-side) 1952/28 .... ~ 71 (6 ár)
2
6
ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR.
Kaldalón. Um jökulinn í Kaldalóni er sér-
staklega rætt á öðrum stað. — I bréfi dags. 17.
nóv. 1958 segir Aðalsteinn bóndi Jóhannsson á
Skjaldfönn m. a.: „Hér fram úr Skjaldfannar-
dalnum hefur jökullinn hörfað geysimikið síð-
astliðin tvö sumur og þó einkum í sumar. Má
nú allt heita autt land þangað, sem nyrztu sker
voru áður. Þá hefur mér verið sagt af mönnum,
sem leituðu hér inn á heiðum og sáu vel til
Drangajökuls sunnan frá, að nú hafi skotið upp
auðum hrygg suður frá Hrolleifsborg.
Skjaldfönnin. Hana þraut að þessu sinni 1.
sept., og hélt hún svona lengi velli vegna þess,
hvað ágúst var fádæma kaldur. Þó að frostnætur
væru fáar, hálfféll hér kartöflugras. Snjó tók
allan upp hér úr brúnum í sumar nema í Högg-
unum. Þar var eftir dálítill skafl núna urn dag-
inn, þegar kólnaði. Síðasti vetur var veðramild-
ur og alveg óvenjulega snjóléttur hér, að vísu
allharður og nokkuð langur frostakafli eftir ára-
mót. Fé stóð inni í 17 daga milli 15. janúar og
23. marz.
Vorið var með öllu úrkomulaust, hvorki snjór
né regn, að visu tvær skúrir í júní, svo að vökn-
aði á steinum, en ekki í rót. — 1 maí voru 19
frostnætur í röð, frá 4.-24., og ol't frost á dag-
inn llka, svo að gróður kom enginn í þeim mán-
uði. Fé var ekki sleppt af húsi fyrr en í maílok.
Svo var þá sumarið líkt og vorið, sólskin nótt
og dag, svo allt þornaði og skrælnaði, þar til í
september. Þá kom gróðrarveðrátta. .. . Túnið
hér hefur vfst ekki verið jafnilla sprottið síðan
1918. Helmingur af því svo brunninn, að raun-
ar var ekkert vit í að slá það. .. . Haustveðrátta
hefur verið ágæt, að vísu nokkuð vætusöm, en
mjög sjaldan frost, ekki komið nema svona
fimm sinnum snjóhrafl, sem þegar hefur tekið
upp aftur.“
Úr Reykjarfirði á Ströndum skrifar Guðfinn-
ur Jakobsson 24. okt.:
„Jökullinn hér hefur stytzt aðeins um 15 m
frá því í fyrra. . . . Sumarið var heldur kalt, og
ekki sá til sólar í sex vikur samfleytt, frá því
um 20. júlí þar til í byrjun september. Ekki
kom þó frostnótt í byggð fyrr en 21. september."
Gigjökull norðan í Eyjafjallajökli. Umhverfis
jökulsporðinn eru feiknamiklir kambar af svip-
aðri gerð og við Kvíárjökul í Oræfum. Nyrzt er
skarð milli kambanna, og þar kemur Jökulsá
út um. Arið 1930 náði jökull alveg út að skarði
þessu, og kom Jökulsá þar fram í tveimur kvísl-
um, sitt hvorum megin við grjóthól nokkurn,
sem enn er þar. Nú er eystri kvísl Jökulsár
horfin með öllu.
Gígjökullinn 1930.
The Crater Glacier about 1930.
Ljósm. Ing. Isólfsson.
31