Jökull


Jökull - 01.12.1963, Síða 29

Jökull - 01.12.1963, Síða 29
corrasion = abrasion crevasse jökulsprunga. crust skari: sterk skorpa eða storka ofan á laus- urn snjó. Myndast af sólbráð, regni eða lemjandi roki (sbr. áfreði). debacle isabrot (ísleysing): er ár ryðja sig á vori og ís leysir af vötnum. deglaciation jökuleyðing: landvinningur vegna hopandi jökla. de-icing klakahögg ('áfísun): íshreinsun af skipurn, flugvélum eða öðrum lilutum með öxum, skóflum, efnablöndum eða öðrum tiltæk- urn ráðum. depth of snow snjódýpt: fjarlægð frá yfirborði snævar til jarðar, enda sé snjór jafnfallinn. Annars verður að mæla á mörgum stöðum og taka meðaltal. drift jökulruÖningur (jökulmelur): grjót og aur, sem jökull og jökulár bera fram. drifting snow skafrenningur: lausasnjór, sem rennur und- an vindi, en nær vart svo hátt að dragi úr skyggni. erratic (blocks) jökulbornir steinar (Grettistök). firn hjarn: gamall snjór, sem er orðinn þéttur í sér. Einkenni (a): kornin loða saman að nokkru leyti, (b): loftrúm eru ekki lokuð. Hið fyrra (a) greinir hjarn frá snjó, hið síðara (b) frá jökulís. freezing drizzle frostúði (hrímþoka): örsmáir dropar, sem frjósa jafnskjótt og þeir snerta jarðlega hluti eða flugför í lofti. freezing rain frostregn: sama skýring og að ofan. giaciated jökulurið: um landssvæði, sem liefur legið undir jökli. glacier jökuH. skriðjökull. glacier ice jökulis: hvers konar ís, sem myndast í jökli eða þaðan kemur, t. d. borgarís á sjó. glacier table „jökulborð“ glacierized = ice covered jökulkafið: land, sem er jökli hulið. glaze (clear ice) glerungur (glœrais): oftast gegnsær isbörk- ur, er myndast úr frostköldum úða- eða regndropum, sem falla á jarðlega hluti urn eða undir frostmarki á yfirborði. Glerung- ur myndast líka af regni, sem drýpur á frostkalda jörð og kallast þá áfreði. hail hagl: litlar jskúlúr eða ísmolar, 5—50 millí- metrar í þvermál eða þar yfir, er ýmist falla einstakir til jarðar eða renna saman í óreglu- lega klumpa á leiðinni. hoarfrost héla: smágerðir ískristallar, er nrynda þunn- an, hvítleitan ísbörk á stráum og greinum eða frostrósir á rúðum. Héla myndast líkt og dögg (af þéttun loftraka), þegar hiti er undir frostmarki. ice ís: vatn í föstu formi, myndast ýmist (a), er ár og vötn leggur, (b) loftraki breytist beinlínis í iskristalla, (c) snjór umbreytist í jökulís, (d) vatn kemst í lausasnjó, sem lileypur í gadd. ice apron jökulsvunta, jökulklíningur: sbr. jökulgap. ice barrier (ice cliff) jökulhamar (jökulklifj: þverhnípt jökul- brún, sem gengur fram í sjó (eða stöðu- vatn). ice cap jökulhetta: hvelfdur hájökull. Jökulhettur (t. d. Eiríksjökull) eru minni unr sig en jökulskildir eða jökulflákar (Vatnajökull, Mýrdalsjökull) og meginjöklar (Grænlands- jökull). ice covered (glacierized) isi þakið: um land eða grunnsævi, sem nú er jökli hulið. Sbr. jökulsorfið land, en nú autt. ice crystal ískristallur. ice fall falljökull: nrjög brattur og sprunginn skrið- jökull eða jökulbunki (Þ. Tlior. kallar jök- ulfoss). ice fog ísaþoka: sveimur ískristalla í loftinu, er 25 JOKULL 1963

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.