Jökull - 01.12.1980, Blaðsíða 69
1588, d. 1654, talinn faðir danskrar fornleifa-
fræði. Hann skrifaði meðal annars rit um það
fræga gullhorn, er fannst við Gallehus í Slésvík
1639 (annað svipað fannst þar 1734, en báðum
var stolið og þau brædd árið 1802). Ole Worm
skrifaðist á við marga menn, þar á meðal all-
marga íslendinga, svo sem Arngrím lærða og
áðurnefnda biskupa, enda áhugi hans á ís-
lenskum fornbókmenntum mikill og hann lét
sig einnig náttúrufræði talsvert varða og kom
sér upp náttúrugripasafni, sem frægt varð. I
bréfi til landfræðingsins Jan de Laét í Leyden í
Hollandi, sem byrjað var á 8. okt. 1642, svarar
Ole Worm bréfi Hollendingsins frá 29. ág.
sama árs. I því bréfi segist de Laét hafa fengið
skrá yfir náttúrugripasafn Worms og rekist
þar á það, sem Worm kalli skánska og íslenska
furðujörð [„terra miraculorum“], sé sér for-
vitni á að vita, hvað þetta sé. Þessu svarar
Worm þannig (þýðing mín) í bréfi sínu:
„Um þessa skánsku furðujörð [jarðveg], en
ég sendi þér helminginn af því sem ég á af
henni, er þetta að segja. Árið 1619, er sá
siður var farinn að tíðkast hjá oss, að lita
léreft í krögum ogöðru klæðaskrauti bláum
lit og kirkjunnar þjónar höfðu oftsinnis
átalið þetta prjál í prédikunum sínum, lét
guð almáttugur í ljós á aðskiljanlegum
stöðum á Skáni viðbjóð sinn á þessum lesti.
Hann sendi regn og úr því féll þessi bláa
jörð og ataði marga flík. Það sýni af henni,
sem ég á, hefur tengdafaðir minn ágætur,
Dr. Thomas Fincke, opinber prófessor í
læknavísindum við þennan háskóla, fært
mér, en hann stundaði aðalsmann á Skáni
er þetta skeði.
Varðandi það íslenska sýni, sem ég sendi
þér dálítið af á seglpjötlu, er eftirfarandi að
segja: Árið 1625 er sú íslenska Hekla, sem
nefnist Mödals Jöckel, brann með óskap-
Myndir 1—3: Bráða-
birgðakort af þykkt og
útbreiðslu Kötlugjósku-
laganna K 1625, K 1660
og K 1775 nærri eld-
stöðvunum. Gerð eftir
mælingum G. Larsen og
S. Þórarinssonar. Þykkt í
cm (Ur Larsen 1978). —
Figs. 1—3: Preliminary
isopach maps of the proxi-
mal parts of the Katla
tephra layers K 1625, K
1660 and K 1755. Based on
measurements by G. Larsen
and S. Thorarinsson.
Thickness in cm. (From
Larsen 1978).
JÖKULL 30. ÁR 67