Jökull - 01.12.1980, Side 76
Enn um Skeiðarárhlaup
An old letter on Skeiðarárhlaup
Á Þjóðskjalasafni íslands er bréf til von
Levetzov stiftamtmanns, dagsett að Skafta-
felli þ. 10. febrúar 1786, með eftirfarandi
undirritun:
„Hans Háeðla Hávelbyrðigheita Hr. Stift-
amtmannsins í djúpustu undirgefni auð-
mjúkir þénarar, Jón Einarsson, Eiríkur
Einarsson.“
í þessu bréfi stendur m. a.:
,,En árið 1784, þann 5ta Aprilis, kom stórt
vatnshlaup hér fram með miklum ódaun
og bráðri pest, svo það, sem þá lifði af
hrosspeningi, dó hér allt, svo vér áttum
ekkert eftir, og fé mestallt. Hefur svo þessi
plága ekki aldeilis burt horfið, og næstliðið
ár, 1785, þann 17. Nóvember, kom enn
mikið vatnshlaup hér fram með sama
ódaun svo sem það, er kom árið 1784, þann
5ta Aprilis."
Fyrra hlaupið, sem hér er nefnt, er hið sama
hlaup í Skeiðará og Jón Steingrímsson getur
um í skrifi sínu um Síðueld, án þess að nefna
dagsetningu. Hann ræðir þar aðallega um
vatnskast í Súlu, er kom fram 8. apríl með
mikilli ýldu og ólykt (sjá Vötnin stríð, bls.
61—62). Hér hefur það skeð, sem oft síðar, að
hlaup kemur fram í Súlu nokkrum dögum
síðar en í Skeiðará. Séra Jón getur einnig um
mikið vatnshlaup úr Núpsvötnum í maí 1785
(Vötnin stríð, bls. 62), en ekki var mér áður
kunnugt um hlaup í Skeiðará 17. nóv. sama
ár. Er það einsdæmi, að Skeiðará hlaupi með
aðeins lVá árs millibili. Ég þakka Aðalgeiri
Kristjánssyni skjalaverði fyrir að hafa bent
mér á ofangreint bréf.
Við endurlestur á ævisögu Jóns Stein-
grímssonar fyrir nokkrum árum rakst ég á eft-
irfarandi klausu um árið 1789:
„Eldur var hér lengi uppi fyrir páskana
norðanvert í Skeiðarárjökli og leiddi af því
stór vatnsköst í Núpsvötnum og Skeiðarár-
jökli. Sandfall af þeim eldi skaðaði þó ekk-
ert“ (Sögurit X, bls. 260).
Þess er hér að lokum að geta í sambandi við
það Skeiðarárhlaup, er hófst 15. júní 1816
(Vötnin stríð, bls. 69), að í Dagbókum Sveins
Pálssonar segir, að hann fór frá Skaftafelli út-
yfir Skeiðarársand um nón þ. 25. og kom um
sólaruppkomu þ. 26. að Núpsstað. Hefur
hlaupinu því verið lokið þ. 25. júní.
ó1. Þ.
74 JÖKULL 30. ÁR