Jökull - 01.12.1980, Blaðsíða 87
FYRSTU GÖNGUR ÍSLENDINGA
Á NOKKUR ERLEND FJÖLL
Fyrsti Islendingur, sem iðkaði fjallaklifur
erlendis að ráði, var Þórður Guðjohnsen
(1867—1937), er var læknir í Rönne á Borg-
undarhólmi1899—1937.
Guðjohnsen hóf fjallgöngur í Noregi og kleif
þar erfiða tinda, m. a. Store Skagastölstind (2045
m) í Horungfjöllum, einn allra erfiðasta tind í
Jötunheimum. Matterhorn í svissnesku Ölpun-
um, það fræga fja.ll, sem Edward Whymper
kleif fyrstur manna 1865, kleif Þórður Guð-
johnsen 1911. Síðari áratugi ævi sinnar ferð-
aðist hann aðallega um sænska Lappland, sem
hann tók ástfóstri við, og gekk þar á fjölmörg
fjöll. Sumarið 1914 fann hann nýja leið á
hæsta fjall Svíþjóðar, Kebnekaise (Kyrtiltind,
2117 m) er sú leið enn oft farin og heitir Guð-
johnsensleiðin.
Fjallagarpurinn og glæsimennið Guð-
mundur Einarsson frá Miðdal (1895 —1963),
sem fyrr var getið, kleif á öðrum áratug þess-
arar aldar fjölda tinda í Ölpunum, m. a. í
Dólómítunum.
Hæsta fjall Evrópu er Mont Blanc, 4810 m (1.
mynd). Fyrstir til að klífa það fjall, 8. ágúst
1786, voru franskur sveitalæknir, M. Paccard,
og fylgdarmaður hans, J. Balmet, en næsta ár
lék hinn svissneski náttúrufræðingur, H. B. de
Saussure, þetta eftir. Agnar Kofoed-Hansen
flugmálastjóri gekk á Mont Blanc 2. sept.
1963, í fylgd með þýskum fjallakappa,
Steinauer. Hinn 16. ágúst 1973 gengu 10 pilt-
ar úr HSV á Mont Blanc. Meðal þeirra voru
þeir áðurnefndu þrír, er komust upp á Þumal
tveimur árum síðar. Einn þeirra, Daði Garð-
arsson pípulagningamaður, var einnig í hópi
sex HSV pilta, er klifu Matterhorn 1976 og
komust fimm alla leið.
I Afríku ber hæst fjallið Kilimanjaro (fjall
hins illa anda, 5895 m) í Tanzaníu. Kili-
manjaro er slokknað eldfjall ekki ýkja gam-
alt. I hvirfli þess er askja (caldera) um 2.2 km í
þvermál, og barmar hennar að nokkru huldir
jökli, en í henni miðri tvöfaldur gígur (2.
mynd). Fjallið var klifið í fyrsta sinni 1889 af
þýskum manni, Hans Meyer. Fyrstur Islend-
inga til að komast á hæsta tind Kilimanjaro,
Uhuru, var Agnar Kofoed-Hansen, hinn 18.
nóvember 1966. Sumarið 1974 gengu 10 piltar
úr HSV á Kilimanjaro og komust þrír á há-
tind, Ölafur Magnússon, Eiríkur Þorsteinsson
og Daði Garðarsson.
Víkur nú sögunni til Vesturheims. Mesta
þrekvirki, sem Islendingur hefur unnið í fjall-
göngu má víst telja það, er Arnór Guðbjarts-
son verslunarmaður komst á hátind Mount
McKinley í Alaska 21. júní 1979. Með honum í
för voru Helgi Benediktsson og bræðurnir
Arngrímur og Sighvatur Blöndal, er áttu sinn
2. mynd. Hvirfill Kiliman-
jaro. Ur Focus on Africa,
Amer. Geogr. Soc.
JÖKULL 30. ÁR 85