Jökull


Jökull - 01.12.1980, Page 88

Jökull - 01.12.1980, Page 88
3. mynd Chimborazo. Ljósm. Panagra. þátt í að Arnór komst á hátindinn, þótt ekki kæmust þeir sjálfir alla leið. Mount McKinley (Indíánar nefna það Denali, = hið háa eða stóra) er hæsta fjall Norður-Ameríku, 6194 m, kulnað eldfjall, ferlega sundurskorið af jöklum (3. mynd). Norðurtindur fjallsins (5934 m) var klifinn í fyrsta sinn árið 1910 af tveimur námuverkamönnum, William Taylor og Pete Anderson, en hátindinn (suðurtindinn) kleif fyrstur erkiklerkurinn Hudson Stuck við fjórða mann 1913. Síðastur en ekki sístur meðal frækinna ís- lenskra fjallamanna skal hér nefndur, Ást- valdur Eydal. Ástvaldur, sem er landfræðing- ur, var aðalkennarinn í landafræði við Há- skóla Islands fyrstu árin sem hún var kennd þar, en flutti síðar til Bandaríkjanna og varð þar prófessor í sinni fræðigrein. Ekki man ég til þess, að Ástvaldur hafi iðkað mikið fjall- göngur hérlendis, en því meira eftir að vestur kom. Fyrsta háfjall, sem hann gekk á, ætla ég að hafi verið eldfjallið Mt. Rainier nærri Seattle, sem er 4302 m hátt og næst hæsta fjall hinna eiginlegu Bandaríkja. En aðalþrekvirki 4. mynd. Mount McKinley séð úrsuðvestri. Ljósm. Sig. Þórarinsson 22. maí 1963. 86 JÖKULL 30. ÁR

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.