Jökull - 01.12.1980, Side 89
sitt í fjallgöngum vann Ástvaldur veturinn
1975, þá á 69. aldursári, er hann gekk á þrjú
eldfjöll, öll meira en 1000 m hærri en Mt.
Rainier. Fyrst skal nefnt hið hæsta þeirra,
eldfjallið Chimborazo í Ecuador. Þetta fjall (4.
mynd) var í eina tíð talið hæsta fjall veraldar.
Sá mikli náttúruvísindamaður, Alexander von
Humboldt, hlaut heimsfrægð fyrir að komast í
5580 m hæð á þessu fjalli hinn 23. júní 1802.
Var þetta mörg hundruð metrum hærra en
rnenn höfðu áður komist á nokkru fjalli og stóð
það met í aldarfjórðung. Ástvaldur komst á
hátind Chimborazo, Cumbre Maxima, 21.
febrúar 1975 og á þar með íslenska hæðar-
metið í fjallgöngu, 6270 m. Þess má geta, að
hátindur Chimborazo er sá staður á jörðinni,
sem er lengst frá miðpunkti hennar, enda þótt
Mt. Everest sé rúmlega 2Ví km hærra. Skýr-
ingin á þessu er sú, að Chimborozo er minna
en 2 breiddargráðum frá miðbaug og radius
jarðar er 21476 m lengri við miðbaug en við
heimskautsbaug.
Á heimleið frá Ecuador gekk Ástvaldur
hinn 15. mars 1975 á Pico de Orizaba, öðru nafni
Citlaltepetl ( = Stjörnufjall), hæsta fjall í
Mexíkó, 5700 m. Hinn 23. mars gekk hann svo
á næst hæsta fjall sama lands, Popocatepetl
( = Reykjarfjall, 5452 m). Chimborazo og
Orizaba teljast vera útkulnuð, en ,,Popo“ er
enn virkt. Ur því Mexíkó ber á góma skal það
nefnt, þó litlu sé af að státa, að sá er þetta ritar
komst upp á fjórða hæsta fjall Mexíkó, Nevado
de Toluca (4392 m) hinn 25. ágúst 1956, haf-
andi verið ekið á bíl upp í um 3800 m hæð. Á
svipaðan hátt komst hann á mesta eldfjall
veraldar, Mauna Loa á Hawaii (4170 m), 19.
maí 1960, einnig þar langleiðina í bíl.
Það er athyglisvert, að öll þau erlendu fjöll
er hér hafa verið nefnd eru eldfjöll, flest ung.
Ástæðan til þess, að fslendingar hafa sótt á
þau öðrum háfjöllum fremur er aðallega sú, að
ung eldfjöll eru öðrum háfjöllum auðgengn-
ari, nema þau séu það sunnarlega eða norðar-
lega á hnettinum, eins og t. d. Mount Mc-
Kinley, að þau nái hátt yfir jöklunarmörk.
ABSTRACT
The paper lists those who were the first to reach the summit of the highest mountains and glacier caps
in Iceland. The following is an extract:
Mountaineering in Iceland Mountain Height (meters) Date Persons
Hvannadalshnúkur 2119 1813, July 19 Hans Frisak, Jón Árnason
Bárdarbunga 2000 1935, May 29 A. de Pollitzer-Pollenghi,
Kverkfjöll 1920 1933, July 20 Rudolf Lautelt, Karl Schmid Gudmundur Einarsson
Snæfell 1833 1872, Aug. 11 Guðmundur Sveinsson
Hofsjökull 1765 1951, Aug. 18 Magnús Hallgrímsson, K. H. Pridie
Grímsfjall 1719 1919, Aug. 31 Erik Ygberg, Hakon Wadell
Herdubreid 1682 1908, Aug. 13 Hans Reck, Sigurdur Sumarlidason
Eiríksjökull 1675 1845(?), Aug. 7 Charles Cavendish Clifford
Eyjafjallajökull 1666 1793, Aug. 16 Sveinn Pálsson
Þverártindsegg 1554 1813, Aug. 13 Hans Jacob Scheel
Kerling 1538 1814, July 5 Hans Frisak
Hekla 1491 1750, June 20 Eggert Ólafsson, Bjarni Pálsson
Snæfellsjökull 1446 1754,July 1 Eggert Ólafsson, Bjarni Pálsson
The paper also deals with Icelandic mountaineering abroad.
JÖKULL 30. ÁR 87