Jökull - 01.12.1980, Qupperneq 95
Journal of Glaciology. Yfirstjórn þess er í
höndum forseta, sem hefur ráð sér við hlið. Er
venjulega skipt um forseta á tveggja ára fresti
og ráðsmenn koma og fara, en hinn fasti
tengiliður er ritari félagsins, frú Hilda
Richardson, sem á ekki lítinn þátt í viðgangi
þessa félags. I félaginu starfa undirdeildir og er
ein þeirra Félag norrænna jöklafræðinga, sem
er mjög óformlegt sem félag, en heldur ráð-
stefnu í einhverju Norðurlandanna sumar
hvert. Sumarið 1978 var þessi ráðstefna haldin
hér á landi, á Kirkjubæjarklaustri, dagana
17.—24. júní. Hafði Helgi Björnsson veg og
vanda af henni, með nokkurri aðstoð for-
manns, sem stjórnaði fræðsluferðum. Um 50
manns sóttu ráðstefnuna þegar flest var, þar af
35 erlendir gestir. Haldin voru 25 erindi, þar
af um helmingur af íslenzku þátttakendunum.
Ég hygg að þessi ráðstefna hafi orðið okkur til
sóma og flyt Helga þakkir fyrir.
Mœlingar á lengdarbreytmgam jökla
Sigurjón Rist hafði sem áður veg og vanda
af mælingum á lengdarbreytingum jökul-
sporða og naut enn sem fyrr aöstoðar sjálf-
boðaliða við tímafrekustu mælingaferðirn-
ar. Eg vil ntinna á, að þessar mælingar eru
liður í alþjóðlegu starfi, sem við höfum nú
verið þátttakendur í í nær hálfa öld og má það
starf ekki niður falla. Eðlilegast væri að það
væri, eins og vatnamælingar, kostað af Orku-
stofnun, því hér er um að ræða einn þátt í
vatnsbúskap landsins.
Frœðslu- og skernmtiferðir
Fræðslu- og skemmtiferðir voru þrjár. Sú
fyrsta var gönguferð í Esjufjöll 8. — 9. júlí, far-
arstjóri Stefán Bjarnason, fámenn, en sögð
hafa verið sérlega hugguleg. Önnur ferð var
farin inn á Einhyrningsflatir 19. — 20. ágúst.
Fararstjóri Ástvaldur Guðmundsson, ágæt
ferð, þátttakendur um 30. Loks var það svo hin
venjulega haustferð í Jökulheima 8.—10.
sept., fjölmenn og vel heppnuð að vanda.
Valur Jóhannesson var sem fyrr sá er hafði veg
og vanda af þessum ferðum og vinnur þar gott
verk fyrir félagið. Samanlagt tóku um 75 þátt í
þessum ferðum.
Bílamál
Af bílakosti félagsins er það að segja að
Jökull II. hefur nú verið seldur. Vísillinn Gosi
er enn í eigu félagsins. Hann er orðinn hálfgert
skar, en telst þó brúklegur og verður væntan-
lega notaður á vori komanda. Bomardierinn
er í góðu standi inni í Jökulheimaskemmu.
Ekkert hefur því miður komið út úr því enn,
sem rætt var um i fyrra, að félagið fengi e. t. v.
snjóbíl frá Sölunefnd setuliðseigna fyrir lítið
verð, en ekki er öll von úti.
Skálamál
I skálamálum er líf og fjör sem fyrri daginn
og eftirfarandi er skýrsla formanns skála-
nefndar, Stefáns Bjarnasonar:
„Skálaeign félagsins er nú: þrír skálar á
Vatnajökli, einn á Breiðamerkursandi og
tveir, ásamt skemmu-skúr og kamri, í
Tungnárbotnum. Grímsvatnaskálinn er í
góðu ástandi. Var hann bikaður að utan í
sumar. Skálarnir í Esjufjöllum og Kverkfjöll-
um eru í ágætu standi. Breiðárskáli er heldur
óvistlegur. Vafasamt, hvort leggja beri vinnu
og efni i að setja hann í viðunandi stand.
Kemur mjög til álita, hvort félagið eigi ekki að
byggja nýjan skála þarna heldur en að leggja í
frekara viðhald. Það er að segja, ef talið er
æskilegt að félagið eigi skála þarna. En það tel
ég með hliðsjón af ferðum í Esjufjöll.
Jökulheimar eru vel á sig komnir. Voru í
sumar máluð þökin á gamla og nýja skálan-
um, einnig borið á þær hliðar, sem veðraðar
voru. Efni það sem borið var á skálana fyrst
1977 virðist vera mun endingarbetra en það
sem áður var notað. Siðasta haust ,,13.
september“ voru settir upp i nýja skálann tveir
nýir olíulampar úr svörtu snúðajárni, sem
skemmtinefndin færði félaginu. Þá voru
seinna um haustið settir ca. 150 snagar í bæði
húsin. Borð þau, sem verið hafa í nýja skálan-
um frá upphafi, hafa senn lifað sitt fegursta.
Hyggst skemmtinefndin styrkja öflun nýrra í
þeirra stað.
Nú stendur yfir smíði tveggja jökulhúsa
samskonar og sett voru upp 1977 í Kverkfjöll-
um og Esjufjöllum. Ætlunin er að fullgera þau
fyrir vorið, þannig að hægt verði að fara með
JÖKULL 30. ÁR 93