Jökull - 01.12.1987, Page 13
Ágrip
JARÐHITI Á TORFAJÖKULSSVÆÐINU - YFIRLIT YFIR
JARÐEFNAFRÆÐILEGAR
RANNSÓKNIR
Jarðhitasvæði það sem kennt er við Torfajökul liggur
innan Torfajökuls-megineldstöðvarinnar. Súrt berg er
óvenju algengt í þessari megineldstöð miðað við aðrar
slíkar á Islandi. Nokkur gos hafa orðið á svæðinu á
nútíma. Talið er að annað berg á yfirborði sé að mestu
myndað á síðasta jökulskeiði.
Stór hringlaga strúktúr sem líklegast tengist öskjusigi
liggur utan um megineldstöðina. Jarðhitaummerki ná
yfir um 140 km2 svæði og eru þau nær eingöngu innan
öskjunnar. Áætlað hefur verið að náttúrulegt varmatap
svæðisins nemi 190-930 kg/sek af gufu.
Allmikil lægð er í þyngdarsviðinu á Torfajökulssvæð-
inu sem stafar vafalítið af hinu mikla magni af eðlisléttu
súru gosbergi. Innan lægðarinnar er skörp hæð í þyngd-
arsviðinu. Sú hæð hefur verið talin stafa af basaltinn-
skotum undir súra berginu og líklega eru þessi innskot
varmagjafinn fyrir jarðhitakerfið.
Jarðhiti á yfirborði á Torfajökulssvæði er að mestu
gufuaugu og súrar hveraleirsmyndanir. Gufuhitað vatn í
hverum er einnig algengt, bæði súrt súlfat-vatn og bíkar-
bónat-vatn með sýrustig (pH) á bilinu 6-7. Súra súlfat-
vatnið myndast þegar gufa með verulegu brennisteins-
vetni þéttist í yfirborðsvatni, en bíkarbónat-vatn mynd-
ast þegar gufa snauð af brennisteinsvetni þéttist. í báð-
um tilvikum inniheldur gufan kolsýru og ýmsar aðrar
gastegundir.
Á svæðinu í nágrenni Landmannalauga eru hverir og
lindir af tiltölulega klóríð-ríku vatni. Petta vatn er djúp-
vatn, sem hefur ýmist soðið eða blandast köldu vatni í
uppstreymisrásum eða hvoru tveggja. Hæsti mældi
styrkur klóríðs er 535 ppm sem er mun hærri en almennt
gerist með jarðhitavatn hér á landi sem streymir um
basískt berg. Hinn tiltölulega hái styrkur klóríðs í djúp-
vatni á Torfajökulssvæði er talinn stafa af tiltölulega
háum styrk þessa efnis í súru bergi miðað við basískt.
Tvívetnisinnihald klóríðvatnsins gefur til kynna að það
sé staðbundin úrkoma að uppruna.
Gufa í gufuaugum á Torfajökulssvæði inniheldur yfir-
leitt gas á bilinu 0.2-0.4% miðað við rúmmál. Kolsýra er
yfirleitt yfir 70% en brennisteinsvetni liggur á bilinu
2-8% og vetni á bilinu 0-10%.
Efnainnihald klóríðvatnsins á svæðinu við Land-
mannalaugar bendir til hitastigs kringum 265°C í undir-
liggjandi jarðhitakerfi. Gas í gufuaugum gefur vísbend-
ingu um enn hærri hita (>300°C), bæði við Landmanna-
laugar og annars staðar á Torfajökulssvæðinu þar sem
sýni hafa verið tekin.
Styrkur radons og kvikasilfurs hefur verið athugaður á
afmörkuðu svæði við Hrafntinnusker. Styrkur beggja
þessara efna er hæstur næst hverum og gufuaugum. Auk
þess koma fram frávik, sem falla nokkurn veginn saman
fyrir bæði efnin og eru ílöng annars vegar í NA-SV
stefnu og hins vegar í NV-SA stefnu. Fyrri stefnan svarar
til stefnu ríkjandi brotalína á svæðinu en sú seinni til
eldra brotalínukerfis.
Hlutfall helíum ísótópa (3He/4He) er óvenjuhátt á
Torfajökulssvæðinu. Gildi allt að 23.4 sinnum hærri en
nemur þessu hlutfalli í andrúmsloftinu hafa mælst. Svip-
uð gildi hafa einnig mælst í jarðgufu á jarðhitasvæðum í
gosbeltinu fyrir norðaustan. Hið háa hlutfall helíumísót-
ópa er talið tengjast möttulstróknum undir þessum
landshluta. Líklegt er talið að mikið uppstreymi basalt-
kviku frá möttulstróknum verði undir Torfajökulssvæð-
inu. Hluti þessarar kviku sest að neðst í jarðskorpunni,
bræðir hana að hluta og myndar þannig súra kviku, en
hluti leitar út í gliðnunarsprungurnar í gosbeltinu fyrir
norðaustan.
11