Feykir - 19.09.1990, Blaðsíða 1
rafsjá
Sérverslun
með raftæki
Sæmundargötu 1
Sauðárkróki
Engin vog
á Blönduósi
Engin bílavog er nú á
Blönduósi eftir að vog
kaupfélagsins við Hafnarbraut
var innsigluð nýlega og hafa
stjórnendur KH ákveðið að
ekki verði gert við vogina.
Sem stendur þarf því að vigta
það á Skagaströnd sem
nauðsyn krefur, en landaður
afli á Blönduósi er viktaður í
vinnslunni.
Að sögn Ofeigs Gestssonar
bæjarstjóra er í athugun að
hafnarsjóður kaupi viktina
af kaupfélaginu og láti gera
við hana, eða kaupi nýja vigt.
Aðspurður hvort að það væri
ekki bagalegt að engin
bílavog væri á staðnum, kvað
hann þaðekkertsvotiltakan-
legt. Til að rnynda væri engin
bílavog í Vestmannaeyjum.
Þar færi vigtun afla fram í
vinnslunni.
Málefni Loðskinns:
Verða vart afgreidd
fyrir mánaðamót
Klárt fyrir tökur í fjárhúsinu
á Höfða. Gísli Halldórsson
til vinstri og Friðrik Þór
Friðriksson annar frá hægri.
Homströndum og fyrir vestan,
og eru tökur nú að verða
hálfnaðar. Þegar blaðamaður
leit við á Höfða á föstudag
hafði maður verið sendur út
af örkinni til að leita að
gömlu Willisjeppahræi, sem
nota átti í einu ,skoti” í
myndinni. Fannst það við
bæinn Hróarsdal í Hegranesi.
- Bara þetta dæmi sýnir að
ýmislegt þarf að gera áður en
myndin birtist fullsköpuð á
Börn náttúrunnar mynduð á Höfða
Gamli bærinn á Höfða á
Höfðaströnd öðlaðist líf að
nýju um helgina, þegar fram
fóru tökur á upphafsatriðum
væntanlegrar bíómvndar Friðriks
Þórs Friðrikssonar, Börn
náttúrunnar. Fjárhúsin á
Höfða voru einnig vettvangur
þeirra atburða er aldraður
bóndi, leikinn af Gísla
Halldórssyni, bregður búi og
leggur eins og svo mörg önnur
gamalmenni í dag, leið sína í
elliheimilið á mölinni.
Þar eignast hann vinkonu
og í sameiningu ákveða þau
að strjúka vestur á Horn-
strandir. Saman lenda þau í
ýmsum ævintýrum sem kvik-
myndahúsgestir fá væntan-
lega að sjá á hvíta tjaldinu á
næsta ári.
Það voru hæg heimatökin
hjá Friðriki Þór að finna
hentugan tökustað fyrir
byrjunaratriðið. Hann var
nefnilega í sveit þar sem
strákur hjá Friðriki Antons-
syni frænda sínum. Friðrik
bóndi var samt ekki í
hlutverki í myndinni eins og
sveitungarnir voru að geta
sér til um.
Tökur á Höfða stóðu frá
föstudegi til mánudags. Búið
er að taka atriðin á
hvíta tjaldinu.
Handrit myndarinnar sömdu
þeir Friðrik Þór og Einar
Már Guðmundsson rithöfund-
ur. Aðalhlutverk eru leikin af
Gísla Halldórssyni og Sigríði
Hagalín. Hlutverk eru um
20, meðal annarra leikara, er
heimsfrægur þýskur leikari.
Egill Ólafsson, Tinna Gunn-
laugsdóttir, Baldvin Halldórs-
son, Rúrik Haraldsson o.fl
Ljóst er að það mun taka
bæjarstjórn Sauðárkróks enn
nokkra daga að skoða og
síðan taka ákvörðun um
beiðni sútunarverksmiðjunnar
Loðskinns um 20 milljón
króna hlutafjáraukningu bajar-
sjóðs. Bæjarráð hefur tekið
jákvætt í erindið, svo fremi
sem sýnt þyki að þær aðgerðir
sem unnið er að muni veita
Loðskinni rekstrargrundvöll.
Talið er hæpið að bæjar-
stjórn afgreiði málið fyrir
mánaðamót, þar sem hlut-
laus endurskoðandi á eftir að
yfirfara reikninga Loðskinns.
Er fastlega reiknað með að
Sveinn Jónsson endurskoðandi
bæjarins gangi í það verk.
Það voru framsóknarmenn í
bæjarstjórn sem lögðu til að
þessi vinnubrögð yrðu við-
höfð.
Starfsfólk í Loðskinni fékk
greidd laun fyrir ágústmánuð
fyrir viku, og voru þá liðnir
12 dagar umfram lögboðinn
greiðsludag. Það mun koma
forráðamönnum Loðskinns
illa hversu dregst að ganga
frá málum fyrirtækisins, þar
sem nú er kominn sá tími sem
samið er um kaup á hráefni
fyrir vinnslu næsta árs.
Það gekk ekki alveg nógu vel hjá þessum bíl í rallykrosskeppninni í malarnámunum við
Gönguskarðsá á sunnudaginn. A næstsíðasta hring hafnaði hann á toppnuni og eldur kom
upp í vélarúmi, er greiðlega gekk að slökkva. I keppninni, sem gaf stig til Islandsmeistara
og Bílaíþróttaklúbbur Skagafjarðar stóð fyrir, sigraði Reykvíkingurinn Elías Pétursson á
Escord 2000 með 180 ha vél. Hermann Halldórsson frá Steini varð annar á mun
kraftminni bíl og Viggó Bjömsson Sauðárkróki þriðjl
•••> '•■
Bflaviðgerðir - Hjólbarðaverkstæði
Réttingar - Sprautun
JBKI [ bilflvcrkstgdi ^
» ^*UDá#Ji)DKI . - oi7« jjoi “
SÆMUNDARGÖTU - SlMI 35141
Almenn rafverkatakaþjónusta
Frysti- og kæliþjónusta
Bíla- og skiparafmagn
___- Sími: 95-35519
H|./l Bílasími: 985-31419
Aðalgötu 26 Sauðárkróki Fax: 95-36019