Feykir - 19.09.1990, Side 2
2 FEYKIR 32/1990
■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI:
Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2,
Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4,
550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95-
36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F.
Hjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur
Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og
Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús
Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI:
Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR-
VERO: 90 krónur hvert tölublað; í lausasölu
100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðvikudagur ■
SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST
sf•, Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að
Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
Verslið í
heimabyggð
Norðlensk knattspyrna
á niðurleið
Þegar nýafstaðið knattspyrnu-
tímabil er gert upp, vekur athygli
slæmt gengi norðanliðanna. Það er
sama sagan í öllum deildum, alls
staðar eru. þau við botninn.
Akureyrarfélagið Þór féll niður úr
fyrstu deild og KA varekki langt frá
falli. I annarri deildinni féllu KS og
Leiftur, og Tindastóll rétt slapp.
Einherji og TBA féllu síðan úr þriðju
deild niður í þá fjórðu.
Menn spyrja sig, hver er ástæðan
fyrir því að norðlenskri knattspyrnu
hefur hrakað svo síðustu misserin.
Ekki er langt síðan að fjögur
norðlensk lið léku í fyrstu deild og
tvö í annarri. Næsta sumar verður
einungis eitt lið að norðan i fyrstu
deild og tvö í annarri deild.
Astæðan er einföld, sá gífurlegi
aðstöðumunur sem ríkir milli liða á
höfuðborgarsvæðinu og knattpyrnu-
liða á landsbyggðinni. Gervigrasvöllurinn
í Reykjavík gerir sunnanliðunum
kleift að leika knattspyrnu við ágæt
skilyrði alltárið. Meðan norðanmenn
sjá varla völl fyrir snjóum fyrr en
kemur fram á vor.
Það er ósköp einfalt mál að ef
Norðlendingar koma sér ekki upp
gervigrasvelli bráðlega dragast þeir
enn meira aftur úr á knattspyrnu-
sviðinu. Það ætti að vera sameiginlegt
hagsmunamál Norðlendinga að
slíkur völlur verði byggður á
Akureyri. Iþróttafélögin og sveitar-
félögin eiga að sameinast um þetta
mál og vinna að framgangi þess sem
mest þau mega.
En hvernig á að fjármagna slíka
framkvæmd spyrja sjálfsagt einhveijir.
Það er viðurkennd staðreynd að gott
og öflugt íþróttalíf er nauðsynlegt út
frá byggðalegu sjónarmiði. Því er
ekki óraunhæft að ætla Byggðasjóði
að koma þarna inn í. Þó svo að það
skjóti kannski skökku við að ætlast
til þess þegar sjóðurinn hefurveriðað
tapa stórum upphæðum í gjaldþrotum
fyrirtækja undanfarið.
Lagt vatn 11 km leið
á Hvammstanga
feykjur
Miklar vatnsveitufram-
kvæmdir standa nú yfir á
Hvammstanga. Fyrir um
sex vikum var hafist handa
við lagningu 11 kílómetra
langrar vatnsleiðslu úr lind
í svokölluðum Mjóadal
norðaustan kauptúnsins.
Kostnaður við þessa fram-
kvæmd er áætlaður um 17
milljónir króna.
Að sögn Hauks Árna-
sonar tæknifræðings Hvamms-
tangahrepps er um þriðjungi
verksins lokið. Vonast
menn eftir góðri tíð í haust
til að unnt verði að ljúka
Óskast keypt
Rörmjaltakerfi!
Vantar rörmjaltakerfi til kaups.
Upplýsingar .gefur Númi í
síma 96-71009.
Óskast keypt
Vel með farin kommóða
óskast. Sími 35729.
Snemmbæra!
Fyrsta kálfs kvíga til sölu,
snemmbær. Upplýsingar í
síma 38157.
því fyrir veturinn. Þar með
yrði vatnsmálum bæjarbúa
borgið til langframa, en til
þessa hefur á tíðum jaðrað
við vatnsskort.
„Rigningarnar undan-
farið hafa tafið fyrir og gert
okkur erfiðara með aðdrætti.
Þar sem er blautlendast
höfum við þurft að beita
sérútbúnum dráttarvélum”,
sagði Haukur. Það eru þrír
verktakar úr röðum
heimamanna sem tóku
verkið að sér. Pípulagningar-
maður, vöruflutningabíl-
stjóri og gröfumaður.
Jeppi til sölu
Til sölu Scout, 8 cyl. árgerð
1974. Upplýsingar í síma
36608 eftir kl. 21 á kvöldin.
Til sölu
Skellinaðra til sölu, Honda
MT 50 árgerð 1983. Lítur út
sem ný. Verðhugmyndir 75
þúsund kr. Upplýsingar í
síma 36625.
Til sölu 4 snjódekk (negld),
Firestone ATX radial 23,
LT 215/75 R 15 M/S.
Uppl. í síma 35822.
Kók í Fljótum
Enn eru Siglfírðingar
sama sinnis og neita sérum
kókið, meðan ekki er
umboð fyrir þennan
viðurkennda svaladrykk á
Siglfufirði. En eins og
menn muna var Siglu-
fjarðarumboðið sameinað
umboðinu á Sauðárkrókiá
liðnum vetri. Reyndar eru
Siglfirðingar grunaðir um
að kaupa kók í stórum stíl
utanbæjar. Hefur það
greinilega komið fram í
útibúi KS á Ketilási í
Fljótunum. Þar hefur sala
á kóki meira en tvöfaldast
á síðustu mánuðum.
Fátt er svo með öllu illt,
og gott að útibússtjóranum í
litla útibúinu á Ketilási
varð eitthvað til happs.
Fyrir síðustu jól lét hann
þau orð falla að vonandi
brysti hann á með stórhríð
svo að enginn kæmist burtu
til að versla. Honum varð
ekki að ósk sinni þá, því
rjómablíða var f'yrir jólin
og rennifæri um allt.
Réttarmenningin
á hvíta tjaldið
Skagfirsk réttarmenning
mun birtast á hvíta tjaldinu
innan tíðar. Smölun í
Höfðarétt veður eitt atriðið
í næstu afurð Friðriks Þórs
Friðrikssonar, Börnum
náttúrunnar. Bændur á
Höfðaströnd verða þar í
aðalhlutverki ásamt nokkrum
leikurum úr héraðinu. Að
sjálfsögðu var lagið tekið
við brjóstbirtu undir
réttarveggnum. Lands-
mönnum gefst tækifæri á
að sjá hvernig til tókst
þegar myndin verður
frumsýnd á næsta ári. En
Friðrik Þór var ánægður
með árangurinn af þessari
sviðsettu réttarmenningu í
Skagafirði.
Auglýsendur!
Feykir er lesinn á
velflestum heimilum
Norðvestanlands
Áskrifendur athugið!
Þar sem útgáfa Feykis byggist
að miklu leyti á áskriftum,
eruð þið vinsamlegast beðnir
að draga ekki greiðslu gíróseðla
Feykir
Ókeypis smáar