Feykir - 19.09.1990, Side 3
32/1990 FEYKIR 3
Húsnæði
Viltu búa í sveit í vetur?
Garðhús í Seyluhreppi er til
leigu í vetur. Nothæft íbúðar-
hús, stórt og gott hesthús.
Upplýsingar í síma 36777 á
kvöldin.
Raunávöxtun Samvinnubókar árið 1989var 5.01%
Nafnvextir Samvinnubókar eru nú 11.5%
Ársávöxtun er því 11.83%
Hagstæð ávöxtun í heimabyggð
Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga
Verðlaunahafar á Borgarmótinu. Feðgarnir Reynir og Óli Barðdal í fremstu röð.
Trésmiðjunni Borg var við verðlaunaafliendinguna þakkaður dyggur stuðningur við
golfíþróttina á Króknum.
Reynir vann Borgarbikarinn
Borgarbikarinn veglegasta
innanfélagsmót Golfklúbbs
Sauðárkróks fór fram á
Hlíðarenda um helgina. Það
er Trésmiðjan Borg sem gefur
alla verðlaunagripi til mótsins.
Aðalverðlaunin Borgarbikar-
inn hlaut Reynir Barðdal fyrir
leik með forgjöf í karlaflokki.
Reynir lék á 147 höggum,
heldur betur en Birgir
Guðjónsson sem varð annar
á 149. Björgvin Sveinsson
sjómaður kunni vel við sig í
hvassviðrinu á laugardag og
púttaði af öryggi. Hann fór
18 holurnar á I5l höggi. Án
forgjafar sigraði Guðmundur
Ragnarsson í karlaflokknum,
lék á 171 höggi. Örn Sölvi
Halldórsson varð annar á
175 og Guðmundur Sverris-
son þriðji á 176.
Konur léku með forgjöf.
Þar sigraði Valgerður Sverris-
dóttir á 175. Sólrún Steindórs-
dóttir varð önnur með 197 og
Svanborg Guðjónsdóttir þriðja
á 208.
I unglingaflokknum sigraði
Halldór Halldórsson án
forgjafar á 184. Gunnar A.
Gunnarsson varð annar með
190 og Guðjón Baldur bróðir
hans þriðji á 194. Með forgjöf
sigraði OIi Barðdal á Í57.
Þorsteinn Jónsson varð annar
á 158 og Hákon Örn
Birgisson þriðji með 162.
Guðjón Baldur átti fæst
pútt á mótinu, 61. Örn Sölvi
lengsta upphafshögg á 9.
braut. Guðmundur Ragnars-
son var næstur holu á 6.
braut á laugardag, 1.44 m og
Óli Barðdal næst holu á 3.
braut sama dag, 7,55 m. Á
sunnudag var Kári Valgarðs-
son næst holu á 3. braut, 6,46
m og Haraldur Friðriksson
næst holu á 6. braut, 2,83
metra.
SAMVINNUBÓKIN
Búfjárnefnd Sauðárkróks:
Ályktar út og suður
Þorbjörg Ágústsdóttir for-
maður Sauðfjáreigendafélags
Sauðárkróks er mjög óánægð
með að fjáreigendur á
Sauðárkróki þurfi að smala
Bolaklif, partinn á milli
Hrútagils og Svartagils, en
það land er innan marka
Staðarhrepps, og telur Króks-
urum smölun þar óviðkomandi.
Þá telur Sveinn Guðmundsson
formaður Hestamannafélags-
ins Léttfeta girðingu, fjáreig-
enda á milli hólfs hestamanna
á Hrvggjardal og „Hálsahólfs”,
vera orðna mjög lélega.
Bað hann Þorbjörgu að beita
sér vel og dyggilega í málinu.
Þetta kemur fram í nýlegri
fundargerð jarðeigna-' og
búfjárnefndar Sauðárkróks.
En fundargerðir bera meðsér
að fundir nefndarinnar eru
oft á tíðum hinir skemmti-
legustu. Að þessu sinni setti
Reynir Kárason formaður
nefndarinnar fundinn og
stjórnaði honum. Einnigsátu
hann Guðmundur Óli Páls-
son, Egill Helgason fjallskila-
stjóri og hagyrðingur, og þau
Þorbjörg og Sveinn sem áður
eru nefnd. Þegar fundargerð-
in var lesin í bæjarstjórn,
voru bæjarfulltrúar flestir
ekki alveg klárir á, hvaða
staði örnefnin hér að framan
eiga við, og lá það þeim
sjálfsagt fáir.
Egill fjallski lastjóri upp-
lýsti að 6653 ær og gemlingar
hafi verið á Staðarafrétt í
sumar og um 500 hross, en
fyrir 15 árum voru urn 17000
fjár á afréttinni. Eignarhlut-
fall Sauðárkróksbæjar varð-
andi Staðarafrétt liggur ekki
fyrir, en margt bendir til að
bærinn sé hlunnfarinn hvað
varðar tölu búfjár til upp-
rekstrar.
Fram kom að innheimta á
fjallskilagjöldum væri ekki
nægjanlega góð. Þeir sem eru
uppvísir að óskilum eru, að
dómi fundarmanna, aðfyrir-
gera rétti sínum til upprekstrar
búfjár.
Fiskeldisfyrirtækið Fornós hf
á Sauðárkróki var úrskurðað
gjaldþrota hjá embætti sýslu-
manns Skagftrðinga sL fimmtu-
dag. Þá voru aðeins sex dagar
liðnir frá gjaldþroti Melrakka,
og af því má draga þá
ályktun að gjaldþrot séu tíð
méðal fyrirtækja á Sauðár-
króki. En svo er aldeilis ekki,
þau hafa sem betur fer verið
afar sjaldgæf.
Rekstur Fornóss hefur
gengið erfiðlega alveg frá því
félagið var stofnað fyrir
tveiniur árurn, upp úr öðru
seiðaeldisfyrirtæki. Hefur hvert
áfallið rekið annað. Reiknað
er með að gjaldþrot Fornóss
nemi liðlega 30 milljónum.
Stærstu kröfuhafar eru Byggða-
stofnun og fóðurverksmiðjan
Istess á Akureyri.
Matfisk í kerjum Fornóss
hefur Islandslax keypt og
stóð til að slátra honum nú
eftir helgina. Aðaleigendur
Fornóss eru Hólalax og
Fiskiðjan, en þeir yfirtóku
nokkuð af hlutafé fyrri
eiganda á þessu ' ' Hins-
vegar hefur sú breyting ekki
náð inn í hluthafaskrá, og
gæti það haft áhrif um
meðferð mála í gjaldþrotinu.
Fornós gjaldþrota