Feykir - 19.09.1990, Qupperneq 4
4 FEYKIR 32/1990
Af öllum þeim aragrúa
verslana sem staðsettar hafa
verið í Gamla hænum á
Króknum síðustu ár, hefurein
látið alveg ábcrandi minnst
yfir sér. Er það Fombókasalan
við Sævarstíg 2. Bæði er að
húsnæði verslunarinnar var
ákaflega lítið og lágreist og
eins var það í hliðargötu. En
samt verður líklega Fornbóka-
sahm að teljast með merkari
verslunum í bænum. Þau eru
nefnilega ekki mörg bæjar-
félögin í landinu sem bjóða
upp á sérstaka búð fyrir
gamlar bækur og blöð. En það
er liðin tíð, því Fornbókasalan
á Króknum heyrir nú sögunni
til. Hún hætti starfsemi um
síðustu áramót, og um næst
síðustu helgi var litli búðar-
skúrinn við Sævarstíg rifinn.
Það er því komið að því að
skrifa minningargrein um
þetta litla en merka hús. Því
það er ekki eingöngu merki-
legt fyrir þá starfsemi sem
það hýsti síðast, heldur var
þar á undan til húsa með
verslun sína enginn annar en
sjálfur Isleifur Gíslason
kaupmaður.
En upphaflega átti þetta
hús að vera afgreiðsla
Bifreiðastöðvar Skagafjarðar
og það voru þeir Þorvaldur
Þorvaldsson (Búbbi) og
Björn Guðmundsson sem
stóðu fyrir byggingu þess.
Búbbi þekkir því söguna
manna best og kemur hún
hér á eftir:
Pirringur í
nágrönnunum
,.Það var annaðhvort árið
1935 eða sex sem við
byggðum húsið úr timbri með
járnþaki. Við vissum ekki
annað en við hefðum öruggt
leyfi fyrir staðsetningu þess
við AðalgöUma, rétt fyrir
sunnan gamla kaupfélagið, á
móts við Verslun Haraldar
Rækjuver vill flytja
á Blönduós
Tvö síðustu ár hefur rækju-
báturinn Þröstur BA 46 lagt
upp á Blönduósi og hefur
aflinn verið unninn í Særúnu.
Nú hefur Rækjverhfí Bíldudal
eigandi bátsins sýnt mikinn
áhuga á flutningi bátsins
alfarið til Blönduóss, enda er
fyrirtækið aðili að Særúnu og
Nökkvaútgerðinni á Blönduósi.
Forráðamenn Rækjuvers
óskuðu í erindi sínu til
bæjarstjómar Blönduóss eftir
ívilnunum, t.d. varðandi
aðstöðugjald á starfseminni
ef hún flytti til Blönduóss.
Ofeigur Gestsson bæjarstjóri
er bjartsýnn á að áður en
langt líður verði Þröstur
orðinn einn af heimabátum á
Blönduósi.
Oskað var eftir umsögn
atvinnumálanefndar um málið
og samþykkti hún einróma
að erindi Rækjuvers fái
jákvæða afgreiðslu, en beindi
því jafnframt til bæjarstjórnar
að gæta hagsmuna bæjar-
félagsins í hugsaniegum
samningum við Rækjuver,
m.a. með tilliti til manna-
ráðninga og annarrar þjón-
ustu við skipið. Telur
atvinnumálanefnd að meta
verði slíkar beiðnir í hverju
einstöku tilfelli.
Bæjarfulltrúar K-listans
Unnur Kristjánsdóttir og
Guðmundur Theódórsson
sem reyndar er í minnihluta
bæjarstjórnar létu bóka
eftirfarandi um málið: „Undir-
ritaðir bæjarfulltrúar af K-
lista leggja áherslu á að laða
megi ný fyrirtæki til bæjarins
m.a. með því að veita frest á
greiðslu aðstöðu- og stofn-
gjalda. Um þetta verði settar
almennar reglur og skilyrði,
áður en fjallað verði um
fyrirgreiðslu til einstakra
fyrirtækja”.
Ingólfur Agnarsson innan við búðarborðið fyrir einum 20 árum. Mynd Stefán Pedersen.
Júlíussonar. í þeirri trú
létum við setja niður bensín-
tank við húsið og meiningin
var að vera með mann þarna í
afgreiðslu. En þetta mál fór
eitthvað í taugarnar á
nágrönnunum, svo að okkur
var ýtt í burtu með þetta
allt saman.
Það samdist við kaupfélagið
um að þeir tækju við
tanknum og keyptu húsiðog
það var lengi geymsluhúsnæði
hjá þeim. Þetta varð til þess
að við hættum við húsnæði
undir afgreiðsluna og tókum
hana heim til okkar”, sagði
Búbbi. Til viðbótar þessari
frásögn hans má geta þess að
Hannes Pétursson segir í
grein sinni um Isleif í bókinni
„Detta úr lofti dropar
stórir”, að á hernámsárunum
hafi Bretar lagt skúrinn
undir sig og notað sem
varðskýli eða eitthvað þess
háttar. En gefum Búbba
áfram orðið.
Farið á fjörurnar
við kaupfélagið
„Síðan gerist það 1941 að ég
kaupi húsið Aðalgötu 6, sem
þá var auðvitað ekki komið
með þetta götunúmer, af
Isleifi Gísla. Með því skilyrði
frá hans hendi að hann fái að
vera í húsinu til lýðveldis-
ársins 1944. Þá gerist það að
hann fer á fjörurnar við
kaupfélagið að kaupa okkar
gamla skúr, fær hann
keyptan og útvegar sér lóð
þarna bak við, fyrir norðan
húsið Sævarstíg 2, hjá Agnari
Baldvinssyni sem þar bjó.
Isleifur flytur sinn varning
úr húsinu í þetta pláss og
byrjar að versla þarna í
Fornbókasalan eins og hún leit út í mörg ár.
Mynd Stefán Pedersen.
Fornbókasalan og Ingólfur
Agnarsson heyra nú sögunni til:
Ein merkasta starf-
semi í bænum, en
lét lítið yfir sér