Feykir - 19.09.1990, Qupperneq 5
32/1990 FEYKIR 5
Búðarskúr ísleifs Gíslasonar, er seinna varð Fombókasalan.
Enginn gerir flugu mein
skúrnum 1944 oggerirþað til
dauðadags 1960. Egmeiraað
segja kom að honum þarsem
hann hafði fallið í yfirlið við
húsið og misst meðvitund, og
fékk aðstoð við að bera hann
inn á gamla spítalann. Hann
kom til meðvitundar daginn
eftir og lifði í nokkra daga
þar á eftir”.
Öldin á
„spottprís”
Og hvenær er það svo sem
Ingólfur Agnarsson fer að
versla þarna?
„Það hefur líklega verið
fljótlega eftir að Isleifur dó,
alla vega var engin önnur
starfsemi í húsinu í millitíðinni.
Ingólfur hafði lengi haft hug
á að koma upp fornbóka-
verslun”.
Hvernig leist fólkinu í
bænum á að komin væri hér
sérverslun með gamlar og
notaðar bækur?
„Fólkið tók þessu bara
vel, enda fékkst oft mikið hjá
Ingólfi. Hann var býsna
seigur að viða að sér bókum.
Ég fékk t.d. hjá honum einu
sinni tólf bækur af öldinni
okkar, fremur nýlegar og ég
hef aldrei gert betri bóka-
kaup á ævinni. Ingólfur var
alltaf vel liðinn, það þótti
öllum vænt um hanrt”, sagði
Búbbi í lok viðtalsins.
Skápurinn
sneisafullur
Seinustu ár ævi sinnar var
Ingólfur sjúklingur og lést
hann á síðasta vori. Það fólk
sem hann hafði mest sam-
neyti við í bænum, voru þau
heiðurshjón Arni Rögnvalds-
son og Jónína Antonsdóttir.
Var Ingólfur heimagangur
þar mörg hin síðari ár, enda í
fæði hjá þeim Arna og Inu.
„Ég þekkti Ingólfalvegfrá
því að þau bjuggu í torfkofa
úti á Eyrinni, Agnar Baldvins-
son og Arný kona hans. Þá
kynntist ég strákunum Ingólfi
og Skarphéðni, og síðan
vorum við Ingólfur alltaf
miklir vinir. Hann var
ákaflega þægilegur og traustur
drengur”. Arni segir að fólk
hafi verslað mikið Við Ingólf,
enda hafi hann ekki verið að
okra á hlutunum.
„Það var oft ótrúlega
mikið til hjá honum. Fyrir
jólin t.d. voru allar hillurnar
átta í stóra skápnum að
sunnanverðu sneisa fullar.
Hann verslaði einnig með
frímerki og það voru ýmsir
safnarar sem skiptu við hann.
Svo var hann líka með
ýmislegt annað, íslensku
spilin alltaf og á tímabili
verslaði hann með skot í
riffla og haglabyssur. Og það
var alveg segin saga að þó
manni fyndist stundum þetta
vera bölvað rusl innanum í
bókunum hjá honum, reifarar
og ýmislegt, þá seldist þetta
allt saman. Og það var fyrir
það að hann seldi svo
billegt”, sagði Árni Rögg í
spjalli um vin sinn Ingólf í
Fornbókasölunni.
Gilsbakka í Austurdal 9/9
Héðan af mínu póstsvæði
er ekki margt að frétta, en
eins og annars staðar
norðanlands kom gott vor
eftir illræmdan vetur. Síðan
sumar, sem verður að teljast
með þeim bestu, þegar á allt
er litið.
Allir fagna vorinu, enda
þótt því fylgi jafnan tvær
plágur miklar, annars vegar
aurbleyta á vegum og hins
vegar flugurnar sem þá
vakna til lífsíns og taka hús á
mönnum.
Ekki lét aurbleytan á sér
standa og urðu vegir óvenju
seint færir til hinna afskekkt-
ari bæja. Bændurnir náðu því
ekki til sín áburðinum í tæka
tíð, sem svo seinkaði sprettu.
Sláttur hófst því seint á
þessum bæjum, og voru þá
bestu þurrkarnir um garð
gengnir. Þetta á ekki einungis
við um póstsvæði mitt,
heldur bæina í dalnum, þó
að utan þess standi.
Um flugnapláguna er það
hins vegar að segja að hún
varð engin að þessu sinni.
Ekki vita menn hvernig á
þessu stendur, en framan af
vori kvað svo rammt að, að
það fréttist á milli bæja ef
húsflugu sást bregða fyrir.
Voru það þá helst stórar
húsflugur og þá mjög
ræfilslegar, jafnvel ófleygar.
Eitthvað hefur nú húsflugu
fjölgað í seinni tíð, en langt
frá því að stofninn hafi náð
eðlilegri stærð og enn er það
viðburður ef litla húsflugan
sést.
Ekki veit ég, hversu
víðtækt hrun húsflugunnar
er en hér voru stödd hjón úr
Reykjavík nýlega og barst
þetta í tal, þá sagði konan:
„Ég man það núna, að við
höfum ekki þurft aðfá okkur
neinn flugnabana í sumar”.
Það var einu sinni í vor í
póstferð að ég var að drekka
kaffi hjá konu einni, sem að
jafnaði er mjög grimm við
flugur, drepur þær hvar sem
hún nær til þeirra, jafnvel í
kirkjum, (þó ekki á messu-
tíma). Kemur þá fluga ein
skríðandi og er í dauðafæri,
en konan lætur sem hún sjái
hana ekki. Ég fer eitthvað að
spyrja út í þetta og húsfreyja
segir: „Mér dettur ekki í hug
að skipta mér af þessari einu
flugu. Mér sýnist hún heldur
ekki svo merkileg”.
Er þá fréttalestri Iokið.
Þorvaldur Þorvaldsson
Nýjar METBÆKUR:
Nú eru komnar METBÆKUR fyrir
börn og unglinga, með mynd af
bangsanum PADDINGTON á kápu,
ítveimur litum, RAUÐARog BLÁAR.
Þeir eigendur METBÓKA, sem óska
geta skipt yfir í þessar bækur.
METBÓK er 18 mánaða sparibók.
Hver innborgun er aðeins bundin
í 18 mánuði.
Eftir það er hún ávallt laus til
útborgunar, en heldur engu að síður
óskertum vaxtakjörum.
EKKERT ÚTTEKTARGJALD.
Heildarávöxtun Metbókar 1989
var 26.36%
Verðtryggð kjör nú eru 5.75%
umfram verðbólgu
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI
Útibúið á Sauðárkróki
Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð
Hjörleifur Kristinsson.