Feykir - 19.09.1990, Side 6
6 FEYKIR 32/1990
hagyrðingaþáttur 81
Heilir og sælir lesendur
góðir. Það fer ekki á milli
mála að við stöndum frammi
fyrir því einn ganginn enn að
það er komið haust. Það er
hagyrðingurinn snjalli Kristján
Stefánsson frá Gilhaga í
Skagafirði sem lýsiráhrifum
haustsins á umhverfi okkar
svo snyrtilega í næstu vísu.
Oðum víkur ylrík tíð
áður rík af dáðum.
Sölnuð fýkur svo af hlíð
sumarflíkin bráðum.
Kristján er mikið hrifinn af
þeirri árstíð sem nú fer í hönd
og hefur ort margar fallegar
vísur til haustsins. Hér
kemur ein slík.
Hefta völdin hlýrra strauma,
haustsins köldu daggar tár.
Rísa öldur dýrra drauma,
dulrík kvöldin vekja þrár.
Kristján hefur farið margar
ferðir til fjalla. Svo yrkir
hann á leið í göngur á
Eyvindarstaðaheiði.
Blær á leiðum bærir strá,
blómaskeiðin liðin.
Enn mig seyðir einhver þrá
inn í heiðarfriðinn.
Oft hafa gangnamenn
orðið fegnir að komast í
húsaskjól, þrátt fyrir að
húsakosturinn hafi ekki
alltaf verið merkilegur. Næsta
vísa Kristjáns er gerð við
komu að gangnamannaskála
og hefur sá eftir innihaldi
hennar að dæma tekið sig vel
út í kvöldsólinni, hvernigsvo
sem hann hefur verið
innvortis.
Tign og fegurð töfrum slá,
tökum grípa sterkum.
Geislar sólar glampa á
guðs og manna verkum.
Næst langar mig að leita til
ykkar lesendur góðir með þá
bón að upplýsa mig um
höfund að eftirfarandi vísu.
Yfir fögru fjöllin senn
fer að ljóma að degi.
Ríða glaðir gangnamenn
grýtta heiðarvegi.
Margir þeir sem eldri eru
a.m.k. hér í Húnaþingi og
Skagafirði kannast við frá-
sagnir af Margréti í Stafni og
rausnarlegum veitingum hennar
um árabil við Stafnsrétt.
Næst kemur hér vísa sem
mun vera eftir Jón Pétursson
frá Nautabúi í Skagafirði og
er hún ort eftir því sem sagan
segir, þegar Margrét hætti að
veita vín við réttina.
Slær til heljar unaðseld
angurs elja strengur.
Öls er beljan orðin geld
ei kann selja lengur.
Önnur vísa kemur hér sem
ort er í Stafnsrétt og er hún
eftir hagyrðinginn snjalla
Gísla Stefánsson frá Mikley í
Skagafirði. Sagt er að Gísli
hafi séð hóp af ungum
stúlkum vera á ferð um
réttareyrina og þá haft yfir
vísuna við þá sem nærstaddir
voru.
Sama er mér hvar sólin lýsir,
segja ykkur vil,
á meðan Svartárdalsins dísir
drengjum veita yl.
Þá koma næst nokkrar
vísur úr Hveravallaferð hag-
yrðinga sem sagt var frá í
síðasta þætti. Stuttu eftir að
komið var í skálann tók Jói í
Stapa sig til og fór að útdeila
miðum sem klipptir höfðu
verið niður. Gaf hann
svofeilda skýringu á þessu
háttalagi sínu.
Ymsum mun um orðið létt,
efalaust með nokkrum hraði.
Stendur til að stuðlum sett
stakan lendi á þessu blaði.
Eitthvað fóru menn að
grínast með það að miðar
þessir Uktust um of kosninga-
miðum, og fannst sumum
þeir vera heldur takmarkaðir
eins og fram kemur í næstu
vísu Jóns í Skollagróf.
Sig að vanda margur má
og mest á Hveravöllum,
þegar kvóti er kominn á
kveðskapinn á fjöllum.
Margir létu í ljós ánægju
með staðsetningu þessarar
samkomu. Þetta varálit Jóns
Karlssonar í Gýgjarhólskoti.
Frægu skáldin fara á stjá
flíka ljóðum snjöllum.
Andinn kemur yfir þá
upp á Hveravöllum.
Sigurður Hansen leggur
þetta til málanna.
Renna að kalli rímsins
myndir,
rísa af stalli á miðjum
fjöllum.
Meðan allar listalindir
Ijóðsins falla að Hveravöllum.
Mér sýnist fara vel á því að
Kristján Stefánsson í Gil-
haga Ijúki þættinum að þessu
sinni með vísu sem art er við
Stafsrétt um það leyti sem
göngum er að Ijúka og allt
næsta nágrenni er þakið af
umferð manna og dýra.
Nú má heyra gangna gný.
grána hæð og drögin.
Stafns á eyri enn á ný
óma kvæðalögin.
Verið þið sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
s:95-27l54
Stólarnir höfðu
ástæðu til að fagna
Eftir að hafa náð stiginu
sem vantaði í Kópavogi
Þeir fögnuðu ákaft Tindastóls-
menn við leikslok á Fífu-
hvammsvelli í Kópavogi á
laugardaginn. Stólunum tókst
að ná jafntefli i leiknum og
tryggja þannig sæti sitt í
deildinni. Það var mjótt á
mununum í botnbaráttunni,
og eins gott að Tindastóls-
menn kláruðu dæmið sjálfir,
þarsem úrslit í öðrum leikjum
voru á þann veg að tveggja
marka tap Tindastóls hefði
þýtt fall niður í þá þriðju.
Það leiðinlega hlutskipti
kemur í hlut ágætra nágranna
okkar KS og Leifturs. Sem
þýðir að svokölluðum „derby ”
leikjum hér fyrir norðan
fækkar næsta sumar. Það
verða einungis leikir Tinda-
stóls og Þórsara frá Akureyri,
sem féllu niður úr fyrstu
deildinni.
Blikarnir byrjuðu með
látum undan sterkum vindinum
á laugardaginn. Og strax á 9.
mínútu náði Valur Valsson
að koma þeim í l:0 eftir
þunga sókn. Stólarnir vörðust
annars vel og náðu á milli
einstaka skyndisókn. Úr
einni sb'kri skaut Guðbrandur
yfir markið undir lok
hálfleiksins.
En Guðbrandi brást ekki
bogalistin þegar hann jafnaði
metin með marki í upphafi
seinni hálfieiks. Stólarnir
höfðu síðan yfirtökin í seinni
hálfleiknum, en þó náðu
heimamenn að sækja talsvert
móti vindinum. Færin létu
samt á sér standa þrátt fyrir
sóknir á báða bóga, og
niðurstaðan varð sanngjarnt
jafntefli, 1:1.
Blikarnir gengu hnípnir af
velli, héldu að þeir hetöu
klúðrað fyrstudeildar sætinu,
en tóku síðan gleði sína á ný
þegar í ljós kom að
Grindavík hafði lagt Fylkiað
velli, 2:0 suður með sjó.
Tindastóll hafnaði í 7. sæti
í deildinni eins og tvö síðustu
ár, með 20 stig, jafnmörg og
Grindavík en mun betra
markahlutfall. Leiftur hlaut
19 og KS 16. Vonandi eiga öll
þessi lið eftir að hittast í
dcildinni að nýju áður en
langt um líður.
„Já, ég hef leikstýrt
nokkrum sinnum á Króknum
og á alveg dásamlegar minningar
þaðan. Það var virkilega
gaman að vinna með þessu
fólki. Alveg gífurlega góður
hópur, með úrvals leikurum.
Ég held ég hafi t.d. aldrei
kynnst slíkum „náttúru
talent” í leiklistinni, eins og
Steina Hannesar. Síðan var
það Kári Jónsson sem hélt
vel utanum hlutina. Og það
var líka svo gaman hvað
áhuginn var mikill í bænum.
Kvikmyndað í fjárhúsinu á Höfða:
Frábærar aðstæður til að leika
„Það er alveg frábærlaga
skemmtilegt að leika við
þessar aðstæður. Ekki hægt að
hugsa sér hlutina eðlilegri,
rakt taðið og lyktin úr því. Það
má segja að stemmningin
smiti alveg fram í fingurgóma”,
sagði leikarinn góðkunni Gísli
Halldórsson þegar verið var
að kvikmynda atriði i fjár-
húsunum á Höfða sL föstudag.
Meðan kvikmyndatökumenn-
irnir voru að færa sig til í
fjárhúsunum og byggja undir
vélarnar, biðu þeir átekta í
eldhúsbílnum Gísli og Friðrik
Þór Friðriksson. Friðrik
kunni greinilega nokkuð vel
við sig á bæjarhólnum gamla
og fór að rifja upp tengsl sín
við staðinn. „Afi bjó hérna
áður, er grafinn hérna í
heimagrafreitnum. Og pabbi
var hérna til 1937. Þá varþað
sem systir hans tók við,
móðir Friðriks bónda héma”.
Það barst í tal að Gísli erekki
ókunnugur leikstarfi í Skaga-
firði.
Þegar maður var að taka
bensín á bílinn eða hitti fólk á
götunni, þá var fólk sem
maður hafði aldrei séð að
spyrja hvemiggengi aðæfa”,
sagði Gísli.
Gísli Halldórsson að leik í fjárhúsi.
Gísli og Friðrik Þór híða átekta í eldhúsbílnum.