Feykir - 19.09.1990, Qupperneq 8
IFEYKIR
lm Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
19. september 1990, 32. tölublað 10. árgangur
Auglýsingar þurfa að berast eigi síðar
en um hádegi á föstudögum
NYJUNG - BILAMARKAÐUR
SÖLULAUN KR. 6000 - ÁN VSK FYRIR ALLA
BÍLA Á HVAÐA VERÐI SEM ÞEIR SELJAST Á
Nú mæta allir á staöinn meö bíla sína, sem
ætla að skipta eöa selja - Góö aðstaða
BÍLASALAN - Borgarflöt 5 Sauöárkróki
Símar 95-36050 - 95-35405
Opið mánudaga,
miðvikudaga og
föstudaga kl. 13-19
ATH. NÝTT!
Opið þriðjudaga,
fimmtudaga kl. 13-22
Laugardaga kl. 13-17
Þrennar stóðréttir voru í Skagafirði á sunnudaginn, og því mikið um hrossarekstra á
vegum, en í síðustu viku var ekið á fjögur hross í héraðinu. Réttað var í
Silfrastaðarétt, Reynistaðarétt og Skarðarétt, þar sem þessi mynd var tekin.
Skagafjörður:
Riða í enn einn hreppinn
Hinn illræmdi sauðfjársjúk-
dómur riðan hefur nú stungið
sér niður í enn einum
hreppnum í Skagafirði, Skefils-
staðahreppi á Skaga. Riða var
staðfest fyrir nokkru í tveggja
vetra kind á hænum Ketu. Eru
nú einungis tveir hreppar í
Skagafirði, þar sem riða hefur
ekki verið staðfest; Fells- og
Rípurhreppur.
Björn Halldórsson bóndi í
Ketu sagði menn að sjálfögðu
hafa velt fyrir sér hvernig
þessi kind hafi smitast, og
það sé síður en svo auðvelt að
gera sér grein fyrir því, þar
sem nokkuð langt sé í annað
riðusvæði. Þó er stutt síðan
að riða var staðfest á bænum
Efri-Lækjardal í Engihlíðar-
ltreppi í A-Hún. Fé á þessum
bæjum gengur ekki saman
nema að litlu leyti.ogaðauki
var ærin sem smitaðist mikið
heima við bæ í Ketu í
fyrrasumar. Því sé þetta enn
langsóttara.
Fé á Efri-Lækjardal hefur
verið lógað, en enn er ósamið
um förgun Ketufjárins.
Skafti hitti á daginn
Skipverjar og útgerð Skafta
höfðu heppnina með sér
þegar skipið seldi i
Bremenhafen sl. laugardag.
Fyrir 103 tonn af karfa
fékkst langbesta meðalverð
vikunnar, 110,83 krónur á
kólóið. Kílóverðið hafði
farið niður í 70 krónur þá í
vikunni og hrapaði aftur
eftir hclgina. Vigri fékk á
mánudag 86 krónur í
meðalverð.
Að sögn Gísla Svans
Einarssonar útgérðarstjóra
Skagfirðings eru afiabrögð
hjá flotanum treg um
þessar mundir. Fram til
þessa hefur gengið vel að
afia hráefnis í húsin og
nægur kvóti er eftir til
áramóta. „Það er bara
spurningin um að fá‘ann”,
sagði Gísli.
Næstu sölur togaranna
eru, að Drangey Skjaldar
selur 27. september og
Hegranes Skagfirðings 17.
október.
Gamla löndunarhryggjan fékk aldeilis að finna fvrir því í síðustu viku og mátti nú ekki við
miklu. Sjómenn á Ströndinni eru hræddirum að einhvrn daginn geti hún hreinlega brotnað
í tvennt, þar sem hún er orðin ansi sigin í miðjunni.
Skagaströnd:
feykjur
Dýrgripur
barnakennarans
Laugardagurinn síðasti
var mikill spennudagur í
fótboltanum um allt land,
og fylgdust jafnt ungir sem
gamlir með af áhuga.
Á Ólafsfirði fór fram
dramatísk viðureign milli
erkifjendanna KS og
Leifturs. Þar var mættur á
völlinn áttræður barna-
kennari Rögnvaldur Möller,
með útvarpsviðtækið sitt
meðferðis. Bar hann það
ósjaldan vandlega upp að
eyranu ef eitthvað mark-
vert var að gerast á öðrum
völlum landsins í lýsingunni
á Rásinni. Það var engu
líkar en barnakennarinn
höndlaði þarna dýrgrip
mikinn í spennu dagsins.
Rögnvaldur setti skemmti-
legan svip á stuðnings-
mannalið Leifturs. Við
livert mark sem liðið
skoraði dró hann upp
neftóbakspontuna og veitti
á báðar hendur. En það var
með Rögnvald eins ögfieiri
Ólafsfirðinga að þrátt fyrir
góðan sigur Leifturs á KS.
verður hann að sjá á eftir
Iiði sínu niður í þriðju deild.
Gleðin í leikslok breittist í
sorg þegar fregnaðist af
óvæntum sigri Grind-
víkinga á Fylki.
Færeyingar bestir
Annars er það stjarna
Færeyinga sem skín hvað
skærast á knattspyrnu-
himninum í dag. eftir
glæstan sigur þessara
frænda okkar á Austurríkis-
mönnum á dögunum. Eins
og fregnast hefur er
Islendingur landsliðsþjálfari
Færeyinga. Sá heitir Pál!
Guðlaugsson og er frá
Vestmannaeyjum.
Páll þessi var Neista-
mönnum á Hofsósi innan
handar þegar þeir fóru í
æfingaferð til Færeyja sl.
vor. Páll fékk meira að
segja að vera með á einni
æfingunni og hefur líklega
bara haft gott af því. Að
minnsta kosti halda
gárungarnir því frarn að
þar hafi landsliðsþjálfarinn
lært þá leikaðferð til
fullnustu, sem dugði til
sigurs á Austurríkismönnum.
Löndunarbryggjan
„knölluö" í tvígang
Koma flutningaskipsins Jarls
til Skagastrandar í síðustu
viku var síður en svo
tíðindalaus. Olli skipið tals-
verðuni skemmdunt á gömlu
löndunarbryggjunni í tvígang
og þess á milli strandaði það
inn í höfninni. Nokkrar
skemntdir urðu einnig á stefni
skipsins í þessum atgangi.
Allhvöss suðvestanátt var
á Skagaströnd á þriðjudag
þegar Jarl kom. Ókyrrt er í
þessari átt í höfninni,
sérstaklega utarlega og var því
ákveðið að færa það inn að
löndunarbryggjunni. Lendingin
við bryggjuna tókst hins
vegar ekki betur en svo að
stefnið lamdist utan í enda
bryggjunnar, nokkrirstaurar
og hluti úr steyptri þekjunni
brotnuðu, og grjót úr
uppfyllingunni hrundi út í
höfnina.
Þegar Jarl var síðan á leið
úr höfn um miðnættið, vildi
ekki betur til en svo að skipið
strandaði 15-20 metra frá
viðlegukantinum og sat þar
fast í þrjá tíma. Með ýmsum
tilfæringum, m.a. taugum í
tvo vörubíla og úr spili
skipsins í land. tókst að losa
það. En það gerðist þá svo
snögglega að siglt var á
talsverðri ferð á viðlegu-
kantinn að nýju og skemmdist
hann nokkuð.
Tjón á hafnarmannvirkjum
á Skagaströnd á þessuni
sólarhringi atburða í síðustu
viku, nemur fieiri hundruð
þúsundum króna.
GÆÐAFRAMKÖLLUN
BÓKABró
BRYNJARS