Feykir


Feykir - 19.12.1990, Blaðsíða 3

Feykir - 19.12.1990, Blaðsíða 3
45/1990 FEYKIR 3 Nálægð Krists Nálægðjóla - Jólin nálgast. Dagarnir eru orðnir stuttir í orðsins fyllstu merkingu og þau viðfangsefni sem við sköpum okkur fyrir jó/in, mýmörg. Við erum kannski farin að óttast að okkur takist ekki að Ijúka öUu því sem við höfum sett okkur fyrir áður en þau ganga I garð. Og í eyrum okkar glymur hvatning til þess að kaupa hitt og þetta tilþess að auka á jólagleðina. Al/snægtir okkar flestra eru slíkar að það er orðið erfitt að gera dagamun. Við sem eldri erum munum e.t.v. eplalykt sem ,jólalykt”. í dag eigum við líklega enga slíkajólalykt. En jólin sjálf hafa samt ekki breyst hvað innihald þeirra varðar. Frásögnin um Maríu og Jósep sem koma til Betlehem og fá þar hvergi húsaskjól nema í gripahúsi. Og þar fœddist barnið sem allt snýst um. En þeir fyrstu sem verða vitni að þessum merka atburði eru fátœkir fjárhirðar. En þeir fá að sjá dýrð himnanna og verða vitni að því að vitringar fœra gjafirsínar. Þessi frásaga er greypt í minni okkar flestra frá barnœsku. Hughrif hennar fœra okkur kannski til baka til bernskuminning- anna og við gefum tilfinningum okkar meira rúm en oftast ella. Það er hollt. Við erum oft hrædd við að láta tilfinningar í Ijósi, en það ættum við kannski að gera I ríkara mœli, ekki síst ef þær stuð/a að því að gera umhverfi okkar hlýrra og betra. Já Hann kom fyrir löngu síðan en Hann er, þvísvo sagði Hann síðar: ,,Sjá ég er meðykkur alla daga”. Hann Jesús Kristur kom og gaf okkur hlutdeild I Guðsríki. Hann sigraði dauðann svo við getum sagt með Hallgrími Péturssyni ,,Dauði ég óttast eigi, aflþitt né vaídið gi/r. I Kristí krafti ég segi: Kom þú sæ/l þá þú vi/t." Og Hann kenndi og gaf fordæmi sem ekki er komist hjá að sjá. Að elska Guð og náungann eins og sjálfan sig sagði hann hið æðsta boðorð. Ennþá spyrja margir eins og lögvitringurinn forðum, ,,hver er þá náungi minn. Mínir nánustu, þeirsem ég ber ábyrgð á? Vissulega, en þó miklu meir en það. Hver sem þarf hjálpar við. Þetta er stórt og ótæmandi verkefni. En við sem lifum I þeim allsnægtum að við getum vart gert okkur dagamun í mat og drykk erum vissulega aflögufær til þess að rétta bágslöddum hjálparhönd. Því miður verður að játa það að ráðsmennska okkar í hinum svokölluðu ríku löndum hefur stuðlað að því að gera hinarfátækuþjóðir þriðja heimsins ennþá fátækari. Við Islendingar finnum sennilega ekki mjög til sektar í þeim efnum, en þótt svo sé erum við þó jafnskyld að leggja okkar að mörkum. En ekki leysum við alla neyð með peningum. Það eru margir í umhverfi okkar sem þarfnast aðstoðar, líka fjárhagslega, en ennþá fleiri sem þarfnast kærleika. Núna fyrir þessi jól eru þau of mörg sem kvíða jólunum. Ekki kannski vegna þess að þau geti ekki ha/dið þau vegna peningaleysis, heldur hitt að þau eiga engan að tilþess að deila jólagleðinni með. Orsakir þessa geta verið af margvís/egum toga og verða ekki taldar hér. En ég vil spyrja þig. Þekkir þú ekki einhvern slíkan sem þú ættir að gleðja? Það þarf kannski ekki svo mikið til, aðeins þau finni að einhver er tilsem stendur ekkiá sama um þau. Jesús talar tæpitungu- /aust um þessa hluti í síðari hluta 25. kafla Mattheusarguðspjalls. Sjálfsagt finnum við öll hve margt við vanrækjum, af því góða sem við ættum að gera, látum við meirihlutann ógert. í jólaguðspjalli Jóhannesar segir ,, Orðið varð hold og hann bjó með oss fullur náðar og sann/eika, og vér sáum dýrð hans, dýrð sem sonurinn eini á frá föðurnum”. Hann talar einnigum Krist hið sanna Ijós sem upplýsir hvern mann er kom nú í heiminn, og að heimurinn þekkti hann ekki. Og einnig að þetta Ijós skín ímyrkrinu og myrkrið tók ekki á móti því. Ef við litumst um I heimi okkar er vissulega margt fagurt að sjá. Og þegar við g/eðjumst yfir öllum Guðs gjöfum h/jótum við að sjá alla möguleikana sem eru fyrir hendi sem að gælu gert heim okkar ennþá betri, en verk myrkursins eru stundum ennþá augljósari. Þau berast okkur æ ífréttum um styrjaldir, hungursneyð, ofbeldi og hverskonar ójöfnuð manna ámilli. Hinn eigingjarni skammsýni maður er sífellt að safna sér auði og völdum og gleymir því að hann fær einungis notið hins rangfengna auðs örskamma stund. Okkur er skammtaður tími, mislangur eins og gengur en þegar á a/lt er litið harla stuttur. Við höfum haft kærleiksboðskap Krists meðal okkar í hartnær 2000 ár. Er það ekki furðu/egt hve mjög menn virðast elska myrkrið. Það eru margar hugmyndir á ferli í samtímanum sem eiga að stefna að því að þroska manninn, auka honum sjálfstraust, og ve/líðan og hjálpa honum að yfirstíga ýmsar þrautir. Jafnvel eru ýmsir gripir sagðir gagnast til þess að ná þessum markmiðum. Auðvitað er gott að rækta og aga sinn innri mann, en hætt er við því að ef kærleiksboðskapur Krists er ekki inni í myndinni verði allar þessar tilraunir árangurslítil naflaskoðun, og hver er þá náungi minn. Kemur hann mér við? Nei eftir sem áður er það Kristur sem er von heimsins, en því eins gagnast kenning hans að við tökum hana alvarlega. Það er ná/ægð Krists sem skiplir máli. Hallgrímur Pétursson orðar það svo: ..Hjartað bæði og húsið mitt heimili veri Jesús þitt”. Mættum taka á móti honum er hann kemur nú á þessum jó/um, þá fyllist okkar fátæklega hjarta fögnuði sem lætur okkur syngja með eng/askaranum. ,,Dýrð sé guði í upphæðum og friður á jörðu með mönnum sem hann hefur velþóknun á”. Burt hryggð úr allra hjörtum nú kom heilög g/eði svo í trú vér Jesú faðmað fáum, og elskan heit af hjartans rót þeim himingesti taki mót nteð /ofsöngshljómi hátum. H. Hálfdánarson. Guð gefi okkur öllum gleði ogfrið á heilögum jólum.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.