Feykir - 19.12.1990, Side 4
4 FEYKIR 45/1990
„Ég fæ 20-30 pakka, því ég á svo marga afa
og Ömmur” Almenn tilhlökkun smáfólksins til jólanna
.IóIin nálgast og |)eir fullorðnu
undirbúa komu jólanna af
kappi. Það er skrúbbað og
bónað og víða þarf eitt eða
annað að bæta og endurnýja.
Þröng er í verslunum og
niargir eru að leita að
einhverjum jólagjöfum. Víðast
er vs og þys. En þeir sem hvað
mest blakka til jólanna eru
börnin. Þau bíða þeirra með
óþreyju, en trúlega þó mest
gjafanna, sem eru orðnar svo
snar þáttur i jólahaldinu.
í síðustu viku var haldið á
fund nokkurra krakka á
Blönduósi og rætt við þau uni
jólin. Hvað finnst krökkunum
skemmtilegast og hvers vegna
höldum við jól.
Kristófer Kristjánsson 7
ára var að leika sér með
Hjalta þegar mig bar að
garði. Hann hlakkaði líka
mest til þess að opna
pakkana. „Svo ferég í kirkju
ájólunum af því að þá á Jesú
afmæli. Svo fer ég á jólaball
og á litlu jólunum svngjum
við og dönsum. Það finnst
mér gaman að gera og
þangað koma oft jólasveinar”,
sagði Kristófer.
Maríana Pálsdóttir 7 ára
vonaðist til þess að fá
vasadiskó í jólagjöf. Sléttu-
úlfarnir eru hennar uppá-
haldshljómsveit. Maríanna
sagðist fá um 10 jólapakka.
„Við borðum góðan mat á
jólunum og svo förum við í
kirkju. Það finnst mér
gaman. Eg hlusta á prestinn
og sönginn og stundum syng
ég með”, sagði Maríanna.
Ragnar Frosti, Guðmundur Víðir og Ágúst Ingi.
Blaðamaður var búinn að
skrifa nöfn þeirra Sigríðar
lngu Viggósdóttur og Margrétar
Birgisdóttur í blokkina og
var farin að munda mynda-
vélina. þegar skólarútan
kom, og þar sem þær áttu
heima uppi í Túnahverfi
mátti ekki missa af henni.
Eftir voru nokkrir strákar
á vellinum, sem verið höfðu á
vappi þarna í kring ásamt
fleiri krökkum. Þeir vinirnir
Ragnar Frosti Frostason.
Guðmundur Víðir Guðmunds-
son og Agúst Ingi Agústsson
voru tilbúnir í viðtal. Víðir
sagðist nokkuð viss á þvi
hvað hann fengi marga
pakka. „Líka möndlupakk-
ann”, sagði strákur bak við
og strákarnir hlógu. Hins-
vegar sagði Víðir að það væri
svo margt sem væri gaman að
fá í jólagjöf, að það væri
ómögulegt að nefna eitthvað
sérstakt. Agúst Ingi vildi
helst fá rafmagnsbíl eða
bílabraut. Ragnar Frosti var
á sömu línu. Þegar þeir
félagar voru spurðir hvað
væri svona gott við jólin,
nefndi Ragnarsvínakjötiðog
gott að borða. Allir voru þeir
sammmála um að það væri
fínt að fá frí í skólanum, og
alveg yfirdrifið að gera vf'ir
jólin þó að menn þyrftu ekki
að standa í lærdómnum.
Hjalti Sigvaldason 6 ára
varð fyrstur á vegi mínum.
Hann hlakkaði mest til þess
að fá pakkana og vonaðist
eftir að fá sjóræningjaskip og
fleiri leikföng. „Ég fæ 20 til
30 pakka sagði Hjalti, af því
að égásvo margarömmurog
afa.” Hann sagðist vera
farinn að fá i skóinn og „það
fengu allir á heimilinu
happaþrennu í skóinn sinn í
morgun”, sagði Hjalti og var
mjög ánægður með það þó
litlum sögum færi af vinn-
ingunum.
Ragnar A/bertsson 8 ára
var að koma út úr tíma þegar
ég kom að skólanum. „Ég fæ
20 jólapakka og ég vona að
ég fái dfaugabanadót, og
þess háttar kalla”, sagði
Ragnar. Einnig vonaðist
hann til þess að fá leður-
jakkaföt. „Við höldumjólin
af því að þá fæddisl Jesú, og
þá fáum við gott að borða”.
sagði Ragnar.
Pétur Pétursson.
Pétur Pétursson, var með
það alveg á hreinu hvað langt
væri til jóla. og líka hvað
hann vildi helst fá íjólagjöf.
Míkrómatsín. heitir það á
útlenskunni, einhver undra-
leikföng samkvæmt auglýs-
Atli Freyr Kolbeinsson
sagðist viss um að fá að
minnsta kosti 10 pakka í
jólagjöf. Bílar væru vel þegnir
í pakkann, helst fjarstýrðir
rafmagnsbílar.
Helga Lára Sigurjónsdóttir
sagðist hlakka ósköp mikið
til jólanna. Mest langaði
hana til að fá barbíhús í
jólagjöf. Þegar hún varspurð
hvað væri skemmtilegast við
jólin, sagði hún aðfangadags-
kvöld: þá væru allargjafirnar
teknar upp.
ingunum í sjónvarpinu. Það
er með Pétur eins og aðra
krakka sem Feykir spjallaði
við að hörðu pakkarnir eru
vinsælli. „Kökurnar” sagði
Pétur þegar hann var
spurður hvað væri svona gott
við jólin.
Lára Kristín Jónsdóttir 8
ára sagði að sér þætti mest
gaman að borða jólamatinn
og opna jólapakkana. Hún
vildi líka fá vasadiskó eins og
vinkona hennar Maríanna.
„Við höldum jólin af því að
þá fæddist Jesú og þá förum
við alltaf í kirkju. Mér finnst
gaman að fara í kirkju en
stundum sofna ég í kirkjunni
því þarersvo mikil ró”,sagði
Lára Kristín.
MÓ.
Þegar Feykir leit við á
leikvellinum við barnaskól-
ann á Sauðárkróki síðdegisá
föstudag var þar ntikið af
börnum, enda skólinn búinn
þann daginn og þau að bíða
eftir skólarútunni. Krakk-
arnir notuðu tímann til að
leika sér, en það var samt vel
hægt að fá að spjalla við
nokkur þeirra.