Feykir - 19.12.1990, Side 5
45/1990 FEYKIR 5
Harpa Guðbrandsdóttir frá Sauðárkróki og Grímur
Sigurjónsson frá Steiná II í Ilúnavatnssýslu, nú húsráðendur á
Hveravöllum.
„Nei, það er ekki beint
jólalegt hérna núna. Gífur-
legur vatnselgur eftir hlýindi
og mikla úrkomu tvo síðustu
sólarhringa. Snjórinn er horfinn
að mestu", sagði Grímur
Sigurjónsson veðurathugunar-
maður á Hveravöllum í
samtali við Fevki á föstudag-
inn.
Grímur var þá nýbúinn að
koma annarri díselvélinni í
lag, en Hveravallahjónin
verða að geta bjargað sér upp
á eigin spýtur. I haust hefur
t.d. verið talsvert ólag á
neysluvatninu þar efra. vatns-
dæla slegið út og frosið fyrir
vatn.
Von var á Hafþóri Ferdín-
antssyni „Hveravallaskrepp”
með jólaglaðninginn á mánu-
dag, og bjóst Grímur við að
upp úr því færi að verða
jólalegt í hýbýlum og hugum
Hveravallabúa. „Annars líkar
okkur mjög vel hérna og við
höfum nóg fyrir stafni. Ég
dunda mér mikið við smíðar,
og gerði sérstaka ferð í haust
til að afla mér smíðaefnis.
Innivera mín gerir það að
verkum, að það lendir meira
á Hörpu aðsjá um útiverkin,
veðurathuganirnar, enda á
það ágætlega við hana að
vera úti, þar sem hún er
haldin mun meiri hreyfiþörf
en ég”.
Nokkuð gestkvæmt hefur
verið á Hveravöllum, sér-
staklega í byrjun rjúpna-
veiðitímabils í haust. En ekki
eru allar gestakomur þangað
jafnvel þegnar. Stundum
verða þau Hveravallahjón.
Grímur Sigurjónsson og
Harpa Guðbrandsdóttir, fyrir
næturraski þegar illa útbúnir
ferðalangar þarfnast aðstoðar.
Þannig þuri'tu þau á
dögunum að aðstoða tvo
jeppamenn sem lentu í
hrakningum skammt vestur
af Hveravöllum, höfðu fest
jeppa sinn í miðjum Oddnýjar-
hnjúk, í 1000 metra hæð.
Leiðindaveður var og mesta
mildi að þeir fundust. höfðu
þá gengið um 5 kílómetra
illa skóaðir og voru orðnir
aðframkomnir. Það tók tvo
daga að ná upp jeppanum.
NAFNVEXTIR
Samvinnubókarinnar
eru nú 10.75%
ÁRSÁVÖXTUN
er því 11.04%
HAGSTÆÐ
ÁVÖXTUN í
HEIMABYGGÐ
INNLÁNSDEILD
KAUPFÉLAGS
SKAGFIRÐINGA
RAUNÁVÖXTUN
Samvinnubókarinnar
árið 1989 var
5.01%
Félagsskapur um atvinnuupp-
byggingu í deiglunni á Króknum
Hópur áhugamanna um at-
vinnumál og atvinnuþróun á
Sauðárkróki liefur ákveðið að
kanna áhuga fyrirtækja á
þátttöku í félagsskap um
sérstakt atvinnuátak í bænum.
Aformað er að það standi yfir
í tvö ár og ráðinn verði
starfsmaður í þann tíma. Sex
cinstaklingar eru frumkvöðlar
í þessu efni: Arni Ragnarsson
arkitekt, Einar Einarsson
Steinullarverksmiðjunni, Ingi
I'riðbjörnsson Króksverki, Guð-
mundur Guðmundsson Tré-
smiðjunni Borg og Jón E.
Friðriksson og Þórólfur Gíslason
er starfa hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga. Stofnfundur er
áformaður í Safnahúsinu
fimmtudaginn 17. janúar nk.
Hugmyndin er að vinna að
frekari eflingu atvinnulífs í
bænum með stofnun nýrra
fyrirtækja og með nýjum
starfsgreinum hjá starfandi
fyrirtækjum. Til jöfnunar
aðstöðu fyrirtækja við þátt-
töku í félaginu er ráðgert að
skipta framlögum þeirra í
hlutafjárframlög og rekstrar-
framlög, Hlutafjárframlögin
yrðu jöfn kr. 50 þúsund en
rekstraframlögin mismunandi
eftir stærð fyrirtækja. Fyrir
þau sem hafa 21 starfsmann
eða fleiri 350 þúsund, 11-20
starfsmenn 200, 6-10 100 og
þau sem heíðu færri en fimm
starfsmenn greiddu 50 þúsund.
Aðrar kvaðir fylgja ekki
þátttökunni og þau fyrirtæki
sem gerðust aðilar hefðu
forgang um þau tækifæri og
möguleika sem upp kæmu.
Auk þess er gert ráð fyrir að
leitað verði aðstoðar Iðnaðar-
ráðuneytis og Byggðastofn-
unar. I bréfi sem áhuga-
hópurinn hefur sent 90
fyrirtækjum í bænum segir
einnig, að öllum sé ljóst að
þörf sé nýjunga í atvinnulífi
og þjónustu í bænum, til að
útvega ungu dugmiklu fólki
starfsvettvang. Aukning at-
vinnutækifæra með nýjum
fyrirtækjum og eða stækkun
þeirra sem fyrir eru, hefði
margfeldisáhrif sem kæmi
öllu atvinnulífinu til góða.
Trausti á Sauðanesi um hitann:
„Verð að koma upp
baðstrandaraðstöðu”
„Já, þetta er alveg á
heimsmælikvarða. Það þarl
víst að fara alveg suður undir
Portúgal til að finna annan
eins hita og hér. Ég held ég
verði að fara að koma upp
baðstrandaraðstöðu hérna”,
sagði Trausti Magnússon
vitavörður á Sauðanesi við
Siglufjörð.
Sauðanes hefur verið heit-
asti staður í Evrópu nú í
nokkra daga _ og hitinn
komist í 14 stig. Á sunnudags-
morgun var hann 13 stig og
þá þurf'ti að fara allt suður til
Madeira til að finna sam-
svarandi hitatölu. Trausti
segir að þegar hann sé beint
að sunnan komi þetta heita
loft í kjölfarið, en strax og
hann fari vestur fyrir minnki
hitinn. Þannig féll hann um 9
stig fram að hádeginu á
sunnudag. Veðurfræðingar
spá annarri hitabylgju núna
upp úr miðri vikunni og þá
rýkur hitinn trúlega upp á
Sauðanesi aftur.
Ekki orðið jólalegt
á Hveravöllum