Feykir


Feykir - 10.04.1991, Side 2

Feykir - 10.04.1991, Side 2
2 FEYKIR 13/1991 ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Þórhallur Ásmundsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2. Sauðárkróki ■ PÓSTFANG: Pósthólf 4. 550 Sauðárkróki ■ SÍMI: 95-35757 95- 36703 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Jón F. Ftjartarson, Sr. Hjálmar Jónsson, Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson, og Stefán Árnason ■ BLAÐAMAÐUR: Magnús Ólafsson A-Hún., ■ AUGLÝSINGASTJÓRI: Hólmfríður Guðmundsdóttir ■ ÁSKRIFTAR- VERÐ: 100 krónur hvert tölublað: í lausasölu 100 ■ ÚTGÁFUDAGUR: Miðviku- dagur ■ SETNING, UMBROT OG PRENTUN: SÁST sf., Sauðárkróki. ■ Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Hafnarmál: Blönduósingar fá óvæntan glaðning Ekki er hægt að segja annað en úthlutun fjáneitinganefndar á 100 milljón króna auka- fjárveitingu á dögunum, hafi vakið undrun og reiði margra sveitarstjórnarmanna. Bæjar- stjórnarmenn á Blönduósi geta þó verið harla ánægðirog eru það, enda telja þeir sem gerst þckkja að þar með hafi Blönduósingum verið veitt það brautargengi í hafnargerð sem þeir hafa lengi barist fyrir; þrátt fyrir að ríkis- stjórnin eigi eftir að veita hlessun sína og samgöngu- ráðherra sætti sig ekki við úthlutunina. Af hálfu ríkisins verði sem sagt ekki staðnæmst við þessar 16 milljónir sem komu nú í hlut Blönduóss, heldur muni næstu árin renna mun hærri upphæðir í gerð brimvarnargarðs og bættra hafnarskilyrða á Blönduósi. Meiningin með aukafjár- veitingunni var að bæta það áfall sem loðnubrestur á síðasta vetri og slæmt atvinnuástand því samfara hafði. Fjárveitinganefnd fór ekki í öllu eftir tilmælum undirnefnda, og nokkrar loðnulöndunarhafnir fengu lítið sem ekkert í sinn hlut, svo sem Neskaupstaður, Seyðisfjörður, Akureyri og Raufarhöfn. í staðinn bætti fjárveitingnefnd stöðum inn í sem ekki voru á lista undirnefnda, s.s. Blönduósi, Ólafsvík og Patreksfirðri. Það var vegna þessa sem mestur kurrinn varð. Fjár- veitinganefnd grundvallar hafn- arpeninginn til Blönduóss á bakslagi sem verklok við Blönduvirkjun seinna á þessu ári hafi í för með sér. Auk þeirra 16 milljóna sem Blönduós fékk, komu 12 millj. í hlut Siglfirðinga, eða 28 af 100 milljónum hingað í kjördæmið. Einn þingmanna Norðurlands vestra á sæti í fjárveitinganefnd, Pálmi Jóns- son, en einnig eru í nefndinni landsbyggðarþingmennimir Sig- hvatur Björgvinsson Vest- fjörðum og Alexander Stefáns- son Vesturlandi. ‘ÞaCjjarávarp 9íjartans þaffáir ti(þárra jjöímörgu vina og vandamanna semgCöcicCu mig með 6Cómum, gjöjum og góðum óskum og áttu með mérgíaða stuncC í tiCejni 70 ára ajmceCis míns 2. apríC. ‘Kári Steinsson Stór stund í sögu Fjölbrautaskólans: Byggingasamningur um bóknámshúsið undirritaður Það var stór stund í sögu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki sl. föstudag, þegar undirritaður var byggingarsamningur uni væntanlegt bóknámshús milli menntamála- og fjármála- ráðuneytisins annars vegar og héraðsnefndar Skagafjarðar hinsvegar. Héraðsnefndir Hún- vetninga og bæjarstjórn Siglu- fjarðar treystu sér hinsvegar ekki til að skrifa undir samninginn að svo stöddu, þar sem þær hefðu ekki lokið fullnaöarumfjöllun uni hann. Gert er ráð fyrir og þess vænst að öll bygðarlög kjördæmisins verði áður en langt um líður aðilar að samningnum um bóknámshúsið. Menntamálaráðherra Svavar Gestsson, fjármálaráðherra Ólafur Ragnar Grímsson og framkvæmdastjóri héraðs- nefndar Magnús Sigurjóns- son undirrituðu samninginn sem gerir ráð fyrir 40% þátttöku ríkisins og 60% heimamanna. Fyrri áfangi bóknámshúss verði byggður á sex árum, eins og áður hefur komið fram í Feyki. Viðstaddir athöfnina voru nemendur, kennarar og fjöldi gesta, þar á meðal bæjarstjómarmenn og þing- menn kjördæmisins. Einum þingmanna voru færðar sérstakar þakkir við þetta tækifæri og hann reyndar talinn guðfaðir bóknáms- hússins; Ragnar Arnalds alþingismaður en hann er formaður bygginganefndar hússins. Það var Þorbjörn Arnason formaður skóla- nefndar fjölbrautaskólans sem komst svo að orði um Ragnar, en fram kom í máli Þorbjörns að hann óttaðist það að komandi kosningar séu að hluta til ástæðan fyrir því að önnur byggðarlög kjördæmisins hefðu ekki enn gerst aðilar að samningnum. Mikilvægi skólans fyrir allar byggðir kjördæmisins voru tíundaðar af ræðu- mönnum samkomunnar. Jón F. Hjartarson skólameistari varp önd léttar við lok athafnar, sagði að lang- þráður draumur væri í höfn og bauð síðan öllum við- stöddum að setjast að hlöðnu kaffiborði sem Héraðsnefnd Skagafjarðar veitti. Bygging bóknámshússins verður boðin út á næstu dögum. Samningurinn handsalaður: Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds formaður bygginganefndar bóknámshúss og bak við hann grillir í Þorbjörn Arnason formann skólanefndar. „Ber er hver að baki nema sér bróður eigi”. Stórkonsert í Miðgarði Vegagerð á Öxnadalsheiði: Höttur lægstur Verktakafyrirtækið Höttur sf. frá Fjarðarhorni í Bæjar- hreppi Strandasýslu var með lægsta tilboðið í helsta verkefnið í vegagerð á Norðurlandi vestra í sumar, uppbyggingu vegarins frá Giljareit að Grjótá á sýslu- mörkum. Þessi vegkafli á Öxnadalsheiðinni er um fjögurra kflómetra langur. Vegagerð- inni bárust 17 tilboð í verkið. Flest voru tilboðin undir kostnaðaráætlun, sem var 36.9 millj. Tilboð Hattar er 22.9 milljónir. Ýtan á Akureyri bauð 23,4 millj., Króksverk 26, Viggó V. Brynjólfsson á Hvamms- tanga 27,1 og Arnarfell á Ytri- Brekkum í Blönduhlíð 28,4 milljónir. Hagvirki var með langhæsta tilboðið, 48,7 miljjónir. Atta metra löng stein- steypt brú yfir Reiðgilið er ekki inni í útboðinu. Brúar- vinnuflokkur vegargerðar- innar mun annast smíði brúarinnar, undir stjórn Gísla Gíslasonar brúarsmiðs. Stórkonsert verður í Miðgarði laugardaginn 13. apríl kl. 20,30. Þar koma fram fjórir kórar: Karlakórinn Heimir undir stjórn Stefáns R. Gíslasonar, Rarikkórinn úr Reykjavík söngstjóri Violetta Smith, Rökkurkórinn söng- stjóri Sveinn Arnason og Söngbræður úr Borgarfirði söngstjóri Sigurður Guðmunds- son. Um 170 söngvarar koma fram á söngskemmtuninni og hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi að Ioknum söng.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.