Feykir - 08.04.1992, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Miklilax í Fljótum:
Smálax f páska-
matinn hjá Frökkum
„Fyrsta slátrun ársins hjá
okkur er í vikunni, 12-15 tonn
til Frakklands. Það er
páskamaturinn hjá þeim,
sérpöntun á smálaxi. Þetta er
Skagastrandarhöfn:
Þekjan
boöin út
Hreppsnefnd Höfðahrepps hefur
auglýst eftir tilboðum í gerð
steyptrar þekju á nýja
hafnargarðinn sem gerður var
í stað gömlu löndunar-
bryggjunnar á síðasta ári. Þá
er einnig óskað eftir tilboðum
í lagnir og lýsingu á planið.
Að sögn Magnúsar Jóns-
sonar sveitarstjóra er gert ráð
fyrir að framkvæmdir hefjist
í maí og á verkinu að verða
lokið í ágústbyrjun. Þetta
verður talsvert stór fram-
kvæmd og sú eina sem
ákveðin hefur verið við
Skagastrandarhöfn í ár.
að fara í gang hjá okkur og ég
býst við að það verði slátrað
tvisvar í viku í sumar”, sagði
Reynir Pálsson framkvæmda-
stjóri laxeldisstöðvarinnar Mikla-
lax í Fljótum.
Reynir sagði að þessi
sending gæfi um 250 krónur í
skilaverð á kílóið. Eldið hefði
gengið vel í Miklalaxi frá því
varmabúskapurinn komst í
gott lag um áramót. Heitu'
vatni frá Lambanesreykjum
er blandað í öll kerin sex í
Hraunakrók, og að auki er
varmaskiptir á fjórum þeirra
sem eykur varmanýtinguna
verulega. Settir verða varma-
skiptar á öll kerin.
„Fiskurinn hefur vaxið um
15-17% á mánuði, í stað þess-
að vöxturinn var ekki neinn
síðustu vetur, svo þetta er
aldeilis munur. Þetta lítur
þokkalega út og er allt annað
dæmi, þó peningamálin séu
enn erfið og við erum ekki
búnir að ná í skottið á okkur
með það”, sagði Reynir.
Stjórnsýslumiöstöð:
Bærlnn vill kaupa
gömlu kjörbúðina
Hæjarstjóm Sauðárkróks hefur
samþykkt að kaupa Gömlu
kjörbúðina á 23,5 milljónir,
undir stjórnsýslumiðstöð og
veitt bæjarstjóra heimild tilað
taka lán því viðvíkjandi. Búist
var við að aðild Byggða-
stofnunar að kaupunum yrði
tekin fyrir á fundi í gær, en
ákvörðun stofnunarinnar ræður
úrslitum í þcssu máli.
Talið er að viðgerð og
endurbætur Gömlu kjör-
búðarinnar sé hagkvæmari
kostur en nýbygging, og að
auki sé staðsetningin mikill
kostur. Kostnaðaráætlun sem
gerð hefur verið nemur um 70
milljónum að kaupverði
meðtöldu. Gert er ráð fyrir
að Byggðastofnun eigi 40%
eignarhlut í stjórnsýslumið-
stöðinni, Sauðárkróksbær 30%
og Héraðsnefnd 30%.
Þetta er hið frækna lið Tindastóls í stúlknaflokki sem uni helgina krækti bæði í íslands- og
bikarmeistaratitil í annað sinn. Afreka stúlknanna er frekar getið í frétt á 6. síðu.
mLjT \flr^MNJ[
■Ul JfP
Uppstokkun ípróttamála hjá Sauðárkróksbæ
Þriggja manna nefnd á vegum
Sauðárkróksbæjar hefur á undan-
förnum vikum og mánuðum
kannað breytingar á verkaskipt-
ingu félagsmálaráðs og iþrótta-
ráðs. Nefndin gerir í tillögum
sínum ráð fyrir að verkefni færist
í talsverðum mæli frá félagsmála-
ráði til iþróttaráðs. Ráðinn verði
sérstakur iþrótta- og tómstunda-
fulltrúi sem hafi yfirumsjón með
íþróttamannvirkjum bæjaríns en
stöður forstöðumanna við íþróttahús
og sundlaug verði lagðar niður.
Þá verði leitað eftir viðræðum við
Ungmennafélagið Tindastól um
að félagið annist rekstur íþrótta-
vallar og íþróttahúss eftir
skólatíma.
Snorri Bjöm Sigurðsson bæjar-
stjóri sem sæti á i nefndinni
ásamt Stefáni Loga Haraldssyni
og Birni Björnssyni, tekur skýrt
fram að ekki sé farið að fjalla um
tillögur nefndarinnar í bæjar-
kerfinu ennþá, engum hafi því
verið sagt upp störfum við
íþróttamannvirkin þó tillagan
feli það í sér. Varðandi þá
hugmynd að Tindastóll taki að
sér rekstur íþróttavallar og
íþróttahúss, sagði Snorri Björn
að svipað fyrirkomulag ætti sér
stað í mörgum öðrum bæjar-
félögum, og væri orðið algengt
rekstrarform varðandi íþrótta-
mannvirki í dag. „Okkur finnst
líklegt að ungmennafélagið
muni reyna að afla sér tekna með
því að leigja út eins mikið af
tímum til bæjarbúa og mögulegt
er”, sagði Snorri.
Tillagan gerir ráð fyrir að
málefni félagsmiðstöðvar, vinnu-
skóla og tengdrar starfsemi
heyri undir íþróttaráð. Á fundi
íþróttaráðs á dögunum sagðist
forstöðumaður félagsmiðstöðvar
óttast að íþróttastarfið mundi
kæfa starf félagsmiðstöðvar.
Pálmi Sighvatsson forstöðumaður
iþróttahúss spurðist fyrir um
hvort tillögurnar væru stefnu-
markandi fyrir bæinn í sambandi
við atvinnumál, en starfsmenn
íþróttamannvirkjanna átta að
tölu eru skiljanlega ekki kátir
yfir að eiga uppsagnir yfir höfði
sér. Samkvæmt tillögunum er
þeim sem endurráðnir yrðu
ætlað að starfa við íþrótta-
mannvirki bæjarins eða störf
tengd æskulýðs- og iþróttastarf-
semi bæjarins.
íþróttaráði hafði verið kynntar
tillögur þriggja manna nefndar-
innar á fundi þrem dögum fyrir
fundinn með starfsmönnum
íþróttamannvirkja. Þrátt fyrir
það gat ráðið ekki veitt
starfsmönnum þær skýringar
sem þeir kröfðust og voru
starfsmenn furðu lostnir yfir
þessum vinnubrögðum, segir i
fundargerð. Krafðist þá íþrótta-
ráðið þess að þriggja manna
nefndin legði fram greinargerð
um breytingar á rekstri íþrótta-
mannvirkja og rökstyddi ávinn-
ing bæjarins af þcint.
—ICTeHjif! hjDI—
Aðalgötu 26 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
S(MI: 95-35519 • BlLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
Bílaviðgerðir • Hjólbarðaverkstæði
RÉTTINGAR • SPRAUTUN
jDKlbilQvgrhlffdi
SÆMUNDARGOTU - SlMI 35141