Feykir - 08.04.1992, Side 2
2 FEYKIR 14/1992
Kemur út á miðvikudögum vikulega.
Útgefandi: Feykir hf. Skrifstofa: Aðal-
gata 2, Sauðárkróki. Póstfang: Pósthólf
4, 550 Sauðárkróki. Símar: 95-35757 og
95-36703. Fax: 95-36162. Ritstjóri:
Þórhallur Ásmundsson. Fréttaritarar:
Magnús Ólafsson A.-Hún., Eggert
Antonsson V.Hún. Auglýsingastjóri:
Hólmfríður Guðmundsdóttir. Blaðstjórn:
Jón F. Hjartarson, sr. Hjálmar Jónsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason. Áskriftar-
verð 110 krónur hvert tölublað.
Lausasöluverð: 120 krónur. Umbrot:
Feykir. Setning og prentun: Sást sf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.
Sameiningarmátturinn"
Nokkurrar sundurþykkju hefur gætt framtíðinni. Sem betur fer virðist
milli höfuðborgarsvæðis og lands-
byggðar um langan aldur. Menn spyrja
sig hvort eða hvenær verði breyting hér
á. Ef hinsvegar er litið til þess sem hefur
verið að gerast síðustu tvo áratugina úti
á landsbyggðinni, má alveg ímynda sér
að full sátt verði með landsbyggð og
höfuðborgarsvæði, kannski áður en
langt líður.
Því verður ekki á móti mælt að
landsbyggðin hafi gengið í gegnum
breytingaskeið síðustu 15-20 árin.
Samdráttur í landbúnaði og aukin
þátttaka sveitafólks í atvinnulífinu á
mölinni hefur breytt viðhorfum bæði
kaupstaðarbúans og bændafólksins.
Þessi blöndun á vinnumarkaðnum
hefur skapað þann anda að fólk er betur
meðvitað um það en áður, að öll lifum
við á gögnum og gæðum sjávar og
lands, hvort sem við búum í kaupstað
eða sveit, þó svo að störfin séu ólík og
margslungin og ekki mettuð fisklykt
eða grasilmi.
Svo virðist í dag að helsti
vaxtarbroddur atvinnulífs sé í nokkrum
byggðækjörnum út um landið, og hefur
Byggðastofnun verið falið að greina
hvaða svæði þetta séu sem hlúa skal að í
sveitafólkið gera sér grein fyrir þessu,
og margir Skagfirðingar t.d. trúa því að
þeir eigi eftir að búa á jörðum sínum
áfram og sækja vinnu á Krókinn,
kannski upp undir 70 kílómetra leið
daglega.
Einn hlutur er að gerast þessa dagana
sem staðfestir kannski þá sátt sem hefur
myndast milli kaupstaðar og héraðs.
Það er sameiginlegt verkefni bæjar-
stjórnar Sauðárkróks og héraðsnefndar
Skagafjarðar að standa fyrir byggingu
stjórnsýslumiðstöðvar á Króknum.
Einhvern tíma hefði þetta þótt saga til
næsta bæjar, en trúlega eru orsakir
þessa breytingarnar á landsbyggðinni
undanfarið.
Það er reyndar ekkert fagnaðarefni
að hnignunskeið þurfti til að hvetja
menn til frekari samvinnu. Að margra
áliti hefur jafnvægi náðst í atvinnu-
málum á lansbyggðinni, og hún þoli því
betur en höfuðborgarsvæðið þann
samdrátt sem nú eigi sér stað í
þjóðarbúinu. Það er samt vonandi að
stoðir atvinnulífs á höfuðborgarsvæðinu
bresti ekki, og enn um sinn örli því
talsvert á gömlu sundurþykkjunni milli
höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar.
Rikke Schults dýralæknir.
Mynd Örn.
Skagafjörður:
Trilla slitnar upp á
legufærum í Selvík
Nýr dýralæknir hefur hafið störf
Nýlega hóf Rikke Mark
Schults dýralæknir störf i
Skagafírði. Rikke Mark er
dönsk og lauk dýralækna-
námi í Kaupmannahöfn í
byrjun þessa árs. Hún býr í
Varmahlíð og er með
sjálfstæða starfsemi, en áður
hafði hún m.a. starfað sem
afleysingadýralæknir í Skaga-
firði.
Rikke segist ánægð með
þær viðtökur sem hún hafi
fengið hjá Skagfirðingum til
þessa því að jafnaði séu 4-6
útköll á dag. Hún hefur yfir
að ráða eina röntgentækinu
(fyrir skepnur) á Norður-
landi í dag, slíkt tæki er
mikilvægt ekki síst varðandi
beinbrot og til að greina
beinaskemmdir í hrossum.
Þá er Rikke að kaupa
svokallað blóðsýnitæki. I því
verður hægt að sjá á
nokkrum mínútum hvað þau
dýr skortir sem blóð er tekið
úr. Fram til þessa hefurþurft
að senda öll blóðsýni úr
skepnum til Reykjavíkur til
greiningar sem að sjálfsögðu
tekur talsverðan tíma. Með
tilkomu þessa tækis verður
því hægt að bregðast mun
fyrr við þeim kvillum sem við
er að eiga í hvert skipti.
Rikke segir að hennar
aðaláhugamál séu hestar og
eru hún og sambýlismaður
hennar, Höskuldur Þráins-
son tamningamaður nú að
leita sér að bújörð.
IUÁMSKEIÐ
í STEYPUTÆKMI
Námskeiö í steyputækni veröur haldiö á Sauðárkróki
föstudaginn 10. apríi 1992 kl. 9-17. Námskeiðsstjóri er Helgi
Hauksson frá Rb. Þátttökutilkynningar skulu berast í síma
95-35133 (Guömundur eöa Engilráð)
eigi síöar en í dag miðvikudaginn 8. apríl.
Nánari upplýsingar veitir undirritaöur
Byggingafulltrúinn Sauöárkróki.
Það óhapp átti sér stað
aðfaranótt mánudags að
legufæri trillu í Selvík á Skaga
biluðu og rak hana upp í fjöru.
Lán í óláni var að veður var
skaplegt og skemmdist trillan
nánast ekkert við lendinguna í
fjörukambinum. Þá vill það
cinnig til happs að eigandi
trillunnar, Gunnar Agústsson,
á skurðgröfu sem væntanlega
kemur að góðum notum við
sjósetningu.
Hásjávað var þegar trill-
una rak á land. Var hún því
langt upp í kambinum og
aðstæður erfiðar frá sjó.
Gunnari og fulltrúa trygg-
ingarfélagsins kom saman
um að heppilegast væri að
nota skurðgröfuna við að
sjósetja trilluna. Staðurinn er
rétt við árfarveg Selár og
þegar blaðið fór í prentun í
gær, var gott útlit fyrir að
tækist að fleyta trillunni eftir
nýgröfnum „skipaskurðinum”
út í Selvíkina, og ekki einu
sinni víst að veita þyrfti úr
Selánni til að auðvelda
sjósetningu.
TJALDVAGN!
Til sölu Camp-Let tjaldvagn
Upplýsingar í síma 95-35862.
t
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúö
og vinarhug viö andlát og útför
Bergs Guömundssonar
frá Nautabúi
Guö blessi ykkur öll!
Hólmfríöur Jónsdóttir
dætur, tengdasynir
Barnabörn og barnabarnabörn