Feykir - 08.04.1992, Síða 3
14/1992 FEYKIR 3
Samvinnubókin
/
•Nafnvextir 7% #Arsávöxtun 7,12%
•Raunávöxtun Samvinnubókar árið 1991 var 7,64%
INNLÁNSDEILD KAUPFÉLAQS SKAQFIRÐINQA
Engin „gúrkutíð"
1. apríl
Eins og lesendur hafa vænlan-
lega tekið eftir, var langt í frá
nein „gúrkutíð” í fréttaöflun
fvrir síðasta blað Feykis, enda
rak hver stórfréttin aðra á
síðum blaðsins. Það var líka
óvenjuþægilegt að vinna þessar
„stór” fréttir, af þeirri
einföldu ástæðu að þær þurftu
ekki að vera mjög nákvæmar.
Það hittist nefnilega svo
skemmtilega á að útgáfudag
bar upp á 1. apríl. Slíkt gerist
ekki hjá vikublaði nema í
besta lagi á 5 ára fresti, og því
var þetta kærkomna tækifæri
nýtt til hins ítrasta.
Þær voru þrjár fréttirnar í
síðasta Feyki sem flokkast
undir aprílgabb. Samkvæmt
því sem blaðiðhefurhleraðer
það samt aðeins fréttin um
Alexandersflugvöll og út-
llutning Mikalax sem er
hreinn uppspuni frá upphafi
til enda, sannleikskorn gæti
verið að finna í hinum
tveimur.
Þannig fékk Hlynur mán-
aðargreiðslustöðvun. Það mun
samt ekki vera svo vel fyrir
Hlynsmenn að til standi að
setja upp stjórnsýslumiðstöð
í húsinu, heldur munu
samningar vera komnir langt
á veg með að hún verði
staðsett í Ytri Kjörbúðinni
gömlu.
Blönduósingar verða víst
að halda áfram baráttu sinni
fyrir útvegun fjármagns í
brimvarnargarðinn. Einn af
farfuglunum, sem koma nú
til landsins hver af öðrum
daglega, hvíslaði þó því að
blaðamanni Feykis, að sú
útfærsla sem fram kom í
„gabb”fréttinni væri líklega
ekki langt frá lagi. Eitthvað
þessu líkt væri í deiglunni og
ómögulegt að segja nema það
yrði staðreynd. Kannski
hefur Feykir þarna ómeðvitað
bent á hentuga lausn fyrir
Blönduósinga, en væntalega
eru margir sem ekki taka í
sama streng um ágæti
hennar.
Eitt áttu þessar þrjár.
fréttir þó sameiginlegt, að
þær voru á jákvæðari
nótunum frá byggðalegu
sjónarmiði, enda munu margir
hafa orðið fyrir vonbrigðum
þegar þeir komust að hinu
sanna. Ekki er vitað um
neínn sem reiddist þessu
tiltæki blaðsins. Hafi svo
verið fyrirgefst það ábyggi-
lega fljótt.
Það þótti að sjálfsögðu tilhlýðilegt að bændakórinn Heimir tæki lagið við vígslu fjárhúsanna.
Fjölnota fjárhús vígð á Hólum
Síðastliðinn föstudag voru
vígð með viðhöfn nýju fjölnota
kennslufjárhúsin sem tekin
voru í notkun nýlega. Séra
Bolli Gústavsson vígði húsið
og bað blessunar því starfi
sem þar fer fram í framtíðinni.
Séra Bolli blessar bygginguna.
Karlakórinn Heimir söng og
fjölmörg ávörp voru flutt og
fögnuðu allir ræðumenn þeirri
glæsilegi kennsluaðstöðu sem
þetta nýja hús skapar bænda-
skólanum.
Meðal gesta var Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra,
sem ítrekaði í ræðu sinni þá
skoðun sína að Hólar ættu að
vera mekka íslenska hestsins
í framtíðinni, en hluti húsins
nýja er ætlað hrossum.
Fjölnota kennslufjárhúsið
er tæplega 600 fermetrar að
stærð. Upphaflega var gert
ráð f'yrir að það hýsti 340 fjár,
en því var síðan breytt í þá
veru að rými er fyrir 24 hross,
rúmlega 200 fjár í 12krómog
að auki er ein kró ætluð
geitum, ef tilraunir verða
gerðar með þann bústofn á
Hólum.
Framkvæmdir við húsið
hófust haustið 1990. Aðal-
verktaki er Trésmiðjan Borg
og Tengill sá um raflagnir.
Bragi Þór Haraldsson sá um
verkfræðivinnu og öflun
tilboða. Arkitekt var Magnús
Olafsson frá Akranesi.
Halldór Blöndal ráðherra
flytur ávarp.
Knattspyrnumenn til Hollands
í æf ingabúðir
Knattspymulið Tindastóls gerði
jafntefli við Stjörnuna syðra
um helgina, 1:1. Guðbrandur
skoraði snemma í seinni
hálfleik en Garðbæingar jöfn-
uðu tveim mínútum fvrir
leikslok. Um fyrri helgi tapaði
Tindastóll fyrir Þór á Króknum
1:3. Sverrir skoraði markið.
Pétur Pétursson aðstoðar-
þjálfari segist vera ánægður
með útkomuna í æfinga-
leikjunum til þessa, en leikið
hefur verið eingöngu gegn
liðum úr tveim efstu deild-
unum. A Iaugardaginn kemur
er von á liði Skallagríms frá
Borgarnesi í heimsókn á
Krókinn og ætti sá leikur að
gefa vísbendingu um stöðu
Tindastóls gagnvart öðrum
þriðjudeildar liðum.
Um miðja næstu viku
halda síðan Tindastólsmenn
í æfingabúðir til Hollands.
Dvalið verður við æfingar og
keppni í héraðinu Papendal,
þar sem m.a. hollenska
landsliðið hefur æfingaað-
stöðu. Leiknir verða tveir
æfingaleikir í ferðinni sem
stendur í vikutíma.
Bjálkahúsið á Hofsósi.
1