Feykir - 08.04.1992, Side 4
4 FEYKIR 14/1992
„Ekki gott að halda uppi mikilli þjónustu
þegar hún er ekki nýtt nema að litlu leyti"
Spjallaö viö Árna Blöndal umboösmann Flugleiöa á Króknum
Samgöngur með flugi hafa verið ómissandi þáttur í lífi landsmanna
um langt skeið. A seinni árum hefur hinsvegar dregið nokkuð úr
farþegafjölda á einstökum flugleiðum, augsýnilega vegna bættra
samgangna á landi. Sú af flugleiðum Flugleiða þar sem farþegum
hefur fækkað einna mest er Sauðárkrókur-Reykjavík. Heyrst hefur
að eftir að flug til Norðfjarðar var lagt niður, sé Sauðárkrókur orðinn
„krítíski” punkturinn í samgönguneti Flugleiða hér innanlands, enda
er greinilegt við endurnýjun innanlandsflugflota Flugleiða, með
kaupum á stærri vélum, að lögð verður áhersla á fjölfarnari leiðir í
framtíðinni, s.s. Akureyri, Vestmannaeyjar, ísafjörð og Egilsstaði.
Flugferðum hefur verið að fækka á Krókinn, voru 9 í fyrravetur, 10 í
fyrrasumar, 8 framan af vetri núna og sjö upp á síðkastið vegna
þjálfunar flugmanna, og með sumaráætlun eru aðeins ráðgerðar sex
ferðir. Utlit er fyrir að mánudagsflug verði fellt niður.
„Jú vitaskuld fáum við að
heyra frá fólki óánægju
vegna fækkun ferða. En það
er nú svona að það er ekki
gott að halda uppi mikilli
þjónustu þegar hún er ekki
nýtt nema að litlu leyti. En
við vonum að farþegafjöld-
inn aukist að nýju. Nýju
vélarnar koma trúlega til
með að laða fólk að. Þó ekki
sé urn langa ílugleið að ræða,
taka ferðirnar styttri tíma,
þar sem afgreiðsla verður
fljótari með nýju vélunum.
Svo þykja sætin einstaklega
þægileg”, sagði Arni Blöndal
umboðsmaður Flugleiða á
Sauðárkróki. Arni hefur
verið með umboð fyrir
áætlunarflug frá Sauðárkróks-
ilugvelli síðan 1965, en þá
lést Valgarð Blöndal faðir
hans, sem hafði haft umboðið
frá upphafi.
Grimm samkepp
um1960
„Þetta var aukavinna á
þessum árum, þegar gamli
flugvöllurinn var við líði, þar
sem nú er iðnaðarhverfi
bæjarins. Við rákum bóka-
verslun Kristjáns Blöndals
og höfðum þetta með. Það
þótti líka fara ágætlega
saman að sá sem væri með
umboðið fyriráætlunarflugið
sæi um að hafa flugbrautina
klára og annaðist radíóvið-
skipti”, sagði Arni.
Hvenær var gamli flug-
völlurinn byggður?
„Hann var tekinn í notkun
árið 1949 og 10 árum seinna,
þann 26. október hófst
hingað reglubundið áætlunar-
flug. Fyrstu árin voru engin
fjarskipti við völlinn, en 1950
Auglýsið i Feyki
þaó borgar sig
Árni Blöndal staddur í flugturni að senda veðurfregnir til Reykjavíkur
og Akureyrar.
Fært á Krúkinn
eins og vanalega
Flugbrautin var fyrst 800
metra, en síðan var hún lengd
smásaman, fyrst upp í 1200,
þá var farið að tala um að
Sauðárkróksflugvöllur yrði
alþjóðlegur flugvöllur. Það
varð staðreynd þegar brautin
var lengd upp í 1500 metra.
Og síðan höfum við dregist
þetta mikið aftur úr. Við
erum ekki lengur alþjóða-
flugvöllur”.
Þannig að Fondon - París -
Sauðárkrókur - New-York,
hefur þá heyrst?
„London - París - Sauðár-
krókur sögðu gömlu menn-
irnir, New-York kom seinna.
En það lentu hérna vélar úr
millilandaflugi. Mér er það
minnistætt einhvert síðasta
árið á gamla flugvellinum að
DDC-6 flugvél sem var að
koma frá Spáni lenti hérna.
Vellirnir fyrir sunnan og á
Akureyri voru lokaðir, en
Sauðárkróksflugvöllur opinn
eins og vanalega. Það var
heilmikið bras að koma fyrir
farþegunum og áhöfninni, 80
manns. Okkur tókst að
útvega nokkur herbergi í
bænum og gistingu í Varma-
var Sauðárkróks flugradíói
komið upp. Um það leyti var
mikil samkeppni í áætlunar-
flugi til Sauðárkróks. FI og
Loftleiðir bitust um farþeg-
ana, og héðan voru kannski
að koma og fara vélar með
fimm mínútna millibili. Þegar
ég tók við umboðinu flaug FÍ
hingað tvisvar eða þrisvar í
viku, og áætlunaflug hafði
verið reglubundið í nokkur
ár.
hlíð, en stærsti hlutinn fór
með rútu suður”.
Fatpegum útílgar
slraxogfærðversnar
Urðu miklar breytingar þegar
nýi flugvöllurinn var tekinn í
notkun ‘76?
„Þá fengum við víðara
aðflug og betri aðflugstæki.
Umferðin í kringum völlinn
var líka að aukast smásaman.
Mest varð aukningin í
lendingum talið á árunum
‘79-‘81. Lendingar hér ‘79
voru 1931 en'voru komnar
upp í 3296 árið eftir. Þetta
átti sér eðlilegar skýringar.
Flugáhugi mikill hafði gripið
um sig hérna á Króknum og
ungir og kröftugir menn í'
Flugfélagi Sauðárkróks stóðu
fyrir flugkennslu”.
Verðið þið mikið vör við að
bættar samgöngur á landi
hafi áhrif á flugið?
„Já við verðum vör við það
strax og færð versnar og
verra er að komast um, þá
fjölgar flugfarþegum. Og
fólk gerir miklar kröfur um
að komast lljótt og vel leiðar
sinnar. Flestir vilja fljúga
beint suður og finnst ómögu-
legt að þvælast til Húsavíkur
fyrst. Síðan er ekki óalgengt
að ef fresta þarf flugi um
einn-tvo tima, nenni menn
ekki að bíða og keyri suður”.
Vildi frekar veg yfir
ÞverárQall
Þannig að enn greiðari leið
suður, t.d. brú yfir Hval-
fjörðinn er ekki efst á
óskalista umboðsmanns Flug-
leiða á Króknum?
„Mér er nokkuð sama um
hana. Eg vildi miklu frekar
veg yfir Þverárfjallið, því það
mundi styrkja stöðu byggða
beggja vegna fjallsins”.
En hvernig er það við
minnkandi farþegaíjölda, eru
þá ekki gerðar meiri kröfur
til ykkar um að selja ferðir?
„Nei það er ekki hægt að
segja það, þó sú krafa sé
alltaf fyrir hendi því þetta er
jú umboðsskrifstofa. Flug-
leiðaumboðið gerir meira en
selja farseðla. Við veitum hér
upplýsingar um ferðamögu-
leika og verð á ferðum
innanlands sem utan og
erum fulltrúar Flugleiða
gagnvart viðskiptavinum hér
á svæðinu. Eg tel að
Flugleiðir hafi þjónað Skag-
firðingum vel á liðnum árum
og vona að svo geti orðið
áfram.
Það má líka benda á að
Flugleiðir hafa aldrei boðið
upp á eins mikla ferðamögu-
leika og núna, gífurlegt úrval
af alls konar pakkaferðum.
Þeir hjá Flugleiðum eru núna
að gera hluti sem mér hefur
alltaf fundist að þeir mættu
gera meira af. Við vorum
með ferðakynningu á Hótel
Mælifelli í vetur og fengum
mjög góð viðbrögð. A þriðja
hundrað manns mætti. Það
má bæta því við að enn eru
ósóttir happdrættisvinningar,
ferð til Amsterdam og einn
flugmiði til Reykjavíkur. Við
seldum miðann á lOOkrónur
og einhverjunt hefur yfirsést
að líta á miðann sinn”.
Hagstæðir
ferðamöguleihai
„Almenn sumarfargjöld
Flugleiða hafa aldrei verið
lægri og hægt er að bóka
ferðir til loka apríl. Betra er
að bóka fyrr en síðar þar sem
sætafjöldi er takmarkaður”,
segir Arni.
„Verð á bílaleigubíkum er
mjög hagstætt og flug ogbíll
því vænlegri ferðakostur en
nokkru sinni áður. í ferða-
bæklingi Flugleiða „Út í
heim” eru ítarlegar lýsingar á
þeim ferðakostum sem í boði
eru. Hótelverð eru hagstæð
og verðskrá fylgir þannig að
fólk getur strax reiknað út
ferðakostnaðinn og borið
saman þá kosti sem í boði
eru.
Hægt er að fá sumarhús
um alla Evrópu, einnig
bjóðast ferðir frá Kaup-
mannahöfn á suðlægarsólar-
strendur með dönsku ferða-
skrifstofunni Fridtidsrejser.
Má þar nefna Ítalíu, Spán,
Grikkland og Tyrkland. Þá
er boðið upp á sérfargjöld til
ýmsra borga Bandaríkjanna
og Kanada.
Fyrir þá sem Danmörk
freistar, má benda á að
Flugleiðir bjóða upp á
sumarhús frá Novasol í
Danmörku. Algengt verð
fyrir tveggja vikna dvöl í
sumarhúsi er 10-14 þúsund á
manninn. Flest rúma húsin
sex manns, en þau stærstu
sem taka 10-12 manns eru
tilvalin fyrir tvær fjölskylsur
sem ferðast saman. Sem
dæmi um verð má einnig
nefna að ferð fjögurra manna
fjölskyldu, foreldra með tvö
börn undir 12 ára aldri, ílug
og bíll í B-flokki í tvær vikur
kostar 27500 kr. á manninn.
Mikið er unr góða veitinga-
staði í Kaupmannahöfn og á
kvöldin er nóg um að vera
fyrir þá sem leita að fjörugu
næturlífi. Ekki þarf að vera
dýrt að gista í Kaupmanna-
liöfn, því Fluleiðir bjóða
úrval gististaða, á verði frá
950 íslenskum krónurn fyrir
manninn í tveggja manna
herbergi.
\