Feykir - 08.04.1992, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 14/1992
hagyrðingaÞáttur 117
Heilir og sælir lesendur
góðir. Margir liafa eflaust
fylgst með þeim tíðindum
sem urðu í ferðalagi Davíðs
forsætisráðherra til Israel.
Eflaust hefur lleirum en Jóni
Gissurarsyni, sem er höf-
undur að fyrstu vísu, blöskra-
að þær sakirsem bornar voru
á öldunginn Eðvald Hinriks-
son og ekki er séð fyrir
endann á því hver kemur til
með að dæma í því máli.
Kannski lífsins ljósgjafinn
lausnargjaldið sendi.
Eflaust deyfir dóminn þinn
drottins líknar hendi.
Önnur vísa kemur héreftir
Jón og segir þar af
samskiptum hans við æsku-
mann.
Stundum getur geðið hlýtt
grætt öll hjarta sárin.
Núna fæ ég bjart og blítt
bros í gegnum tárin.
Morgun einn er Jón kom á
fætur og gáði til veðurs sá
hann að þrátt fyrir hríðarfjúk
hafði birta dagsins unnið
verulega á náttmyrkrinu. Af
því tilefni varð til þessi vísa.
Leggst nú yfir landið hvítt
lítil hríðar muggan.
Ljósið hefur bjart og blítt
burtu hrakið skuggann.
Að liðnum degi er gott
útsýni frá Víðimýrarseli yfir
þá ljósadýrð sem skreytir
Skagafjörðinn og er tilefni
næstu vísu.
Verða ei með orðum skýrð
undur fögur kvöldin.
Ljósa þegar litadýrð
lamar myrkra völdin.
I viðtali sem eitt sinn
birtist í Morgunblaðinu var
það haft eftir Guðmundi
Magnússyni háskólarektor
að maður nokkur sem sótti
um prófessorsembætti hefði
fengið betri „vanhæfnisdóm”
en annar sem gegndi lektors-
stöðu. Eftir að hafa lesið
þessa speki orti Áskell
Jónsson svo.
Háskóli Islands er stofnun
með stolt
þar starfa þeir einir með
sóma
sem hafa, ef ölluerumveltog
hvolft
allgóða vanhæfnisdóma.
Um næstu vísu er það að
segja að þar mun höfundur
vera að lýsa einhverjum
kirkjunnar þjóni. Ekki veit
ég fyrir víst eftir hvern hún er
en hef grun um að hún sé
ættuð úr Skagafirði.
Hann á verði varla sefur
verkin njóta líðsins hylli.
Fermir, skýrir, giftir, grefur,
gerir sitthvað þess á milli.
Alltaf er gaman að
Tryggva Kvaran. Hann yrkir
svo um húsfreyju eina sem
hann hefur sennilega ekki
verið of hrifinn af.
Með henni aldrei svip ég sá
og svörtum heljar þjóni.
En hún er valin húsfrú hjá
Húsavíkur-Jóni.
Tryggvi hafði gaman að
glettast við Ólaf bónda á
Starrastöðum. Eitt sinn er
hann sá Ólaf bera konu sem
var ekkja á bakinu yfirá kom
þessi vísa.
Ekkjan reið á Ólafi
Ólafur hefur mörgu sinnt,
og enginn láir Ólafi
þó Ólafur borgi í sömu mynt.
Séra Tryggva fannst ekki
mikið til um frammistöðu
ritstjóranna í landinu er uppi
voru á hans tíð. Óbeit sína á
þeim lét hann í ljós með
þessari vísu.
Þú mátta eiga þetta lið
það mun við þig stjana,
sagði Drottinn Satan við
og sendi ‘onum ritstjórana.
Hallgrímur Jónasson kenn-
ari hélt eitt sinn ræðu á
kennaraskemmtun og talaði
um náungakærleika og hinar
hlýju hugsanir er menn ættu
að senda hveröðrum. Komst
hann meðal annars svo að
orði að ástin og elskuleg-
heitin ættu sér engin tak-
mörk í rúminu. Þegar
Jóhann Sveinsson frá Flögu
spurði þessi tíðindi, orti hann
svo.
Hallgríms löngun lifna fer
leynt í næturhúminu,
því takmarkalaus alveg er
ástin hans í rúminu.
Það mun hafa verið
sýslumaðurinn Árni Gísla-
son sem orti þessa mögnuðu
vísu um séra Gísla Thoraren-
sen.
Veit ég ekki verra fól
vera í heimsbyggðinni.
Andskotinn er eins og sól
hjá illmennskunni þinni.
Stúlka sótti fast að fá
ákveðinn mann með sér á
dansleik. Ekki vildi hann
þyggja hennar góða boð og
fór hvergi. Um það var ort
þessi vísa.
Magga stráði méli á kinn
manninn þráði að vonum.
En Magnús þáði ei munaðinn
mikið láðist honum.
Þegar Loftur Guðmunds-
son sendi Reykjavíkurbæ
svani að gjöf, sem við nánari
athugun reyndust vera tamdar
gæsir austan úr Ölfusi, orti
Sigurður Guðmundsson þessa
vísu.
Veröldin er víðsjál
og vindurinn ýmist blæs.
Mér sýndist hún vera svanur
en svo er hún bara gæs.
Þá er komið að lokum
þessa þáttar og Gissur í
Valadal leggur okkur til
síðustu vísuna.
Mín er ekki vonin veik
vermd af nægta brunni.
Kátur eins og lamb mér leik
lífs í náttúrunni.
Veriði sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
s: 95-27154
Ársþing UNISS í Árgarði
Afreksfólk á skólamótum UMSS taka við verðlaunabikurum
sínum: Sævar Örn Hafsteinsson Varmahlíðarskóla, Finnborg
Guðbjörnsdóttir Steinsstaðaskóla og María Valgarðsdóttir
Grunnskóla Sauðárkróks.
Stú Iknaf I okku rinn Islands-
og bikarmeistarar
Minni boltinn 2 körfum frá titli
72. ársþing Ungmennasam-
bands Skagafjarðar var haldið í
Árgarði 21. mars sl. og voru
gestgjafar UMF Framför.
Alls áttu um 65 fulltrúar frá
12 félögum rétt á þeingsetu og
voru það 50 fulltrúar frá 11
félögum sem mættu. Fjöl-
margir gestir sátu þingið,
Guðjón Ingimundarson heiðurs-
félagi UMSS, Pálmi Gíslason
formaður UMFÍ, Stefán
Konráðsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri ISI, Guðmundur
Gíslason starfsmaður ÍSÍ og
Magnús Sigurjónsson fram-
kvæmdastjóri Héraðsnefndar
Skagafjarðar. Edda Hermanns-
dóttir frá ÍSÍ flutti erindi um
stofnun samtaka um iþróttjr
fyrir alla.
Á þinginu var íþrótta-
maður Skagafjarðar 1991
útnefndur og var það Valur
Ingimundarson körfuknatt-
leiksmaður sem hlaut titilinn
að þessu sinni. Einnig voru
afhentar viðurkenningar fyrir
þrjú bestu afrek á Grunn-
skólamótum UMSS í frjálsum
íþróttum í vetur. Hákon Örn
Birgisson setti 13 Skaga-
fjarðarmet í sundi árið 1991
og fyrir það fékk hann
sérstaka viðurkenningu.
Skýrsla stjórnar og reikn-
ingar voru samþykkt athuga-
semdalaust. Fjölmargar til-
lögur voru lagðar fram og
samþykktar á þinginu. Má
m.a. nefna áskorun til
bygginganefndar íþróttahúss
í Varmahlíð að hefja byggingu
íþróttahúss nú þegar svo og
ákskorun til bæjarstjórnar
Sauðárkróks að ljúka byggingu
íþróttahúss á Sauðárkróki
sem fyrst.
Samþykkt var að taka þátt
í Unglingalandsmóti UMFÍ
sem haldið verður í Eyjafirði
dagana 10.-12. júlí í sumar.
Ymsar tillögur um skipulag
íþróttastarfsins, fræðslumál
og fjármál voru einnig
afgreiddar.
Stjórn UMSS er nú þannig
skipuð: Jóhannes Ríkharðs-
son formaður, Snæbjörn
Reynisson varaformaður, Helgi
Hjálmarsson gjaldkeri, Unnur
Pétursdóttir ritari og María
Sævarsdóttir meðstjórnandi.
I varastjórn eru Gunnar
Rögnvaldsson, Helga Frið-
björnsdóttir og Þórarinn
Thorlacíus.
SP.
Stúlknaflokkur Tindastóls í
körfuknattleik stóð sig frábær-
lega vel um helgina og
uppskar bæði bikar- og
íslandsmeistaratitil. Þetta er í
annað skiptið sem stúlkurnar
vinna þessi mót. Tindastóll
varð bikarmeistari í fyrra og
Islandsmeistari í hitteðfyrra í
stúlknaflokki. Þá voru strákar
í minniholta 11 ára aldurs-
flokki aðeins tveim körfum frá
íslandsmeistaratitli.
Bikarúrslitaleikur Tinda-
stóls og Keflavíkur fór fram í
Njarðvík áföstudagskvöldið.
Tindastóll vann leikinn með
yfirburðum 45:21. Birna
Valgarðsdóttir gerði 22 stig.
Kristín Magnúsdóttir 10 og
Inga Dóra Magnúsdóttir 5.
Urslit Islandsmótsins fóru
fram í Njarðvík daginn eftir.
Þar sigraði Tindastóll Snæfell
50:44, Njarðvík 54:36og ÍBK
50:12. Birna skoraði mest í
þessum leikjum, 47 stig,
Kristín 40 og Inga Dóra 37.
Minniboltaflokkur stráka
tapaði sínum fyrsta leik í
vetur og missti þar með af
titli. Keppnin fór fram í
Keflavík. Stigamunur réð því
að liðið hafnaði í 3. sæti, en ef
leikurinn gegn Njarðvík
hefði tapast með fimm stiga
mun eða minna, en ekki 8
stigum, hefði Tindastóll
sigrað. Tindastóll vann KR
49:37, Grindavík 58:42 og
Keflavík 42:36, en tapaði
fyrir Njarðvík 33:41. Ingi
Árnason skoraði 50 stig. Isak
Einarsson 32 og Birgir
Sigmarsson 31.
Níundi, tíundi og unglinga-
flokkur keppa í úrslitum
Islandsmótsins sem fram
fara í Laugardagshöllinni
um næstu helgi.
Þá eru hér til viðbótar
úrslit frá fyrri helgi. þegar
minni bolti stúlkna 12 ára og
yngri lék í Keflavík. Tinda-
stóll sigraði ÍR 33:15 og
UMFG 31:13, en tapaði fyrir
ÍBK 25:33. Rúna Birna
skoraði 40 stig, Dagbjört 19,
María Hjalta 7, Brynhildur 6
og Efemía 4.
SMÁAUGLÝSINGAR
ÞURFA AÐ
BERAST FYRIR
MÁNUDAGSKVÖLD