Feykir - 08.04.1992, Qupperneq 8
8. apríl 1992, 14. tölublað 12. árgangur
STERKUR AUGLÝSINGAMIÐILL!
Landsbankinn á Sauðárkróki
Afgreiðslutími útibúsins er alla virka daga frá kl. 9.15 -16.00 CimaS ocoeo - ff Landsbanki
bimi vdvvw i Wi Islands ■ Banki allra landsmanna
GÆOAFRAMKOLLUN >
Bardúsa á Hvammstanga:
Fræöslufundur um tóvinnu
Sigurður Guðjónsson með framhlaðning Jóns Ósmanns, eina
nafntoguðustu byssu landsins og Jón Pálmason með selabyssu
Ósmanns.
Skotfélagið Ósmann:
Byssusýning um helgina
Fræðslufundur um tóvinnu og
annan handiðnað var haldinn í
kaffisal sláturhúsa K.V.H.,
föstudaginn 3. apríl s.l. að
undangengnu fjögurra daga
námskeiði í vinnslu hrosshárs
sem hófst mánudaginn 30.
mars s.l. Námskeiðið sóttu 12
manns.
Framsögu á fundinum
hafði Lena Zachariasen,
Dæli í Svarfaðardal, en hún
var einnig leiðbeinandi á
námskeiðinu. Hún er þekkt
fyrir margvíslega handíð og
var hún með sýnishorn af
handiðn sinni á fundinum.
Einnig voru til sýnis sérstakar
snældur til að spinna hross-
hár sem Jóhann S. Guðjóns-
son á Hvammstanga smíðaði.
Ennfremur voru til sýnis
handprjónaðar peysur úr
lopabandi frá „Ull og bandi”
á Hvammstanga.
Námskeið þetta var það
fimmta sem Bardúsa hf.
stendur fyrir og þurftu þeir
sem sóttu námskeiðið nú að
greiða kennsluna sjálfir en
Bardúsa hf. greiddi annan
kostnað.
Bardúsa hf. hefur sótt um
styrk úr Smáverkefnasjóði
Framleiðnisjóðs og bundnar
eru vonir við að málið fái
jákvæða afgreiðslu þar.
Yfir 100 manns komu á
þennan kynningarfund og
þykir það sýna ótvírætt að
áhugi á handiðnaði sem
þessum er mikill í héraðinu
og líklegt að svona viðburður
sé til að efla hann enn frekar.
Stefnt er að rekstri Bardúsa
hf. á svipaðan hátt og var á
síðasta sumri. Húsnæði hefur
fengist hjá Kaupfélagi V-
Líkur eru á að rekstur
Byggingarfélagsins Hlyns verði
endurskipulagður og starf-
semi þess haldi áfram.
Fyrirtækið fékk í síðustu viku
mánaðarframlengingu á greiðslu-
stöðvun. Flestir viðskipta-
aðilar hafa samþykkt að gefa
eftir 75% af skuldunum sem
nema um 70 milljónum. A
grundvelli þessa hefur verið
ákveðið að verksamningi við
Hlvn um byggingu bóknáms-
húss Fjölbrautaskólans verði
ekki rift.
Þetta var ákveðið á fundi
Bygginganefndar bóknáms-
hússins og Héraðsnefndar sl.
fimmtudag. Jón F. Hjartar-
son skólameistari segir að
Húnvetninga í norðurenda
jarðhæðar að Höfðabraut 6.
Verður þar ágætis aðstaða
fyrir verslun og einnig
möguleiki á að vera með
starfsaðstöðu fyrir þá sem
vilja vinna að iðn sinni á
staðnum og leyfa ferðafólki
að sjá hvernig hlutirnir verða
ekki hafi komið fram neinar
vanefndir á samningi, síðan
bygging bóknámshússins hófst
á síðasta hausti. Samkvæmt
verkáætlun eíga framkvæmdir
að heíjast að nýju í
maíbyrjun og útlit fyrir að
hægt verði að hefjast handa á
tilsettum tíma. Meiningin er
að lokið verði uppsteypu
hússins á þessu ári.
A fjárlögum er veitt til
byggingar bóknámshússins
32 milljónum á þessu ári, en
að auki er fimm milljóna
afgangur frá síðasta ári.
Sveitarfélög sem að skólanum
standa eiga að leggja samtals
24,7 milljónir til framkvæmd-
anna í ár.
Bygginganefnd bóknámshúss:
Ákveður að rifta ekki
verksamningi við Hlyn
Ættarmótið frum-
sýnt á sunnudag
Æfingar eru nú langt komnar
á leikritinu „Ættarmótið”
sem verið er að setja upp á
Hvammstanga um þessar
mundir.
Þegar fréttaritara bar að
garði var verið að taka í gegn
einn þátt verksins og var
alveg ótrúlegt hvað leikstjór-
inn Emil Gunnar Guðmunds-
son virtist ná góðum tökum á
leikurum sínum.
Aætlað er að frumsýna
sunnudaginn 12. apríl n.k.
Sýningar eru svo fyrirhugaðar á
skírdag 16. apríl, laugardag-
inn 18. apríl, miðvikudaginn
22. apríl ogdansleikurá eftir.
Föstudaginn 24. apríl og
síðasta sýning heima verður
svo 29. apríl. Síðan verður
farið til Olafsvíkur 2. maí og
Stykkishólms 3. maí og er
það í fyrsta sinn sem farið er
með leikrit frá Hvammstanga.
E.A.
Félagar í Skotfélaginu Ósmann í
Skagafirði standa í stórræð-
um þessa dagana. Þeir ætla að
halda mikla byssusýningu í
Safnahúsinu á Sauðárkróki
um næstu helgi. Þar verða til
sýnis um 100 veiðibyssur,
bæði nýlegar og eldri byssur
sem hafa verið í eigu
Skagfirðinga.
Þekktust af eldri byssun-
um sem á sýningunni verða,
er án efa framhlaðningur
Jóns Ósmanns Magnússonar,
þess fræga ferjumanns við
Vesturós Héraðsvatna. Þessi
byssa er ein nafntogaðsta
veiðibyssa landsins, og einnig
verður á sýningunni sela-
byssa, afturhlaðningur, sem
Jón hafði nýlega eignast
þegar hann lést 1914.
Sýningin verður opin á
laugardaginn frá 10-20 og á
sunnudag frá 10-17. Selt
verður inn gegn vægu gjaldi,
300 krónum, og hagnaði ef
veiður skal varið til viðgerða
á framhlaðningi Jóns Ósmanns,
en skotfélagið sem stofnað
var á síðasta vori og telur 30
félaga, heitir eftir þessum
frægasta veiðimanni Skaga-
fjarðar.
„Þarna má einnig sjá
byssur Bjarna formanns og
Hríseyjar-Fúsa, sem var
þekktur veiðimaður í Vall-
hólma, faðir Marka-Leifa.
Flestar eru byssurnar í eigu
aðila á þessu svæði, en einnig
höfum við sótt byssur á
Blönduós og Akureyri, sem
„ættaðar” eru héðan. Mest
verða þetta haglabyssur,
rifflar og einnig nokkar
skammbyssur í púlti”, sagði
Jón Pálmason stjórnarmaðurí
Skotfélaginu Ósmanni.
Frá æfingu á Ættarmótinu.