Feykir - 28.04.1993, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Nemendur þriggja efstu bekkja Akraskóla í Blönduhlíð, 5.-7. bekkjar, skruppu í safnaferð
til Sauðárkróks í byrjun vikunnar. Krökkunum hefur verið kennt talsvert um myndlist í
skólanum í vetur, og var tilgangur ferðarinnar sá að kynnast þeirri listgrein nánar. Litið
var inn hjá myndlistarmanni í bænum og í Safnahúsinu kom kennari þeirra upp sýningu
á nokkrum verkum úr Listasafni Skagafjarðar. Fyrir nemendunum lá síðan að vinna
verkefni varðandi það sem fyrir augu bar í safnaferðinni.
Stóra - Gröf ytri í Skagafirði:
Starfsemi deildar Unglinga-
heimilis ríkisins hefst bráðlega
Áður en langt um líður
hefst starfræksla deildar
Unglingaheimilis ríksins í
Stóru - Gröf ytri í Staðar-
hreppi í Skagafirði. Ung-
lingaheimilið hefur tekið
húsnæðið á leigu og verið
auglýst eftir starfsfólki við
heimilið, en reiknað er með
12 stöðugildum. Á Stóru -
Grafarheimilinu verða vænt-
anlega 3 -5 vistmenn eftir
aðstæðum hverju sinni og
þar vistaður verst staddi
hópur unglinga þjóðfélags-
ins í lokaðri deild, ungling-
ar sem ekki hafa getað nýtt
sér þær meðferðarstofnan-
ir sem fyrir hendi eru.
Að sögn Einars Gylfa
Jónssonar forstjóra Ung-
lingaheimilis ríkisins hefur
verið rætt við hreppsnefnd
Staðarhrepps og verður starf-
semin sem þarna fer fram
væntanlega kynnt fyrir íbú-
um í nágrenninu. Einar Gylfi
sagði að sáralítið væri um
það að fólk væri að agnúast
út í þá starfsemi sem Ung-
lingaheimilið ræki, en vist-
heimili væru staósett inni í
íbúðarhverfum á höfuðborg-
arsvæðinu í mun meira ná-
býli en fyrirhugað væri í
Skagafirðinum.
Vistmenn í Stóru - Gröf
verða þar vistaðir gegn vilja
sínum á lokaðri deild eins og
áöur segði og munu dvelja
þar eins lengi og ástæða þyk-
ir. Vissulega sagði Einar að
sú hætta væri yfirvofandi að
þeir reyndu að strjúka, en
mjög ströng gæsla yrði á
heimilinu.
Sveinn Allan Mortens
framkvæmdastjóri Svæðis-
stjórnar hefur unnið að und-
irbúningi fyrir stofnun ung-
lingaheimilisins í Stóru - Gröf,
en Sveinn er fyrrverandi
starfsmaður Unglingaheimil-
is ríksins. Sáralitlar lagfær-
ingar þarf að gera á húsnæð-
inu áður en starfsemin hefst.
Tilboð í Syðraplanið opnuð:
Hagvirki/Klettur með
langlægsta tilboðið
Hagvirki/Klettur var með lang-
lægsta tilboðið í gerð nýs
Syðraplans sem Haínarstjórn
Sauðárkróks bauð út nýlega.
Tilboð Hagvirkis var tæp-
lega 27 milljónir, eða 69% af
kostnaðaráætlun sem nam
38 milljónum. Fimm tilboð
bárust í verkið.
Lárus Einarsson var með
næstlægsta tilboðið, tæpar 30
milljónir, þá kom Steypustöð
Skagafjarðar með 32,6 millj-
ónir, Völur sf með 33,9 millj-
ónir og Hagverk átti langhæsta
tilboðið, 45,2 milljónir.
Tæknideild Sauðáikróksbæjar
mun fara yfir tilboðin á næst-
unni og í framhaldinu verður
ákveðið hvaða tilboði verður
tekið. Engar umræður urðu um
tilboðin á bæjarstjórnarfundi í
gær, en ljóst að bæjarfulltrúar
hafa borið blendnar tilfmningar til
þeirra, og trúlega heldur kosið
að lægri tilboðin kæmu frá
heimaaðilum, og þá einnig frá
aðilum sem ekki hafa verið mikið
í fréttum vegna erfiðrar rekstrar-
stoóu, eins og Ld. Hagvirici/Klettur.
Nýja Syðraplanið verður 70
metra löng stálþilsbryggja.
Verkið felst í að reka niður 164
metra langan stálþilsvegg, koma
fyrir stögum og festingum fyrir
þilið og fylla í planið 10 þúsund
rúmmetra efnis. Auk þess á að
rífa trébryggjuna görnlu, steypa
164 metra langan kant með
pollum ofan á þilið og byggja
lítið rafmagns- og vatnshús.
Fiskiðjan/Skagfirðingur:
Tæplega 46 milljóna
hagnaður á síðasta ári
Tæplega 46 milljóna hagnað-
ur varð á rekstri Fiskiðjunn-
ar/Skagfirðings á síðasta ári,
og var bæði fiskvinnsla og
útgerð réttu megin við strik-
ið. Fyrirtækið er eitt örfárra
sjávarútvegsfyrirtækja er
skilaði hagnaði á síðasta ári.
Um 20% framleiðluaukning
var í frystihúsum Fiskiðj-
unnar milli ára.
I máli Einars Svanssonar
framkvæmdastjóra Fiskiðjunn-
ar á aðalfundi KS kom fram að
í raun hefðu rekstrarskilyrði
verói lakari á síðasta ári en árið
á undan, talsvert erfiðari en bú-
ist var við og er einkum urn að
kenna gengisfellingu á haust-
dögum. Erfiðleikunum hefði
hinsvegar verið mætt með
greiðslum úr verðmiðlunar-
sjóði, en slíkum greiðslunt yrði
ekki til að dreifa á þessu ári og
því væri ljóst að versnandi
rekstrarskilyrði, svo sem 10 -
15% lækkun afurðaverðs kæmi
af fullum þunga á þetta ár.
Sagði Einar að fyrirtæki í sjáv-
arútvegi væru rekin meó tapi í
dag, og því nokkuó ljóst að af-
komutölur eins og fyrirtækið
sýndi á síðasta ári tilheyrðu
gærdeginum.
Bæjarstjóm Sauðárkróks haíu-
aði í gær forkaupsrétti á hlutafé
í Skagfirðingi hf. Var því fagnað
á bæjarstjómarfundinum aó staða
fyrirtækisins væri það góða að
bæjarsjóður væri laus við að taka
þátt í hlutafjáraukningu, en neydd-
ist ekki til þess eins og venju-
legast hefi gerst hingað til.
—ICTch^íI! hpl— Aðalgötu 24 Sauðárkrðki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA SíJfTbílaverkstæði
Æ # m rn m sími: 95-35141
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Bílaviögeröir • Hjólbaröaverkstæöi
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 RÉTTINGAR • SPRAUTUN