Feykir - 22.09.1993, Qupperneq 3
32/1993 FEYKIR3
Slasaður
fálki finnst
í leitum
Heilsugæslustöðin á Blönduósi
tekin formlega í notkun
Særður fálki fannst í seinni-
göngum á Auðkúluheiði fyrir
helgina. Það var Soffía Jó-
hannesdóttir frá Holti í Svína-
dal sem fann fálkann, kast-
aði yfír hann úlpu og náði
honum þannig.
Fálkanum var komið strax
í hendur Ævars Pedersen fugla-
fræðings á Náttúrufræðistofnun.
Að sögn Ævars var fulginn
það mikið særður á væng að
ekki reyndist unnt að koma
fuglinum til heilsu á ný og
lifði hann skammt.
„Sárið leit mjög illa út. Við
erum ekki búnir að kryfja
fulginn en við fyrstu sýn virtist
sárið geta verið eftir byssu-
skot“, sagði Ævar. Alltaf er
töluvert um að komið sé með
særða fálka til Náttúrufræði-
stofnunar. Aætlað er að um
1000 fálkar séu í landinu.
Nýja heilsugæslustöðin á
Blönduósi hefiir verið tekin í
notkun. Hún er til húsa á jarð-
hæð viðbyggingarinnar við
Héraðshælið, sem verið hefúr í
smíðum síðasta áratuginn.
Gólfflötur hússins er 525 fer-
metrar. Þar af er væntanlegu
apóteki ætlaðir tæpir 100 fer-
metrar en reiknað er með að
starfsemi apóteksins muni
flytjast þangað á næsta ári.
I tilefni þessa áfanga var opn-
unarhátíð haldin sl. laugardag.
Við það tækifæri var Sigursteinn
Guðmundsson yfirlæknir heiðr-
aður, en hann hefur verið yfir-
læknir Héraðshælisins á Blöndu-
ósi í þrjá áratugi. Gunnar Ric-
hardsson formaður stjómar
heilsugæslu og sjúkrahúss greindi
frá því að stjómin hefði fengið Ei-
nk Smith listmála til þess að mála
mynd af Sigursteini og Jón ísberg
sýslumaður greindi ffá störfúm
Sigursteins í héraðinu í stuttu
ávarpi. Þá afhjúpaði eiginkona
héraðslæknisins, Birgitta Vil-
helmsdóttir málvericið.
Við athöfnina var greint frá
mörgum góðum gjöfum sem
stofnuninni hafa borist á undan-
fömum mánuðum, m.a. höfðu
nokkurkvenfélög o.fl. gefið full-
komið fæðingarrúm. Við athöfh-
ina vom fleiri gjafir afhentar m.a.
gaf Krabbameinsfélag A.-Hún.
hjartalínutæki og verður annað í
heilsugæslustöðinni á Blönduósi
en hitt á Skagaströnd. Útibú ís-
landsbanka á Blönduósi gaf
lækningatæki og Grímur Gísla-
son afhenti gjafabréf að banka-
bók sem í em um 800 þúsund
krónur. Þetta er sá veraldlegi auð-
ur sem systumar Ingunn og Stef-
anía Sveinsdætur létu eftir sig, en
þær vildu lítt nota það fé sem þær
fengu ffá Tryggingastofnun á sín-
um efri ámm til þess að búa sér
betra ævikvöld. Var gjöfin afhent
með þeim ummælum að hún
mætti verða til þess að búa öldr-
uðu fólki betri ytri skilyri en þær
systur vildu njóta.
Sauðárkróksbær
fjármagnar gegnum
verðbréfamarkað
Sigursteinn Guðmundsson héraðslæknir og Birgitta Vilhelms-
dóttir við málverkið.
Bæjarsjóður Sauðárkróks
hefur gert samning við Kaup-
þing Norðurlands varðandi
skuldabréfaútboð bæjarins.
Bærinn mun nú beina Iáns-
fjárþörf sinni í auknum mæli
í gegnum verðbréfamarkað
Kaupþings á næstu misserum.
Að sögn Snorra Bjöms
Sigurðssonar bæjarstjóra hafa
mörg sveitarfélög beint fjár-
mögnun sinni í gegnum verð-
bréfasjóði á undanfömum ámm
og það komið ágætlega út,
fjármagnskostnaðurreynst ívið
lægri með þessu móti en að
slá lán í gegnum bankana.
Sem kunnugt er hefúr bæjar-
sjóöur Sauðárkróks um langt
skeið stutt vemrlega við upp-
byggingu atvinnulífsins í bænum.
Hefúr þar varið vel yfir 100 millj.,
í hlutafé í ýmiss fyrirtæki s.s.
Steinullarverksmiðjuna, fisk-
vinnslufýrirtækin, Loðskinnogti]
uppbyggingarFjölbrautaskólans.
Atvinna!
Húsfélag Stjómsýsluhússins á Sauóárkróki óskar
eftir starfsmanni til almennra skrifstofústarfa
Um heilsdags starf er aó ræöa og þurfa
umsækjendur að getaó hafió störf sem fyrsL
Nauösynlegt er að umsækjendur hafi reynslu í að
vinna á tölvu (ritvinnslu) og æskilegt er að þeir hafi
reynslu í skrifstofústörfúm.
Umsóknarfrestur er til 1. október nk. og skal
umsóknum skilað til undirritaós, sem einnig gefúr
nánari upplýsingar um starfió.
Fyrir hönd Húsfélags Stjómsýsluhússins
Snorri Bjöm Sigurðsson bæjarstjóri.
BRYUJARS
-ávalt í fararbroddi!
PRESSUM Á BOLI!
Þú kemur með myndina,
viö ljósritum hana, í þá
stæró sem þú óskar og
pressum á bolinn!
Minnum einnig á
ljósritunarþjónustuna,
Ijósritum bæöi svart/hvítt
og í lit. Ótrúleg gæói!
BÓKABÚÐ
Athugið! Athugið!
20 % afsláttur af öllum vörum í eina viku.
Full búð af nýjum haustvörum fyrir dömur og herra.
Verslið í heimabyggð!
Visa Spíirtíl fataverslun/skóbúð Eurocard
Til okkar liggur leibin f/AMkfÁÁU