Feykir - 22.09.1993, Síða 7
32/1993 FEYKIR7
Frá þessari stundu spunnust þræðir
vináttu og virðingar sem aldrei
roíhuðu, þó langt gæti orðið milli
samfunda. Þau vináttubönd er
Dúddi frændi minn hnýtti við sitt
samferðafólk voru sterk og hald-
góð. Það var margt sem tengdi
okkur saman, sérstaklega á mínum
bams- og unglingsárum. Við vor-
um sveitungar. Ég í sveit hjá Gunn-
laugi bróður Dúdda og ungur eign-
aðist ég vináttu Steinunnar móður
þeirra. Við deildum herbergi sum-
arpart í Hátúni. Síðari hluta æfi
sinnar bjó Steinunn á Amtmanns-
stígnum í Reykjavík og þangað
lágu leiðir margra Skagfirðinga,
ættingja og vina. Þar var ég aufúsu-
gestur. Steinunn var mikil ættmóð-
ir, til hennar lágu allir þræðir í gleði
og sorg.
Dúddi erfði augljóslega marga
sína kosti ffá móðurinni, en faðir
hans var löngu látinn er ég kom til
sögu, en hann var úr hópi hinna
kunnu Keflavíkursystkina í Hegra-
nesi.
Dúddi bjó allan sinn búskap á
Syðra-Skörðugili, ásamtkonu sinni
Sigríði Júlíusdóttur, bömum og
síðar dóttur og tengdasyni. Dúddi
tók við Skörðugili er afi minn og
faðir hættu þar búskap, en áður
hafði langafi minn búið þar frá því
á öldinni sem leið. Já, það var því
margt sem tengdi okkur saman.
Sigurjón Jónasson á Syðra-
Skörðugili, hinn eini sanni „Dúddi
á Skörðugili" var landskunnur
hesta- og gleðimaður. Raunar
skagfirskur héraðshöfðingi gleð-
innar og gáskans, þó alvömmaður,
neíhdur í sömu andrá og hesta-
mennska og gæðingar, söngur og
stemmur. Dúddi var elstur hinna
þekktu systkina sem kennd em við
Hátún á Langholti. Öll þekkt fyrir
dugnað og myndarskap.
Það atvikaðist svo að faðir minn
og Dúddi, drengimir ffá Skörðu-
gili, lágu saman á Sjúkrahúsi Skag-
firðinga síðustu vikumar. Dúddi
haldinn ólæknandi sjúkdómi, mætti
örlögum sínum af miklu æðmleysi
og bjartsýni. Þakklátur fyrir lífs-
gjafimar í fögm héraði. Hann fór
mikið sjúkur af sjúkrahúsinu í sjón-
varpsviðtal við Ólöfu Rún Skúla-
dóttur. Slíkt gera engir meóal
menn. Þátturinn tekinn ámm of
seint. Þó eitthvert besta sjónvarps-
efni sem komið hefur úr Skaga-
firði. Dúddi andaðist örfáum stund-
um effir að þátturinn með honum
var sýndur í sjónvarpinu. Hann
lauk ævinni í sömu andránni og
hann gladdi alla Skagfirðinga og
fjölmarga landsmenn. Það var hon-
um líkt að kveðja sína samtíð með
þessum hætti. Svanasöngur Dúdda,
óður manns sem var einstakur í
sinni röð eins og allt hans líf.
Hann ávarpaði mig ævinglega
meó sama hætti og getur í upphafi
þessarar greinar. Það em mikil for-
réttindi að hafa átt slíkan mann að
ffænda og sveitunga. Frænda minn
kveó ég eins og um var samið, með
hestaskál, og verð ekki á bílnum
þann daginn.
En lokakveðjan verður eins og
upphafið. Því allt hefur endi.
„Vertu sæll frændi“.
Hörður Ingimarsson.
Ókeypissmánr
Aðstaða fyrir hross!
Vantar aðstöðu fyrir hross í vetur.
Upplýsingar í síma 36473 eða
35711.
Til sölu!
Til sölu hjónarúm á krónur 15
þús. skápur undir hljómflutn-
ingstæki á krónur 3000, telpnahjól
á krónur 3000 og nokkrar tegundir
af dekkjum, sumar- og vetrardekk.
Upplýsingarí síma 36694.
Til sölu Subam station árgerð
1986. Bíll í góóu ástandi.
Upplýsingar á kvöldin í síma
35065.
Bændur - Hestamenn!
Til sölu nokkrar velættaóar
unghryssur með fyli undan
Hrafni 802 frá Holtsmúla.
Upplýsingar gefur Símon í síma
36538.
Herbergi til leigu
Til leigu lítið herbergi á
góðum stað í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 95-35846
og 95-35530.
Svefnbekkur óskast!
Óska eftir að kaupa tvo vel
með fama unglingasvefnbekki,
með rúmfataskúffu, yfirhillu
og skáp. Upplýsingar í síma
38177.
Bíll til sölu!
Til sölu Subaru árgerð 1987,
ekinn 87 þús. km. Upplýsingar
í síma 95-35484.
Fjármálaþjónusta
fyrir ungt fólk
sem vill...
• vera sjálfstœtt ífjármálum
• létta sér skólastarfió
• frœöast um fjármálaheiminn
• gera tilveruna skemmtilegri
Vaxtalínan er ætluð fólki á aldrinum
13-18 ára. Þessi þjónusta býður upp á
veglega skóladagbók, fjármálanámskeið,
bílprófsstyrki, hraðkort, afsláttarkort,
vaxtalínuvörur og ýmislegt fleira.
BÚNAÐARBANKl ÍSLANDS
Útibúið á Sauðárkróki
Afgreiðslurnar Hofsósi og Varmahlíð
VAXTALINA N
FJÁRMÁLAÞJÓNUSTA
UNGLINGA
TRAUSTUR BANKI