Feykir - 22.09.1993, Qupperneq 8
22. september 1993,32. tölublað 13. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Einkareikningur,
framtíðarávísun
á góða ávöxtun, ódýran yfirdrátt
og víðtæka viðskiptaþjónustu!
Sími35353
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Mikið fjölmenni fylgdi Sigurjóni M. Jónassyni, betur þekktum sem Dúdda á Skörðugili, til grafar
er útför hans fór fram frá Glaumbæjarkirkju sl. íöstudag. Á sjötta hundrað manns var viðstaddur
athöfiiina og varð stór hluti mannfjöldans að láta sér nægja að fylgjast með í ágætis veðri utan dyra,
enda þarf stóra kirkju til að hýsa slíkan fjölda. Myndin sýnir hluta mannfjöldans, m.a. Karlakórinn
Heimi sem söng við útförina, en Dúddi var félagi í kómum til fjölda ára.
Sauðárkrókur vill verða eitt af
fimm reynslusveitarfélögum
Bæjarstjórn Sauðárkróks sam-
þykkti á fiindi sínum í gær að
fara þess á leit við félagsmála-
ráðherra að hann heimili að
Sauðárkrókskaupstaður verði
reynslusveitarfelag, en ákveðið
hefiir verið að koma á fót fimm
reynslusveitarfélögum í landinu
er starfi sem slík í fjögur ár.
Verður þar reynd verkaskipting
sú sem meiningin er að verði
milli ríkis- og sveitarfélaga í
framtíðinnL
Ef tillögur Umdæmisnefndar
Sambands sveitarfélaga í Norður-
landskjördæmi vestra um samein-
ingu sveitarfélaga í Skagafirði verði
samþykktar, telur bæjarstjóm Sauð-
árkróks eölilegt að verkefnisstjóm
ríksins taki upp viðræður við for-
ráðamenn hins nýja sameinaða
sveitarfélags í Skagafirði. Þær
viðræður mundu snúast um það
hvort Skagafjörður sameinaður
yrði eitt af fimm reynslusveitar-
félögum sem fýrirhugað er að starfi
á ámum 1995 - 1998.
, jEg held að Skagafjörður í heild
sinni yrði mjög kjörin eining til að
prófa í þessu verkefni sem reynslu-
sveitarfélögin em. Við emm hér
Leikfelag Akureyrar er þessa dag-
ana á Ieikferðalagi um Norðvest-
urland með barnaleikritið Ferðin
til Panama, en það var fhimsýnt í
Grímsey á sunnudaginn. Ferðin
til Panama var sýnd á Hvamms-
tanga og Skagaströnd í gær, í dag
verður hún sýnd á Blönduósi og í
Varmahlíð, á morgun á Sauðár-
króki og á föstudag fá Siglfirðing-
ar og Hofsósingar að njóta sýning-
arinnar. I frétt frá LA segir að hér
sé á ferðinni ævintýrasýning fyrir
börn á öllum aldri.
Leikritið hefur leikhópur LA
unnið upp úr sögum eftir Jonash,
sem er kunnastur þýskra bamabóka-
höfunda um þessar mundir. Hefur
frægð hans borist víða, einkum fyrir
sögumar um litla bjöminn og tígris-
dýrið. Hafa þrjár af sögum hans
með fjölbreytta og margþætta
þjónustu og það yrði vafalaust for-
vitnilegt að vita hvemig samvinna
bæjarfélagins við sveitimar í kring
mundi þróast“, sagði Snorri Bjöm
Sigurðsson bæjarstjóri í samtali við
Feyki.
komið út á íslensku og byggir leikrit-
ið mest á þeirri fyrstu, Ferðinni til
Panama. Þar segir frá því þegar litli
bjöminn finnur í ánni fljótandi kassa,
sem lyktar upp úr og niöur úr af bön-
unum. Við nánari athugun virðist
kassinn vera frá Panama. Vinimir
ákveða aó þetta sé draumalandið
þeirra og þá hefst ferðin til fyrir-
heitna landsins, ferð sem aldrei viiðist
ætla að taka enda, en á leiðinni lenda
þeir í alls kyns ævintýrum og hitta
ýmsa kúnstuga karaktera.
Með helstu hlutverk í leiknum fara
Dofri Hermannsson, Sigþór Albert
Heimisson, Anna María Gunnars-
dóttir og Aðalsteinn Bergdal. Ingunn
Jensdóttirer leikstjóri sýningarinnar.
Anna G. Tómasdóttir er höfundur
leikmyndar, búninga og dýragerva.
Ingvar Bjömsson er Ijósahönnuður.
Leikfélag Akureyrar:
Sýnir Ferðina til Panama
á Norðvesturlandi
Mjög léleg gæsaveiði
Fjölmargar gæsaskyttur sem
lögðu leið sína í Skagaljörð og
Húnavatnssýslur um helgina
höfðu lítið upp úr krafsinu.
Gæsin Iét ákaflega lítið sjá sig og
er ástæða þess sú að gróður er
enn í góðu ástandi á hciðum og
ber í fullum þroska. Gæsin hefúr
því nóg úr að moða í
heimkynnum sínum á heiðunum
og Ieitar því lítið niður í byggð.
Samkvæmt því sem
tíðindamenn blaðsins fregnuðu
vom þeir margir skurðimir sem
legið var í um helgina, til að
mynda mun hafa verið skytta í
hverjum skurði á bæ einum í Hegra-
nesinu. Menn sáu þar virkilega
ástæðu til að vera varir um sig. Og
ef að vottur af þeirri gráu sást á
flugi var kyrrð næturinnar roftn af
hljóðum frá kúlnaregni, líkast því
þegar kvikmyndir margar greina
frá orustum á vígvellinum. En allt
mun þetta hafa orðið til lítils. Það
þótti víst bara nokkuð gott að fá
tvær- þrjár gæsir yfir alla helgina.
Verkalýðsfélagið Fram
í stað tveggja félaga
Síðari umræða um sameiningu
Verkamannafelagsins Fram á
Sauðárkróki og Verkalýðsfelags-
ins Ársæls á Hofsósi fór fram á
aðalfundi Fram sem haldinn var
í fyrrakvöld. Sameiningin var
samþykkt og er stefiit að því að
frá henni verði endanlega gengið
á framhaldsaðalfundi sem
væntanlega verður haldinn fyrri
hluta næsta mánaðar. Kjör-
nefhdir munu taka til starfa á
næstu dögum þar sem gerðar
verða tillögur um skipan fólks í
stjórn og önnur trúnaðarstörf
fyrir felagið.
Verkakvennafélagði Aldan á
Sauðárkróki hefúr ekki ljáð máls á
þátttöku í þessum samruna verka-
lýðsfélaganna í Skagafirói. Að sögn
Áðalheiðar Amadóttur formanns
félagsins var gerð samþykkt á
félagsfúndi 19. október á síðasta
hausti. Þar kemur lfam að félags-
menn telja hagsmunum sínum betur
borgið í fjölmennu félagi verka-
kvenna sem Aldan er, en sameinuðu
félagi í Skagafirði. Þá frábáðu
verkakonur sér afskipti Alþýðu-
sambands Norðurlands af málinu
og töldu ekki viðeigandi að sam-
bandið væri að skipta sér af málum
sem þessu, þar sem að Verka-
kvennafélagið Aldan hefði ekki
æskt þess. Aðalheiður segir félaga í
Öldunni vera 428 í dag. Að vísu séu
þeir ekki allir á vinnumarkaði
ennþá, en samt fúllgildir félagar.
Þess má geta aö félagar í hinu
nýja sameinaða félagi, sem mun
heita Verkalýðsfélagið Fram, verða
647 og er þar miðað við síðustu
ársskýrslu félaganna.
Verð í lægri kantinum
Skagfirðingur seldi í gær 220 tonn
fyrir 22,8 milljónir. Meðalverð var
103 krónur á kflóið, sem er frekar
í lægri kantinum en ágætt samt
miðað við það sem markaðurinn
hefur gefið undanfarið. Forráða-
menn Skagfirðings telja að enn einu
sinni hafi framboð á roðflettum
fiökum frá Færeyingum dumpað
verðinu niður á markaðnum.
„Við erum ekki sáttir við að ár
eftir ár sé Færeyingum veittar veiði-
heimildir inni í okkar landhelgi og
síðan undirbjóði þeir okkur með
þessum hætti á mörkuðunum“, segir
Gísli Svan Einarsson útgerðarstjóri
hjá Skagfuðingi.
Skagftrðingur hélt heimleiðis í
gær. Þrír skipveijar urðu þó að dvelja
lengur í Bremerhafen. Þeir veiktust á
leiðinni til Þýskalands og voru lagðir
inn á sjúkrahús við komuna þangað.
Grunur þýskra lækna er að um
inflúensu eða vírus sé að ræða.
Oddvitinn
Ætli kennsla í afbrigðilegri
sálarfræði í Öldungadcfldinni
sé ætluð Gróu á Leiti?
Gæðaframköllun
BÖKABÚÐ
BKYUcXARS