Feykir - 28.09.1994, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Sterkar líkur á viðræðum
Loðskinns og Skinnaiðnaðar
Mál sútunarverksmiðjunnar
Loðskinns komu til umræðu á
fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks í gær. Engin afstaða var
þar tekin til þess hvort ganga
ætti til viðræðna við Skinna-
iðnað hf á Akureyri um sam-
starf eða hugsanlegan samruna
þessara fyrirtækja. Stjórn Loð-
skinns mun koma til fúndar í
dag og ræða þar hvort ganga
eigi til viðræðna við forsvars-
menn Skinnaiðnaðar. Taldar
eru miklar líkur á að ákveðið
verði þar að einhverskonar við-
ræður eigi sér stað milli þessara
aðila, þó svo að mjög þungt sé í
þeim Loðskinnsmönnum í garð
Akureyringanna eftir það sem
á undan er gengið.
Bæjarsjóður Sauðárkróks er
um 25% eignaraðili í Loðskinni
og er bæjarsjóður í talsverðum
ábyrgðum lijá fyrirtækinu. Ljóst
er að gremja bæjarstjómarmanna
vegna sölu SS á gæmm til Skinna-
iðnaðar er ekki síst tilkomin sök-
um þess að bæði SS og bæjar-
sjóður Sauðárkróks skipta við Bún-
aðarbankann. Bæjarstjómarmenn
töldu jafnvel að einstaka banka-
stjórar bankans hafi vitað af því að
SS ætlaði að selja Skinnaiðnaði g;er-
ur. A fundi bæjarstjómar með banka-
stjómm BI bám bankastjóramir
þetta af sér og í máli Bjöms Sig-
urbjömssonar formanns bæjarráðs
á fundinum í gær kom fram aó menn
teldu svör bankastjóranna full-
nægjandi og fundurinn með þeim
hefði verið hinn ánægjulegasti.
Anna Kristín Gunnarsdóttir bæjar-
fulltrúi var hinsvegar ekki á sama
máli og Bjöm. Sagðist hún ekki geta
séð að bæjarsjóður nyti þeirrar
fyrirgreióslu í bankanum sem hon-
um bæri í ljósi mikilla viðskipta
sjóðsins við bankann. Hún hefði
verið þeinrar skoðunar lengi og álit-
ið að best hefói verið fyrir bæjarsjóð
fyrir alllnokkm að færa annað, að
minnsta kosti hluta viðskiptanna.
Birgir Bjamason framkvæmda-
stjóri Loðskinns sagði í samtali við
blaðið í gær að geið hafi verið tilboð
í skinn víóa. Fyriitækið væri búið að
tryggja sér nokkurt magn, en ckki
nægjanlegt Geröhefóuveriðtilboð
sem enn hefðu ekki fengist svör við.
Birgir sagði ómögulcgt að segja til
um hvaða ákvöióun yiði tekin í dag,
en talið er líklegt að farið verði í
viðræður viö Skinnaiðnað.
Kornið sekkjaö beint af akrinum á Páfastöðum í fyrradag.
Helgi Sigurðsson bóndi á Reynistað, Sigurður Baldursson
bóndi á Páfastöðum og Baldur faðir hans.
Sjö bændur í Skagafirði rækta
korn með þokkalegum árangri
Laxeldisstöðin Miklilax:
Norðmennirnir
vilja ekki kaupa
Málefni Miklalax í Fljótum
virðast í óvissu á ný eftir fúnd
forráðamanna norska fyrir-
tækisins NFO Groppen frá
Lofoten og Byggðastofnunar í
síðustu viku. I»ar lýstu Norð-
mennirnir yfir áhuga á kaup-
um á Silfúrstjörnunni í Öxar-
firði, en Byggðastofúun er 30%
eignaraðili að þeirri stöð. Norð-
mennirnir kváðust að öðrum
kosti ekki til viðræðu um kaup
á eignum Miklax. Norsku
aðilarnir keyptu sem kunnugt
er fiskinn í stöðinni af Búnaðar-
bankanum í haust, en bankinn
átti veð í fiskinum.
Guðmundur Malmquist fram-
kvæmdastjóri Byggðastofnunar
scgir þetta tilboð Norðmanna ekki
svaravert, enda hafi stoíhunin eng-
an ráðstöfunarrétt á Silfurstjöm-
unni. „Mcnn geta ekki komið svona
og sagst vilja kaupa eitthvert fyrir-
tæki úti í bæ“, sagði Guðmundur
og að næsta skref í málinu sé að
Byggðastofnun og skiptastjóri í
þrotabúi Miklalax komi sér sam-
an um hvort stofúunin leysi til sín
eignir Miklalax eða leigði þær. Ef
ákvörðun yrði tekin um að leigja
stöðina yrði fyrst rætt við norsku
aðilana. Aðspuiöur um hvort Noið-
mcnnimir hafi haft í hótunum um
að slátra öllum fiskinum í Mikla-
laxi ef þeir fengju ekki Silfur-
stjömuna, kvað Guðmundur svo
ekki vera. „En menn reka vænt-
anlega ekki lengi það sem þeir
ætla sérckki aó eiga", sagði hann.
í hlöður nokkurra bænda í
Skagafirði er nú komið korn,
bygg sem sáð var í vor. Upp-
skeran er nokkuð góð víða og
virðist þessi tilraun sjö bænda í
firðinum hafa tekist vel, en til
þessa hafa menn almennt ekki
haft mikla trú á því að unnt
væri að rækta korn í Skaga-
firði. Eyfirðingar höfðu áður
eytt ótrú manna á kornrækt
Norðanlands og það var Eyfirð-
ingur sem þreskti korn bænd-
anna í Skagafirði, var hér á
ferðinni með vél sína á mánu-
dag Kornið stóð afsér nokkrar
frostanætur og grátt var niður í
byggð þegar þreskt var í fyrra-
dag. Byrjað var í Efra -Asi í
Hjaltadal og síðan haldið á bæ-
ina Reynistað og Páfastaði ofar
í firðinum.
Sáð var byggi á þessum bæj-
um í fyrrasumar. Bændur í Efra-
Asi og á Reynistað rúlluóu þá
bygggresið og létu ekki reyna á
hvort það þroskaðist. Sigurður
Baldursson á Páfastöðum var sá
eini sem lét það spretta til fulls
þroska, og tókst það þrátt fyrir
mjög kalt sumar í fyrra. Sigurður
var hinsvegar of seinn með að láta
þreskja komið, fékk ckki þreski-
vél í tæka tíð og lenti komið und-
ir snjó.
í ár tóku fjórir skagfirskir
bændur til viðbótar þátt í kom-
ræktartilraununum og einnig fóð-
urverksmiðjan í Vallhólmi. Flest-
ir bændanna sáðu í spildur sem
em um hektari að stærð. Sáð var
bæði tveggja og sex raða byggi
og kom það síðartalda betur út úr
þessum tilraunum. Blaðamaður
Feykis leit við þegar verið var að
þreskja komió á Páfastöðum í
fyrradag. Sigurður á Páfastöðum
og Helgi á Reynistað virtust mjög
ánægóir með uppskeruna, cn þó
hafði axið fokið nokkuð í storm-
inum fyrir helgina. Þeir bændur
sögðu ömggt að keypt yrði
þreskivél í héraóið fyrir næsta
sumar, þannig að unnt yrði að
þrckja komið strax og fyrsta frost-
nótt er afstaðin.
Af þessari tilraun er spamaður
bændanna einhvcrjir tugir þús-
unda. Byggið er stór uppistaða í
kjamfóóri fyrir mjólkurkýr, og
það kæmi ekki á óvart þó kýmar
yróu vitlausar í þctta fóóur eins
vel og það lyktar.
—ICTch^IH ft|Di—
Aðalgötu 24 Sauðárkróki
ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019
jm
bílaverkstæði
sími: 95-35141
Sæmundargata Ib 550 Sauðórkrókur Fox: 36140
Bílaviógeróir • Hjólbarðaverkstæói
RÉTTINGAR • SPRAUTUN