Feykir - 04.01.1995, Page 1
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Stefnir í hörku-
baráttu í próf-
kjöri framsóknar
Vel viðraði að þessu sinni til að kveðja gamla árið og fagna því nýja. Gamlársbrennan á Sauðár-
króki var að þessu sinni á gamla flugveilinum nýrst í iðnaðarhverfinu, hin myndarlegasta
brenna, og mikið fjölmenni var þar samankomið. Fyrstu merki þess að sól fer nú að hækka á lofti
sáust síðan í gær, þegar glottaði íyrir geislum hennar á hjambreiðum í Blönduhlíðarfjöllunum.
Innbrotafaraldur á Króknum
Talsverð harka hefur hlaupið í
prófkjör framsóknarmanna í
kjördæminu undanfarið, sér-
staklega eftir að aðili í Húna-
vatnssýslu gerði Páli Péturs-
syni þingmanni þá skráveifu
að birta í tvígang óskauppstill-
ingu í prófkjörinu þar sem
Páll var hreinlega ekki með,
Stefáni Guðmundssyni var þar
stillt á toppinn, Elín Líndal var
í öðru sæti, Magnús Jónsson í
því þriðja og Herdís Sæmudar-
dóttir Qórða. Þegar þetta birt-
ist leiddi PáU að því líkum í út-
varpsviðtali að þau Stefán og
EUn hefðu myndað blokk tíl að
losna við sig af listanum. Því
svaraði Stefán að bragði og
sagði að slíkt væri ekki uppi
hinsvegar hefði hann ákveðið
að verða við áskorunum stuðn-
ingsmanna sinna að berjast
fyrir fyrsta sætinu, og hann
hefði áhuga á því að leiða list-
ann í kosningunum í vor og á
næsta kjörtímabili.
Framsóknarmenn segja stöð-
una spennandi og ýmislegt gæti
gerst, þó virðist sú skoðun út-
breiddust innan raða framsókn-
armanna, eftir því sem Feykir
kemst næst, að ekki sé mikilla
breytinga að vænta varðandi
uppröðun á listann. Þó svo að
einhverjir aðilar í Húnþingi séu
ekki sáttir við Pál Pétursson hafi
Höllustaðabóndinn fyrrverandi
mikið fylgi víða um kjördæmið,
sérstaklega þó út til sveita, og
Páll sé þó sá þingmaður kjör-
dæmisins sem í mestum tengsl-
um sé við bændur. „Ég held að
mönnum finnist það sterkast fyr-
ir flokkinn að Páll verði áffam í
efsta sætinu", sagði maður úr
forystusveit flokksins í Skaga-
firði í samtali við Feyki. „Það
reynist trúlega Páli vel að hafa
fengið þessa áminningu nú.
Hann hefur verið svolítið litlaus
þetta kjörtímabil", sagöi annar
viðmælanda blaðsins.
Víst er að stuðningsmenn
Stefáns Guðmundssonar munu
hvergi gefa eftir í baráttunni um
efsta sætið, og breytinga sé þörf,
Stefán hafi staðið fulllengi í
skugga Páls. Mulningsvélin er
trúlega komin í gang.
Það velkist enginn í vafa um
að baráttan um efstu tvö sætin
muni standa milli Stefáns og
Páls. Elín Líndal er talin líkleg-
ust til að halda þriðja sætinu, en
sætaskipan frá 3.-5. gæti þá riðl-
ast eitthvað. Sverrir Sveinsson
gæti allt eins hreppt þriðja sætið
að nýju og þá er vel líklegt að
Magnús Jónsson á Skagaströnd
blandi sér verulega í baráttuna
um þessi sæti, jafnvel Herdís
Sæmundardóttir á Sauðárkróki.
Nokkuð fátítt mun vera að inn-
brot eigi sér stað skömmu eítir
kvöldmat, en það gerðist þegar
brotist var inn í vöruafgreiðslu
Magnúsar Svavarssonar á
Sauðárkróki rétt fyrir jólin.
Þjófarnir höfðu á annað hund-
rað þúsund krónur í peningum
upp úr krafsinu. Lögreglunni
hefur ekki tekist að upplýsa
hverjir voru þarna á ferð, en
hcfur ákveðna aðila grunaða.
Talsvert var um innbrot á
Sauóárkróki síðustu vikur ársins
og telur lögreglan að sömu aðilar
komi þama yfirleitt vió sögu, en
frekari upplýsingar og sönnunar-
gögn skortir. Ekki var um stórar
gripdeildir að ræða á þessum
stöðum. I tvígang var farið inn í
bílabúð KS, 8. og 13. desember
og í fyrra skiptið stolið 7500
krónum í peningum. Brotist var
inn í félagsmióstöðina í Gagn-
fræóaskólanum 17. desember og
teknar 15 þúsund krónur auk
nokkurra geisladiska. Þá var farið
inn í afgreiðslu Flugleióa á Alex-
andersflugvelli 24. nóvember og
hirtir þar geisladiskar úr pakka.
Einnig sáust merki eftir óboðna
gesti á bifreiðaverkstæðinu Aka,
en þaó ekki kært til lögreglu þar
sem ekkert var tekið.
Uppsagnirnar hjá Fiskiðjunni:
Líklega 25-30 manns án vinnu
Flest bendir til að 25-30
manns af þeim 168 starfs-
mönnum Fiskiðjunnar sem
sagt var upp vinnu í byrjun
síðasta mánaðar fái ekki end-
urráðingu. Af þeim sem höfðu
eins mánaðar uppsagnarfrest
eru 15 sem ekki verða endur-
ráðnir og síðan 5 af þeim sem
voru með þriggja mánaða
uppsagnarfrest. Síðan er 15-
20 manna biðlisti sem for-
ráðamenn fyrirtækins munu
reyna að útvega vinnu, en ljóst
að hluta þess hóps verður ekki
unnt að endurráða, að sögn
Einars Svanssonar fram-
kvæmdastjóra Fiskiðjunnar.
Vaktavinnu var hætt hjá fyr-
irtækinu nú um áramótin.
Pökkunarstöðin sem Fiskiðj-
an hefúr fest kaup á frá Japan
kemur að utan í lok næsta mán-
aðar og verður líklega komin í
gagnið í mars. Aðalhluti sam-
stæðunnar var ekki til á lagar og
kemur því stöðin seinna til af-
hendingar en reiknað var með í
fyrstu.
Að sögn Einars hafa veiðar
togaranna gengið vel að undan-
fömu og ríkir bjartsýni með að
gott verð fáist á mörkuðunum.
Framboð á fiski er ekki mikið,
fremur kalt hefúr veriö í Evrópu
undanfarið og ekki viðrað vel.
Það er því allt eins líklegt að
Skagfirðingur verði þaó evr-
ópskt útgerðarfyrirtæki sem
býður upp á mesta magn ferks
fisks á mörkuðunum í upphafi
árs.
—KXeHflil! — Aðalgötu 24 Sauðárkróki ALMENN RAFVERKTAKAÞJÓNUSTA yíMTJTjbílaverkstæði
Æ M m M m sími: 95-35141
FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA Sæmundargata 1b 550 Sauðárkrókur Fax: 36140
BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA SÍMI: 95-35519 • BÍLASÍMI: 985-31419 • FAX: 95-36019 Bílaviógeröir • Hjólbaröaverkstæöi RÉTTTNGAR • SPRAUTUN