Feykir


Feykir - 01.02.1995, Page 1

Feykir - 01.02.1995, Page 1
RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI Samanburður á rekstri þriggja sjúkrahúsa á landsbyggðinni: Sjúkrahús Skagfirðinga kemur mjög vel út Hádegisverðinum komið í bakka í eldhúsi Sjúkrahúss Skag- firðinga. Starfsstúlkur þar segjast ekki vera á jafhgóðum launum og ætla má af umfjöilun í fréttum undanfarið. Arnar og Örvar klárir í loðnuna í samanburði er Ríkisendur- skoðun gerði á rekstri þriggja sjúkrahúsa úti á landi vekur athygli hvað Sjúkrahús Skag- firðinga kemur vel út. Til að mynda er samanburður á rekstri eldhúss sjúkrahúsanna Sjúkrahúsi Skagfirðinga mjög í hag. Miðað við hvert stöðu- gildi á sjúkrahúsinu kostar rekstur eldhússins á Sauðár- króki 231.529 krónur, í Vest- mannaeyjum 282.473 og á Húsavík 292.212 krónur. Mið- að við hvert stöðugildi í eldhúsi kemur Sauðárkrókur út með 2.145 þús., Húsavík 2.713 þús. og Vestmannaeyjar 2.881 þús. Miðað við hvern legudag er rekstur eldhússins á Sauðár- króki 1.020 þúsund, á Húsavík 1.437 og í Vestmannaeyjum 1.756 þúsund. Þarna munar 26% á Sauðárkróki og Vest- mannaeyjum, lægsta og hæsta. I skýrslunni segir að rekstrar- kostnaður eldhúss að frádregn- um tekjum sem hlutfall af heild- arkostnaði hafi numið 9.8% á Sjúkrahúsi Skagfirðinga árið 1993. Þetta hlutfall hafi lækkað á undanfömum árum, úr 10,9% 1992 og 13% 1991, enda hafi kostnaður umfram tekjur lækkað vemlega á þessu tímabili, var 1991 37,7 millj., 1992 30,1 millj., og 1993 28,4 milljónir. Sem dæmi um lækkun kostnað- arliða má nefna, að hráefnis- kostnaður lækkaði um 4,6 millj- ónir frá 1991 til 1992 og um 1,5 milljón milli áranna ‘92 og ‘93. Mikill árangur hefur náðst í endurskipulagningu í rekstri eld- húss Sjúkrahúss Skagfirðinga frá árinu 1991. Sem sést á því að á því ári vom hlutföllin miðað við unnin stöðugildi öfug miðað við það sem að framan greinir, þ.e. hæst á Sauðárkrókj og lægst í Vestmannaeyjum. I skýrslunni kemur fram að kostnaður við unnin stöðugildi er svipaður á Húsavík frá ári til árs en hefur aukist í Vestmannaeyjum. Taflan yfir tekju- og kostnað- arliði í rekstri eldhússins sýnir mjög mismunandi tölur. Athygli vekur að þar er launaliður Sjúkrahúss Skagfirðinga 17,793 milljónir, 15,778 milljónir á Húsavík og 11,521 millj. í Vest- mannaeyjum. Birgir Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Skagfirðinga segir að launaliður- inn segi í raun ekkert til um hag- kvæmnina í rekstrinum. Þessar tölur einar sér séu ekki sambæri- legar milli sjúkrahúsanna, t.d. yrði launaliðurinn hærri í Vest- mannaeyjum ef mötuneyti dval- arheimilins þar væri tekinn inn í. Arnar kom til hafnar á Skaga- strönd um helgina úr fyrstu veiðiferð ársins með 200 tonn í lest af unnum afúrðum. Voru hafnarverkamenn á Skag- strönd að berjast við að landa úr skipinu í leiðindaveðri í gær og fyrradag. Skipið heldur til veiða að nýju í dag, en ef loðnuvertíðin fer í gang mun Arnar halda inn á Seyðisfjörð og þar verða frystivélar skips- ins nýttar til loðnufrystingar. Óskar Þórðarson, er nú gegnir starfi framkvæmdastjóra Skag- strendings í fjarveru Sveins Ing- ólfssonar, sem er í ársleyfi, sagði að von væri á Örvari til landsins á næstu dögum, en skipið hefúr verið í vélarupptöku og klössun í Noregi frá ársbyrjun. Óskar sagði að áætlunin gerði ráð fyrir að bæði Amar og Orvar yrðu við loðnufrystingu á Seyðisfirði strax í næstu viku, það er ef loðnan sýndi sig. Altént yrði gert hlé á veiðum skipanna meðan á loðnufrystingu stæói. Þau mundu síðan fara að henni lok- inni strax úl veiða aftur. Reiknað er með að loðnufrysting geti staðið í um hálfan mánuð og yrði það góð búbót fyrir Skagstrending. Samningar um endurgerð Hillebrandtshús draga dilk á eftir sér: Bæjarstjórn og safnanefnd kærð Grétar Guðmundsson húsasmíðameistari á Blönduósi hefúr kært til felagsmálaráðu- neytis, málsmeðferð bæjarstjómar Blöndu- óss og safnanefiidar Blönduóss á þvi þegar gengið var frá samningum við verktaka um endurgerð Hillebrandtshússins á liðnu sumri. Grétar kærir ákvarðanatökur bæj- arstjórnar og safnanefhdar vegna málsins og alla framvindu þess. ,díg tel að stjóm- sýslulög hafi þarna verið þverbrotin. Þetta er leiðindamál, en óhjákvæmilegt annað en að aðhafast eitthvað í því“, segir Grétar. Hann segist hafa óskað eftir rökstuðningi fyrir ýmsum hlutum, frd. því hvers vegna honum var ekki gefinn kostur á að gera til- boð í endurgerð hússins, en Iítil svör fengið. Forsaga málsins er sú að á liðnu vori var auglýst eftir áhugaaðilum úl að taka að sér end- urgerð Hillebrandtshússins á Blönduósi. Sjö aðilar sendu inn umsóknir, þar af þrír aðilar á Blönduósi. Arkitekt hússins Hjörleifur Stef- ánsson mælti með því að Braga Skúlasyni byggingarmeistara á Trésmiðjunni Borg á Sauðáikróki yrói falin umsjón veiksins, vegna reynslu hans af endurgerð gamalla húsa, og var Trésmiðjan Borg einn þeirra aðila er lýsú áhuga fyrir verkinu. Safnanefnd og bæjar- stjóm komust að þeirri niðurstöðu að leitað yrði samkomulags við Braga Skúlason að annast yfimmsjón veiksins, og einnig að Tré- smiðjunni Stíganda á Blönduósi yrói gefinn kostur á aó bjóða í enduigerð hússins. Grétar segir óeðlilegt hvemig allt í einu hafi legið svona óskaplega mikið á að koma þessu í kring. I kringum kosningamar á liðnu vori hafi ekkert verið aðhafst í tvo mánuði, síðan hafi skyndilega verið ákveóið að semja við Stíganda. „Þetta var dropinn sem fyllti mælinn. Þama var ekkert hæfnismat fram- kvæmt og mér finnst óeðlilegt hvemig sama verktakanum hefúr verið hyglað úl fjölda ára af bæjaryfirvöldum. Ég hef mikinn áhuga fyr- ir endurgerð gamalla húsa og hef töluverða reynslu á því sviði. Meðal annars hafði ég um- sjón með endurgeró kirkjutumsins í Bólstaða- hlíðarkirkju, sem Stígandamenn telja sér til tekna í umsókninni“, segir Grétar. Skúli Þórðarson bæjarstjóri á Blönduósi vildi ekki tjá sig um málið. Bréf félagsmála- ráðuneytisins varðandi kæmna var kynnt á bæjarstjómarfúndi á Blönduósi í gær. Bæjar- stjóm og safnanefnd hafa frest úl 3. febrúar til að skila gögnum varðandi málið úl ráðuneyt- isins. —ICTcb^íII hjDI— Aðalgötu 24 Skr. sími 35519, bílcts. 985-31419, íax 36019 Almenn verktakaþj ónusta, Frysti- og kœliþjónusta, Bíla- og skiparafmagn, Véla- og verkfœraþjónusta Jítftbílaverkstæði Æm mm m L:9wUi-------- Sœmundargötu 16 Sauöárkróki íax: 36140 Bílaviðgerðir Hjólbarðaverkstœði Réttingar Sprautun

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.