Feykir - 08.02.1995, Blaðsíða 3
6/1995 FEYKIR 3
„Tókum þá stefnu að sérhæfa okkur og
reyna þannig að stækka markaðinn"
segir Rögnvaldur Guðmundsson framkvæmdastjóri Rafmagnsverkstæðis KS
Hróbjartur Jónasson sem aðallega hefur unnið að skynjaraverkefhinu og Rögnvaldur Guðmundsson
með sýnishorn af skynjarastöð.
„Við rákum okkur á það strax
að með því að vera í þessum
hefðbundnu greinum rafiðna,
værum við að bítast við fyrir-
tækin hérna á staðnum á mark-
aði sem er alltof lítill fyrir þetta
marga aðila. Þvi tókum við þá
stefhu að sérhæfa okkur á öðr-
um sviðum og stækka markaðs-
svæðið, reyna að ná verkefnum
hingað. Þarna horfðum við
kannski á það sem fyrirtæki úti
á landsbyggðinni hafa verið að
gera, eins og t.d. Póllinn á ísa-
firði, og mátum það þannig að
við gætum alveg eins gert svip-
aða hluti. Eg efast um að fólk
hér á svæðinu viti það að í dag
eru verkefni okkar að talsverð-
um hluta utan héraðs. Við erum
að þjóna Landsvirkjun, Rarik,
fyrirtækjum á Siglufirði, Veiði-
málastofnun og fleiri aðilum.
Fyrirtækið hefur vaxið á síðustu
árum frá því að sjá 9 manns fyr-
ir vinnu í 15 störf. En til þess að
renna enn styrkari stoðum und-
ir starfsemina þá verða heima-
aðilar einnig að líta til okkar. Við
höfum góða möguleika að veita
ýmsa sérhæfða þjónustu sem
aðilar hafa verið að sækja út
fyrir svæðið, og í þessu sam-
bandi vil ég kannski benda á
ágæta samvinnu okkar við Hita-
veitu Sauðárkróks. Þar höfum
við sett upp skjámyndakerfi,
stýrikerfi fyrir veituna“, segir
Rögnvaldur Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Rafmagnsverk-
stæðis Kaupfélags Skagfirðinga.
„Með þessari sérhæfmgu má
segja að við höfum valið dýrari
leið, en um leið hefur safhast upp í
fyrirtækinu þekking sem reynist
ákaflega dýrmæt. Til okkar hafa
ráðist menntaðir menn á seinni
árum, tveir tæknifræðingar, hag-
ífæðingur og vonandi bætist í hóp-
inn á næstunni vcrkfræðingur, sem
hefur unnið talsvertí raunvísinda-
stofnun Háskóla Islands. Með
þessu erum við að flytja hönnun-
ina heim í hérað og ráðum þar af
leiðandi betur við flóknari verk-
efni. Það er miklu betra og skil-
virkara að hafa þessa þekkingu
inni í fyrirtækinu, heldur en að
þurfa stöðugt að sækja hana til
verkfræðistofa fyrir sunnan. Hjá
okkur vinna nú hlið við hlið á gólf-
inu rafvirkjamir og tæknimennt-
uðu mennimir og sameiginlega
leysa þeir hin flóknustu verkefni",
segir Rögnvaldur.
Tækni- og iðnaðar-
mennirnir hlið við hlið
Rögnvaldur segir að hingað til
hafa verið alltof mikið urn það hér
á landi að tækniffæðingar og verk-
fræðingar setjist inn á skrifstofú
bak við tölvur og sinni því ekki
sem skyldi að vinna að útfærsu
verkefna vió hlið iðnaðarmanns-
ins. „Þessu er öðmvísi farið hjá
öðmm þjóðum, Ld. er þaö þannig
í Japan að tæknimennimir vinna á
gólfinu við hlið iðnaðarmannsins
og allir vita hvað japönsk ffam-
leiðsla hefúr náð langt. Við emm
mjög ánægðir meó samvinnu okk-
ar við Háskólann í sambandi vió
skynjaraverkefnið, og við höfum
einnig fengið önnur verkefni í
gegnum þetta samstarf, sem við
ella hefóum ekki fengió. Með
þessari samvinnu hef ég séð bein-
tengingu Háskólans vió atvinnulíf-
ið og þannig finnst mér skólakerf-
ið eigi að virka“, segir Rögnvaldur.
Nýlega var starfsemi Raf-
magnsverkstæðis KS skipt niður í
Qórar deildir og er markmiðið með
því að gera starfsemina sérhæfðari
og virkari. RKS-skynjaratækni er
ein deild, söludeild önnur, RKS-
raffækni er þriðja deildin og sú
fjórða RKS-tölvutækni.
Kaupfélagið sterkur
bakhjarl
„I skynjaraverkefninu em í dag
tvö og hálft starf og vonandi bæt-
ist þar eitt starf við áður en langt
um líður. Við höfum sótt um til
Rannsóknarráðs ríkisins að ráða
svokallaðan tæknimann í fyrirtæki,
en ráðió auglýsti nýlega styrki sem
eiga að notast í þessum tilgangi.
Við höfúm augastað á rafmagns-
verkffæóingi sem hefúr unnið
mikið fyrir okkur í gegnum raun-
vísindastofnun HI. Það ræðst síð-
an af því hvemig markaðsetningin
erlendist gengur hvort þessi starf-
semi vex enn ffekar. Töluvdeildin
gerir okkur síðan mögulegt að
þróa ýmis hugbúnaðarverkefni
sem em nauðsynleg gagnvert okk-
ar framleiðslu og þeirri þjónustu
sem vió ætlum að bjóða upp á og
hingað til hefur þurft að sækja út
fyrir héraðið. Þama á ég við skjá-
mynda- og stýrikerfi tengt tölv-
um.“
Aðspurður sagði Rögnvaldur
að áætlanir gerðu ráð fyrir að RKS
skynjaratækni skilaði hagnaði eft-
ir tvö ár, og enn sem komið er væri
veltan í þeim geira ffekar lítil. Hún
var fjórar milljónir á síðasta
ár.„Það er okkur mjög mikilvægt
að hafa að baki okkur svo sterkan
aðila sem kaupfélagið er. Það væri
nánast ógjömingur fyrir lítinn að-
ila meó ekki meiri veltu að sækja á
markaðinn og öðlast það traust
sem þarf í þann miklajiöfúðstól
sem markaðseming er. Ég held ég
geti sagt að við höfúm nú þegar
skapað okkur traust víða, og marg-
ir af þessum stærri aðilum vita af
okkur og taka tillit til okkar“, sagði
Rögnvaldur Guómundsson.
A næstunni munu fonráðamenn
RKS vitja umboðs- og viðskipta-
aðila sinna á Norðurlöndunum,
em það aðilar sem RKS hefúr
verið í sambandi við og fengið
góðar undirtektir með skynjarana,
en engir sölusamningar hafa verið
gerðir. Þá er meiningin að RKS-
menn sæki tvær sýningar á árinu.
S amvinmibókin
Hagkvæm ávöxtun í heimabyggð
Nafnvextir 4,3% ársávöxtun 4,35%
Ársávöxtun á síðasta ári var 4,84%
Innlánsdeild KS