Feykir - 08.02.1995, Qupperneq 6
6FEYKIR 6/1995
Heilir og sælir lesendur góðir. Guð-
mundur Stefánsson áður bóndi á Hrafn-
hóli í Skagafirði starfaði einhverju sinni á
vegum lionsklúbbs við blómasölu á
konudegi. Viðskiptavinur sem bað um
vísu fékk þessa.
Þú skalt lúta þessum dóm,
þér mun flest í haginn.
Efþúfrúnni færir blóm
fyrsta Góu daginn.
Ekki hefur búskapurinn gengið sem
skyldi hjá þeim sem fékk eftirfarandi vísu
hjá Guðmundi.
Baslari hér bjó um stund,
best sú minningflaggar.
Aldrei voru upp á hund
eftirtekju baggar.
Einhveiju sinni er bændafeið lauk sem
Guðmundur var þátttakandi í, mun hann
hafa hvatt ferðafélagana með eftirfarandi
vísu.
Stuðluð vísa á snærið hljóp
styrkir minninguna.
Þannig kveð ég þennan hóp
þakka kynninguna.
Kannski hefur áður í Jxissum þáttum
verið birt hin kunna vísa Isleifs Gíslason-
ar á Sauðárkróki um rigninguna og geit-
ina.
Detta úr lojti dropar stórir,
dignar um í sveitinni.
Tvisvar sinnum tveir erufjórir
taktu í horn á geitinni.
Heyrt hef ég að Isleifur hafi ásamt
fleirum komið eftirfarandi vísu í heiminn.
Oft með lægi ást er skipt
eyðist fræið beggja.
Oli plægir auðs hjá nift
innan bæjarveggja.
í gær rifjaðist upp fyrir mér vísa eftir
minn góða vin Kára frá Valadal. Er hún
gerð í kringum 1980 er undinritaður starf-
aði á vertíóum í Vestmannaeyjum og
Kári frétti að ég væri þar kominn í kynni
við hestaeiganda.
Oft hann fleyginn á sér bar,
elska meyjar strákinn.
Stundar í Eyjum stórreiðar
sterkan teygir fákinn.
Þá kemur hér sumarmálavísa eftir
Kára.
Horfinn vetur, heilsar vor,
hljómar söngur dalsins.
Göngulúinn greikkar spor
til gamla sveitamannsins.
Þá kemur næst limra sem gerð er nú í
vetur einhverju sinni, þegar rætt var um
nýjustu skoðanakannannir og fátæklegt
þinglið Alþýðuflokks. Höfundur er Aðal-
bjöm Benediktsson.
Jóhanna fylgi fagnar,
fúll er Ólafur Ragnar.
Jón er á skjá
með þingmenn þrjá.
Þjóðvaki spennu magnar.
Geta lesendur sagt mér hver yikir svo?
Honum drottinn hefur veitt
hendur tvœr og líkamskraftinn,
þó armar vinni ekki neitt
annað enflytja mat í kjaftinn.
Það mun hafa verið Kristján Ámason
sem orti svo um ónefndan tækniffæðing.
Lítið gengur að læra að skrimta
aflífsins daglega gemingi.
Hann er ennþá að hanna finmita
hornið á sínum ferningi.
Þá er falleg vísa eftir Sveinbjöm Bein-
teinsson sem að vísu á betur við annan
tíma en nú ríkir.
Blœrinn andar, blikar land,
blánar stranda vegur.
Geislaband um sæ og sand
sól að handan dregur.
Margir þeir sem eldri em kannast ef-
laust við þessa kunnu vísu Rósbergs G.
Snædal.
Hart leikur Gunnar Hólastól,
höfuðból feðra vorra.
Nemendur féllu fyrir jól,
fénaðurinn á þorra.
Kunningjaglettur vom oft með Rós-
berg og Kristjáni frá Djúpalæk. Einhvem
tíma mun Rósberg hafa sent Kristjáni
þessa.
Gegnum fár og giktarslen
glitra tárin vonar.
Gengur skár þín iðja en
Ólafs Kárasonar.
Mig minnir að ég hafi heyrt að þessi sé
eftir Ragnar Asgeirsson.
Tíminn líður alltofótt,
ekkert tekst að vinna.
Sé égfram á svarta nótt
sólskins vona minna.
Hver skyldi hafa ort svo?
Þura hefur hjörtu tvö
hægra og vinstra megin.
Ó að þau voru orðin sjö
þá yrði margur feginn.
Ekki fylgir heldur höfundamafn með
þeim beiska sannleika er fram kemur í
næstu vísu.
Leitt er mjög en samt er satt
að sumir geta bara
vakið yndi og aðra glatt
er þeir kveðja og fara.
Að síðustu þessi laglega hringhenda.
Höfundur mun vera Eyjólfur Jóhannes-
son Borgfirðingur.
Blóm uppræti bragasjóðs
bauga mætu hlynum.
Hér við bœta efhi óðs
eftir læt ég hinum.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 27154.
Sætur sigur á Haukum en
skellur á móti Skallagrími
Eftir góðan leik og sætan sigur
á Haukum í Hafnarfirði á
föstudagskvöldið, máttu Tinda-
stólsmenn þola stórt tap fyrir
Skallagrími í Borgarnesi á
sunnudag. Tindastólsmenn áttu
afarslakan leik á sunnudag og
trúlcga má að stórum hluta
kenna því um að liðið hafi
hreint ekki verið búið að ná sér
eftir Haukaleikinn, enda ekki
nema einn og hálfur sólarhring-
ur milli lcikjanna. En staða
Tindastóls hefur enn vænkast í
deildinni. Liðið hefúr nú 18 stig
og er komið í 8. sæti deildarinn-
ar. Valur og Haukar eru með
16 stig, Skagamenn 14 og Snæ-
fell 4. Það eru meira að segja
aðeins 6 stig í KR-inga sem eru
í 7. sætinu og þcssvegna gætu
Tindastólsmcnn skotist upp í
sjöunda sætið á lokasprettin-
um, en til þess að það sé mögu-
leiki þurfa þeir að bera hærri
hlut í „derbyleiknum“ gegn Þór
á Akureyri nk. fimmtudags-
kvöld.
Tindastólsmenn voru áberandi
betri aðilinn í fyrri hálfleiknum
gegn Haukunum og náðu
snemma forustu. Mest varð hún
11 stig um miðjan hálfleikinn
31:20, en í leikhléi munaði 8 súg-
um, 41:33 fyrirTindastól.
Tindastólsmenn duttu síðan
niður í byrjun seinni hálfleiks.
Haukunum tókst smásaman að
minnka muninn og á kafla gekk
hreinlega ekkert hjá Tindastóli. Þá
breyttu Haukar stöóunni 39:50 í
56:54 og komust þar með yfir í
fyrsta skipti í leiknum. Það var
síðan á lokamínútunum sem
Tindastóll náði frumkvæðinu að
nýju. Lokamínúta leiksins var
æsispennandi. Staðan var jöfn
73:73 og Jón Amar Ingvarsson
skoraði þriggja stiga körfu fyrir
Hauka. Torrey John skoraði körfu
og úr vítaskoti að auki og jafnaði
meún. Skot Jóns Amars þegar 20
sekúntur vom eftir misheppnaðisL
Tindastólsmenn náðu boltanum
og Omar Sigmarsson skoraði út
tveim vítaskotum. Haukarnir
geystust upp og Óskar Pétursson
fékk tvö víú. Hann skoraði aðeins
úr öðm og þar með var sigurinn
Tindastóls, 78:77.
Það var liðsheildin sem skóp
þennan sigur, en eins og oft áður
átú Torrey mjög góðan leik. Hann
skoraði 34 súg, Hinrik 15, Láms
11, Sigurvin 8, Ómar 7 og Amar
3. Pétur Ingvarsson var langat-
kvæóamestur í liði Hauka, skor-
aði 36 súg.
„Við vorum ótrúlega slakir í
Borgamesi og hittnin var alveg í
lágmarki. Palli (Kolbeinsson) var
að tala um að hún hefði ekki verið
nema 25%. Við vemm að ná okk-
ur á strik á móú ÞóG, sagði Hin-
rik Gunnarsson fyrirliði Tinda-
stólsmanna. Skallagrímur vann
leikinn 76:51 og hafði yfir í leik-
hléi 32:24. Torrey John skoraði
15 súg fyrir Tindastól, Hinrik 10
og aðrir minna.
Munið áskriftargjöldin!
Þeir sem enn kunna að hafa í fórum sínum ógreidda gíró-
seðla fyrir áskriftargjöldum eru beðnir að greiða hið allra
fyrsta. Þeim sem glatað hafa gíróseðli skal bent á að hægt
er að millifæra áskriftargjaldið á reikning Feykis nr. 1660
í útibúi Búnaðarbankans á Sauöárkróki.
Kolbeinn Gíslason
f. 17. desember 1928
d. 15. janúar 1995
Kveðja
Kveðjufrá Grundar krökkum
Kolli minn - fœrum þér.
Af alhug þá líka þökkum,
það sem að horfið er.
Því liðna er erfltt að lýsa,
leitar á hugann hryggð.
En við áttum jafnan vísa,
vináttu þína og tryggð.
Oft gastu með glettni þinni
á galla hjá okkur bent,
og þó væri þungt í sinni,
- en það gat jú líka hent.
Samhug okkar að sýna,
var sjálfgefið hverja stund.
Við klökknum við kistuna þína
krakkarfrá Syðstu-Grund. H.J.
Syðstu-Grundarsystkinin Gísli, Gunna, KoIIa, Anna,
Arnar og Sæmi.