Feykir - 08.02.1995, Side 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
8. febrúar 1995,6. tölublað 15. árgangur.
Auj»lýsing í Feyki fer víöa!
6ENC m
Það komast allir í Gengið
unglingaklúbb Landsbankans
Sláðu til og komdu í Gengið
I Pottþéttur klúbbur!
áW Landsbanki
Sími 35300 mk ís,ands
JmM Banki allra landsmanna
Sjúkraflutningamenn á Skagaströnd lentu í brasi:
Börðust í illsku veðri með
sængurkonu af Skaganum
Mér leið vel allan tímann og
það fór vel um mig í bflnum.
Það var líka ekkert að óttast
þar sem læknirinn og Ijós-
móðirin voru hjá mér allan
tímann. Nei, mér fannst tím-
inn vera fljótur að líða og að
ekki hati farið svona langur
tími í ferðina eins og gerði“,
sagði Guðrún Jóna Björgvins-
dóttir 32ja ára húsfreyja frá
Skeggjastöðum í Skaga-
hreppi, en sjúkrabíll og björg-
unarsveitarmenn börðust í
mikilli ófærð og óveðri við að
koma Guðrúnu á fæðingar-
deildina á Blönduósi á þriðju-
deginum í liðinni viku. Það
tókst reyndar ekki að koma
Guðrúnu lengra en í dvalar-
heimilið Sæborgu á Skaga-
strönd og þar ól Guðrún Jóna
16 marka strák um eitt leytið
aðfaranótt miðvikudags.
Klukkan var um hálftíu á
þriðjudagsmorgun þegar Pétri
Eggertssyni sjúkrabílstjóra og
umsjónarmanni Sæborgar á
Skagaströnd barst tilkynning
um að húsfreyjan á Skeggja-
stöóum þyrfti að komast á fæð-
ingardeildina. Pétur fór á móti
bíl frá Blönduósi er kom með
yfirlækni og ljósmóður. Grenj-
andi stórhríð var og klukkan
farin að ganga eitt þegar komið
var til Skagstrandar aftur. Þar
var gert klárt til að taka á móti
sængurkonunni ef lengra yrði
ekki komist og það var eins
Guðrún Jóna ásamt nýfæddum syninum á Héraðssjúkrahús-
inu á Blönduósi. Mynd Sigurður Kr. Jónsson.
gott, því fjóra og hálfan tíma tók
að komast þessa bæjarleið fram
og til baka, en Skaggjastaóir em
einungis 12 kílómetra frá
Skagaströnd. Og til að sjúkra-
bíllinn kæmist leiðar sinnar
þurfti að fá aðstoð snjótroðara
björgunarsveitarinnar á Skaga-
strönd.
Léttasótt konunnar ágerðist í
bílnum og þegar komió var til
Skagastrandar um hálfsex leytið
var ljóst að ekki yrði lengra
haldið. Drengurinn fæddist síð-
an upp úr miðnættinu. Guðrún
Jóna og sonur vom síðan flutt á
Héraðssjúkrahúsið á Blönduósi
sl. miðvikudag og heilsast
mæðgininum vel.
ff 1
ff
Bíðum eins og
aðrir eftir loðnunni
segir Hreinn gróði í Dagstjörnunni
„Við bíðum eins og fleiri eftir
Ioðnunni“, sagði Hreinn Sigurðs-
son frá Sauðárkróki, sem Króks-
arar margir hverjir þekkja sem
Hrein gróða. Hreinn flutti sem
kunnugt er frá Sauðárkróki fyr-
ir rúmum tveim árum, og byrj-
aði þá fljótlcga ásamt Hreini syni
sínum rekstur í húsi Norður-
stjörnunnar, gamallar lagmet-
isiðju í Hafnarfirði. Fyrirtækið
heitir Dagstjarnan og eins og
áður í þessu húsi er stunduð þar
niðurlagning og frysting.
Hreinn, sem er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, sagðist einnig
hafa verið í loðnufrystingunni í
fyrra og þaó hafi gengið ágætlega.
Þá vom fryst rúm 150 tonn í Dag-
stjömunni. „Við höfum líka verið
talsvert í niðurlagningu á þorsklif-
ur, en hráefnisöflunin hefur ekki
gengið sem skyldi undanfarið
vegna lélegra gæfta bátanna. Við
höfum líka mikinn hug á að endur-
vekja vinnslu á reyksíldarflökum
sem hér var og Norðurstjaman var
þekkt fyrir. Við emm ekkert í þess-
ari hefðbundnu vinnslu í sjávarút-
vegi, en emm alltaf aó skoóa nýja
Hreinn Sigurðsson.
möguleika að nýta þaó hráefni sem
úl felluf', sagöi Hreinn.
Aóspurður sagöi Hreinn að á
síðasta ári hafi aó meðaltali 20-25
manns verið á launaskrá hjá fyrir-
tækinu. Þess má geta að meðal
þeirra sem starfa í Dagstjömunni er
Haukur Ingólfsson frá Hofsósi.
„Mér líkar ágætlega að vinna hjá
Hreini. Eg er þama í ýmsu mögu-
legu, sé Ld. um viðhald véla og
húss", sagði Haukur.
Þorralömb á Svertingsstöðum
Vestur-Húnvetningar hafa orðið
talsvert varir við öfgana í móður
náttúru að undanfornu. Þótt
vetrarhríðar hafi geysað í Mið-
firði að undanfórnu tók ein ærin
á bænum Svcrtingsstöðum upp
á því nú í byrjun febrúar að
bera. Ær þessi bar síðast í júní sl.
, JÞetta er frjósöm ær og var hún
tvílembd í bæði skiptin. I þetta
skipti þurfti að hjálpa henni aðeins
við burðinn. Homagarðurinn á
hrútnum var það stór. Þetta var
líka stærðar hútur, en hitt lambið
var gimbur", sagði Guðrún Ardís
Sigurðardóttir húsfreyja á Svert-
ingsstöðum. Greinilegt er af burð-
artíma ærinnar að hún hefur feng-
ið á fjalli skömmu áður en hún
kom til rétta á síðasta hausú.
Langar póstferðir og tjón á varpi á Skaga
„Það er ekki mikill snjór hjá
okkur hérna til sjávarins, en
ófærðin út á Skagann hefur
verið mikil undanfarið. Síðasta
póstferð hjá Steini syni mínum
tók ansi langan tíma. Hann
var níu tíma bara að komast
inn á Krók. Og það var líka
drjúgan tíma sem tók að kom-
ast hingað út eftir af þorrablóti
á Hofsósi um helgina. Það
ferðalag tók fimm tíma“, sagði
Rögnvaldur Steinsson bóndi á
Hrauni á Skaga.
Rögnvaldur sagði að talsvert
tjón hafi oróið á Skaganum í
briminu sem fylgdi norðanveðr-
inu mikla á dögunum. Eins og
sagt hefur verið frá í blaðinu
sökk trilla í Selvík, og þakplötur
fuku af húsum á tveim bæjum,
Þorbjargarstöðum og Lágmúla.
Þá sópaði brimið grjóti á land og
nokkrar skemmdir urðu á landi
þótt tún hafi sloppið að mestu.
Til að mynda eyðilagðist varp-
hólmi sem Rögnvaldur og fjöl-
skyldan á Hrauni hefur lagt
mikla vinnu í að útbúa á seinni
ámm. Þar voru 230 kollur komn-
ar með varp og útbúin hafði ver-
ið aðstaða fyrir þær með timbur-
umgjörðum um hreiðurstæðió.
Þessu skolaði ollu út og það mun
kosta mikla vinnu að laga það
sem aflaga fór í briminu.
, J>að er ljómandi verður héma
í dag, logn en hann eys sjónum
dálítið upp, þannig að ætla má að
stutt sé í storminn", sagói Rögn-
valdur á Hrauni þegar Feykir
hafði tal af honum á mánudag.
Oddvitinn
Það sást ekki milli augna í
hríðinni um daginn.
GÆUAf RAMKOLLUN
Gæðaframköllun jgSj&