Feykir - 03.05.1995, Page 2
2FEYKIR 17/1995
Ullin 14,5% af sauð
fjárinnleggi
Lið Tindastóls sem varð íslandsmeistari í b-deild minni-
bolta karla ásamt þjálfara sínum Inga Þór Rúnarssyni.
Góður árangurí
yngri flokkunum
Körfuknattleiksfólk í yngri
flokkum Tindastóls náði all-
góðum árangri á Islands-
mótinu sem er nýafetaðið.
Strákamir í minnibolta karla
unnu sína keppni. Sigruðu í
Norðurlandsriðli og bám síðan
sigur úr býtum í úrslitunum.
Sjöundi flokkur karla varð í 5.
sæti í a-riðli og áttundi flokkur í
3. sæti.
Níundi flokkur komst í úrslit
í bikarkeppni, en tapaði þar fyrir
KR. A sömu leið fór í Islands-
mótinu. Drengjaflokkur komst í
úrslit í Islandsmóti en tapaði
fyrir Keflavík í úrslitaleik
Attundi flokkur kvenna varó
í 4. sæti í a-riðli, stúlknaflokkur
varð í 3.-4. sæti í a-riðli og
unglingaflokkur í 3.-4. sæti í a-
riðli.
Einn flokkur var ekki í móti
þar sem það var eina liðið af
Norðurlandi, minnibolti kvenna.
Þjáifarar yngri flokkanna í
vetur vom: Inga Dóra Magnús-
dóttir, Ingi Þór Rúnarsson, Guð-
mundur Jensson, Óniar Sig-
marsson, Hinrik Gunnarsson,
Kári Marísson, Selma Bardal
og Sigrún Skarphéðinsdóttir.
KS-ingar sterkir
Nokkur hluti bænda hefur á
undanfornum árum reynt að
bæta sér upp tekjutap vegna
Corolla Touring 1600 4x4 árg.
'89, ekinn 64. þús. Verð 850
þús.
BMW 518 I árgerð 1986.
Verð 560 þúsund.
Nissan Sunny SLX árg. 1991,
ckinn 36 þús. Verð 850 þús.
Subaru 1800 GL st. 4x4 árg.
1988. Verð 750 þúsund.
Nissan Phatfinder 2,4 bensín
árg. 1988. Verð 1120 þúsund.
BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐAR SF.
BÍLASALA
Borgartúni 8, Sauðárkróki,
sími 95-6050 og 95-36399.
minnkandi kjötframleiðslu
með því að auka verðmæti
ullarinnar. Það má m.a. sjá af
því að á síðasta ári greiddi
Kaupfélag Skagfirðinga rúm-
lega 16 milljónir fyrir ullina
og er það 14,5% af öllu sauð-
fjárinnleggi. Arið 1993
greiddi félagið 14,5 millj. fyrir
ull, en 1991 aðeins 4,8 millj-
ónir og það ár námu greiðslur
fyrir ull aðeins 2,4% af sauð-
fjárinnleggi.
„Meðhöndlun bænda á ull-
inni hefur stórbatnað síðustu
árin en samt geta sumir þeirra
aukið verðmæti hennar mikið
enn“, sagði Eymundur Jóhanns-
son ullarmatsmaður hjá Kaup-
félagi Skagfirðinga þcgar frétta-
maður hitti hann fyrir skömmu.
Eymundur sagði að ull sem tek-
in er af strax og kindumar séu
teknar á hús komi nær undan-
tekningarlaust best út í mati og
talsverður hluti hennar fari í
fyrsta flokk. Ull sem tckin er af
í mars og apríl komi mun lakar
út og fari nær öll í annan og
þriðja flokk. Það er einkum
heymoð, óhreinindi og flóki
sem fella ullina í mati. Það er
aðallega þessi ull sem Eymund-
ur tclur að framleiðendur geti
gert mun meiri verðmæti úr
með því aó breyta um rúnings-
tíma á fénu. ÖÞ.
Snjómokstri í umdæmi vega-
gerðarinnar á Sauðárkróki má
nú að heita lokið að því undan-
skildu að eftir er að moka Lág-
heiði, en hún er yfirleitt ekki
mokuð fyrr en í lok maí eða
byrjun júní. Síðustu dagana í
aprfl var unnið við snjómokst-
ur á veginum frá Reykjarhóli
að Þrasastöðum í Fljótum en
sú leið hafði þá ekki verið
mokuðsíðan skömmu fyrir jól.
Framan Stífluhóla er gríðar-
Fyrstu leikirnir í Feykisbik-
mikill snjór og eru göngin víða
um og yfir tveir metrar að dýpt.
Skúli Ferdinantsson, sem mokað
hefur þessa leið að vori með
snjóblásara í mörg ár, lét svo um
mælt að þetta væri mesti snjór
sem hann hefði nokkurn tíma
mokað á þessum vegi. A þessu
svæði er snjórinn ákaflega jafn-
fallinn, öll gil slétt af og hvergi
sjáanleg snjóhengja í fjöllum.
arnurn, vormóti í knattspyrnu
á Norðurlandi vestra, fóru
fram um helgina. Greinilegt er
af þessum þrem leikjum sem
búnir eru að Siglfirðingar
verða með mjög sterkt lið í
sumar, en önnur lið virðast
óljósari stærðir.
Siglfirðingar unnu Tindastól í
fyrsta leik mótsins á Króknum sl.
laugardag, 3:0 og voru KS-ingar
mun betri aðilinn í leiknum. A
sunnudag unnu Hvatarmenn
öruggan sigur á Þryrn 4:1 og á
mánudag sigraói Tindastól
Neista 2:1 í jöfum leik. Leikimir
fóru allir fram á Króknum.
I Kvöld tekur Þrymur á móti
KS, á föstudag koma Hvatar-
menn á Krókinn og leika gegn
Neista og Kvatarmenn mæta
síðan Tindastóli á sunnudag.
Af götunni
V
1. maí af afspurn
Þetta er fánaborgin við Stjóm-
sýsluhúsið á Sauðárkróki á I.
maí, á baráttudegi verkslýsðins.
Þetta var það eina í bænum sem
minnt á aö hátíðisdagur var
þennan dag, því það hefur nefni-
lega skapast áralöng hefð fyrir
því að engin hátíðahöld eru í
bænum á l. maí og ckki er að sjá
að áhugi sé fyrir því að breyta
þar út af. Altént virðist hafa verið
full ástæða til þess að launafólk
og verkalýðsfórkólfar gerðu vart
við sig þennan dag nú, því
atvinnuástand er nú óvenjuslæmt
á Sauðárkrói og nágrenni, eins
og sjá má í frétt á forsíðu blaðs-
ins í dag. Þessi mikla félagsdeyfð
hlýtur að vekja furóu, þegar tekið
er tillit til þess að Sauðárkrókur
er 2500 rnanna samfélag og
félagssvæði Fram nær um allt
héraðió.
Uppgangur hjá HG
Það hefúr vakió þónokkra at-
hygli, að á sama tíma og fjöldi
fólks er atvinnlaust á Sauðárkróki
sárvantar fólk til Gmndafjarðar
þar sem Fiskiðjan/Skagfirðingur
er langstærsti eigandi Hrað-
frystihúss Gmndafjarðar.
„Það bara vantar húsnæði
héma til að taka við fólki. Ef þér
vantar vinnu þá vcrður að koma
með tjaldvagn eóa húsbíl og búa
í honum. Þaó er búió að fylla
allar kytmr hér", sagði forsvars-
maður HG í samtali við Feyki.
Þrátt fyrir að gert hafi verið ráö
fyrir skólafólki til starfa vantar
30-40 manns í vinnu hjá HG.
OÞ.
Feykisbikarinn Sauðárkróksvöllur
Þrymur - KS
miðvikudaginn 3. maí kl. 20,00
Yfir tveggja metra
snjódýpt í Stíflunni
FEYKIR
-i-®- Óháð fréttablað á Noröuriandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
95-35757. Myndsími 95-36703. Ritstjóri Þór-
hallur Asmundsson. Fréttaritarar: Magnús
Olafsson A.-Hún. og Eggert Antonsson V.-Hún.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ.
Guðbrandsson, Sæmundur Hermannson,
Sigurður Agústsson og Stefán Arnason.
Askriftarverð 137 krónur hvert tölublað
m/vsk. Lausasöluverð 150 kr. m/vsk. Setning
og umbrot Feykir. Prentun Sást hf. Feykir á
aðild að Samtökum bæia- os héraðsfrétta-
blaða.