Feykir - 03.05.1995, Side 3
17/1994 FEYKIR 3
Sönglagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks:
Kvöldskemmtun á
heimsmælikvarða
„Ég er alsæll meö að hafa
unnið hérna á heimavelli og
óskaplega ánægöur að hafa unn-
ið þessa keppni. Ég get bara tek-
ið undir með kvenfélagskonum,
sem sögðu að það væri sérstak-
lega ánægjulegt að það skyldi
hafa verið ég sem vann keppnina
núna á 100 ára afmæli félagsins.
Ég er ncfnilega óformlegur heið-
ursfélagi í kvenfélaginu og hef
unnið mikið með þeim um árin",
segir Geirmundur Valtýsson al-
sæll með vinningslagið sitt í
Dægurlagakeppni Kvenfélags
Sauðárkróks, sem hcitir „Þegar
sólin er sest“ og er við texta
Kristjáns Hreinssonar.
Urn 250 manns íylgdust með
dægurlagakeppninni sem fram
fór í íþróttahúsinu á Sauðárkróki
sl. fimmtudagskvöld og keppnin
var í alla staði hin glæsilegasta
og vandað til hennar í hvívetna,
m.a. var fengið norður eitt full-
komnasta hljóðkerfi landsins, og
studdu þar Kaupfélag Skagfirð-
inga og Sauðárkróksbær við
kvenfélagió. Iþróttahúsið var
fagurlega skreytt fyrir þessa
kvöldskemmtun.
Það var Helga Sigurbjöms-
dóttir formaður Kvenfélags
Sauðárkróks sem setti samkom-
una. Engilráð Sigurðardóttir
stjómarmaður í kvenfélaginu tók
síðan til máls og gat þess að á
þessu ári væri kvenfélagið 100
ára. I tilcfni þess hefur félagið
látið gera nýjan fána og unnið er
að gerð merkis. Það er Guðni
Ragnar Bjömsson frá Sauðár-
króki sem hefur unnið þetta verk
og birtist fáninn þama í fyrsta
sinn opinberlega.
Kynnir kvöldsins var Jón
Hallur Ingólfsson og skaut hann
nokkmm „laufléttum" inn á milli
laganna 10, sem þéttskipuð sveit
úrvals hljóðfæraleikara úr hérað-
inu lék undir stjórn Hilmars
Sverrissonar. Skemmtiatriðin
voru mögnuð: Dans íslands-
meistaranna í samkvæmisdöns-
um 16-18 ára og free style dans
Ragndísar Hilmarsdóttur, ungs
Islandsmeistara frá Króknum.
Fílapenslarnir frá Siglufirði
sungu nokkur lög og skemmtu,
sýndu á sér hrjúfu hliðina svolít-
ið Siglfirðingamir, og var geysi-
lega vel fagnað. Anna Sigríður
Helgadóttir söng nokkur klassísk
lög, Kór Fjölbrautaskólans söng
Garðyrkja
(grænir fingur)
Tek að mér klippingar og
almenna garðvinnu.
Upplýsingar í síma 95-35760
eftirkl. 17,00.
Sigrún Indriðadóttir
garðyrkjufræðingur.
Geymið auglýsinguna.
undir stjóm Hilmars Sverrisson-
ar og ungir listamenn úr Gagn-
fræðaskólanum og Tónlistar-
skólanum skemmtu.
Það var söngvarinn góðkunni
Ari Jónsson sem flutti lag Geir-
mundar, sem er með svolítið
öðmm blæ en önnur lög hans,
„svolítið mexíkönskum", eins og
Geirmundur segir sjálfúr. I öðm
sæti var lagið „Þú ert" eftir
Gunnar Gunnarsson bónda í
Syöra-Vallholti í Skagafirði og í
þriðja sæti síóan lagið „Horfi á
þig“ eftir Hörð G. Ólafsson á
Sauðárkróki, en Hörður hefur
náð bestum árangri íslenskra
lagahöfunda í Evrovisjonkeppn-
inni, lag hans „Eitt lag enn"
hafnaði í 4. sætinu um árió.
Þess má geta að vinningslag
Geira var upphaflega samið að
ósk Björgvins Halldórssonar
með notkun fyrir Evrovisjon-
keppnina í huga. Þaö fékk ekki
náð fyrir augum Björgvins frekar
en nokkur önnur lög frá bestu
lagahöfundum landsins. Heppni
fyrir Geirmund því þá hefði
hann ekki getað notaó það í
kvenfélagskeppninni.
Dægurlagakeppni Kvenfélags
Sauðárkróks stendur á gömlum
merg, féll reyndar niður um tíma
en var endurvakin aó nýju í
fyrra. í fyrra bárust 20 lög í
keppnina en núna yfir 40, víðs-
vegar að af landinu. Að margra
áliti er keppnin komin til að vera
S amvinnubókin
Hagkvæm ávöxtun
í heimabyggð!
Nafnvextir 4,85% ársávöxtun
4,91%
Ársávöxtun á síðasta ári var
4,84%
Innlcínscleild
Fulltrúar laganna 10 mættir á svæðið við verðlaunaafhendinguna. Frá vinstri talið: Kristján
Gíslason Sauðárkróki, Leó Ólason frá Siglufirði, Hafsteinn Hannesson fulltrúi Arnars Freys
Gunnarssonar og Gunnars Páls Ingólfssonar frá Reykjavík, Sigurgeir Angantýsson Sauðárkróki,
Arnar Einarsson Húnavöllum sem samdi lag við texta Sigfúsar Ólafssonar, Sigurður Ægisson frá
Siglufirði, Hörður G. Ólafsson og Ársæll Guðmundsson Sauðárkróki, Gunnar Gunnarsson í
Vallholti, Signý Bjarnadóttir kona séra Hjálmars Jónssonar, og Geirmundur Valtýsson.
og ekki talið ólíklegt að á næstu
árum muni margir helstu laga-
höfundar landins taka þátt í
henni, en segja má að þetta sé nú
orðið eina dægurlagakeppnin
eftir að söngvakeppni sjónvarps-
ins lagðist af.
Það er þó ekki þannig að
kvenfélagið raki saman pening-
um vegna keppninnar. Að sögn
Lovísu Símonardóttur stjómar-
manns í kvenfélaginu, vonast
kvenfélagskonur til að hljóð-
snældan með lögunum 10 seljist
vel. Það gæti fleytt þeim á núllið,
en skemmtikvöldið sjálft standi
ekki undir sér. „Við erum að
þessu til þess að skapa tilbreyt-
ingu í skemmtana- og menning-
arlífinu í héraðinu. Þetta er gífur-
leg vinna sem liggur að baki
keppninni og fjöldi fólks leggur
á sig mikla sjálfboðavinnu. Tón-
listarfólkið fær þó greitt fyrir
sína vinnu", segir Lovísa.
Geirmundur tekur við blómum og sigurlaunum í keppninni
úr hendi Lovísu Símonardóttur stjórnarmanns í kvenfé-
laginu. Á milli þeirra glyttir í Jón Árnason frá Víðimel, formann
dómnefndar. Gunnar í Vallholti er vinstra megin.