Feykir - 03.05.1995, Síða 5
17/1995 FEYKIR5
Nútíðarvandinn „mengun náttúrunnar"
Náttúran þetta mesta og
stærsta leiksvið veraldarinnar er
síbreytileg, allt frá augnabliki til
augnabliks, frá stund til stundar,
degi til dags, árstíða, ára og alda.
Þar leika allir sína ,/ullu“, einnig
við mennimir, því að við erum
hluti af náttúmnni hvort sem viö
viðurkennum það eða ekki.
Hér á norólægum slóðum
spila árstíðirnar mikla rullu í
náttúmnni eins og líklega víðar,
en þar og aðeins þar, á litlum
bletti, Fljótum í Skagafirði, er
reynsluheimur minn af aó skoða
náttúmna, hlusta á unaðsraddir
hcnnar og reyna að skynja og
skilja leyndardóma hennar, aó-
dáunarverða nákvæmni, reisn
hennar og fegurð. Við leik og
störf í fmmstæðu fátæku bænda-
samfélagi fékk ég snemma bæði
tíma og tækifæri til að vera nær
öllum stundum úti í náttúmnni.
Þar lærði ég að umgangast hana
og virða undir ákveðnum ströng-
um umgengnisvenjum, þar sem
allt mátti sjá og skoóa en engu
mein gjöra að óþörfu. Nú verð
ég alltaf þakklátari og þakklátari
með ámnum sem líða fyrir að
hafa fengió að kynnast þeirri un-
aðslegu náttúmlífsparadís sem
Fljótin vom enn á uppvaxtarár-
um mínum.
Sem fullorðinn maður hélt ég
miklum beinum tengslum viö
náttúmna í Fljótum, sem búlaus
bóndi, sveitarpóstur um langt
skeið og sem minkaveiðimaður
þar í aldarfjórðung. Náttúmlífið í
Fljótum hefur því verið mér
mjög vel kunnugt og hugleikið
um hálfrar aldar skeið. Þar hef
ég heyrt og séð tíma þess tvenna,
þar sá ég grósku þess á láöi og
legi, við nær ómengaðar náttúm-
„Hvenær veit umhverfisráðuneyti íslands að nytjafiskarnir
ganga ekki lengur inn á flóa og firði landsins? Hvenær veit um-
hverfisráðuneytið að ferskvatnsfiskurinn er horfinn úr sínu upp-
vaxtarumhverfi? Hvenær veit umhverfisráðuneytið að keldu-
svínið er nú horfið úr íslenskri náttúru og margar aðrar fugla-
tegundir eru að hverfa þaðan? Og hvenær veit umhverfisráðu-
neytið um „náttúrulífseyðinguna“ á Islandi og á Islandsmið-
um?“, spyr greinarhöfundur. Myndin er af keldusvíni.
legar aðstæður á uppvaxtarárum
mínurn og síðan hef ég séð
hvemig eyðingarmáttur „meng-
unarinnar" og „ofveiði“ hefur
farið með þetta sama auðuga
náttúmlíf á nokkmm áratugum,
náttúmlíf, sem nú er að deyja þar
út.
Mengun náttúrunnar sem í
mínum uppvexti var nær engin,
er nú ógnvænleg staðreynd í ís-
lenskri náttúru, sam alltof fáir
virðast sjá og taka eftir í hraða
nútímaþjóðfélagsins. Island á
enn aö vera „ómengað land“ í
ræðu og riti og mengun þar helst
nefnd í sambandi við „skógar-
högg og gróðureyóingu“, sem
liðnu bændasamfélagi er um
kennt, samfélagi sem í einangmn
sinni og sárri fátækt eyddi þess-
um landsins gæðum, ekki að
gamni sínu, heldur af illri nauð-
syn, sér og sínum til lífs. Högum
þessa fólks virðast margir nú
gleyma, hafa heldur kannski
ekki haft tíma til aó hugleiða
kjör þess, en þann tíma hef ég
haft og vil nota þetta tækifæri til
að votta þessu látna fólki viró-
ingu mína. Með dugnaði sínum,
þrautseigju og þrekraunum
gegnum hörmungar eldgosa,
hafísára og í öðrum hung-
ursneyðarhörmungum liðinna
alda lifði þaö af í okkar harðbýla
landi og færði okkur núlifandi
Islendingum með því líf okkar
og aldamótakynslóð þess þæg-
indi og velmegun nútímans að
auki, sem við ættum öll aó
kunna að meta, virða og þakka.
En þaö ætti líka að vera okkur
alvarlegt umhugsunarefni af
hverju nær árvissar fiskigöngur
fram undir miója þessa öld,
ganga nú ekki lengur inn á flóa
og firði landins, hvers vegna
ferskvatnsfiskurinn sést ekki
lengur í smáám og lækjum, þar
sem hann klaktist út og ólst upp
fram undir miöja þessa öld, og
fyrir hvað er mófuglalíf landsins
nú að hverfa? Svörin við öllum
þessum ógnvænlegu spumingum
má öll sjá í náttúrulífinu hér í
Fljótum í Skagafirði og svo mun
víóar vera á landsbyggðinni.
Náttúrulífseyöingin nú er
bein afleiðing breyttra búskapar-
hátta í landinu, tæknivæðingar
nútímaþjóöfélagsins, rányrkju
fiskimiðana og illrar meðferðar
náttúmauðlinda ásamt mengunar
nútímasamfélagins á náttúruna.
Nánari svör orsaka og afleiðinga
liggja mér í augum uppi, augljós
og skýr. En það er ekki nóg að
gamall búlaus bóndi og veiði-
maður norður í Fljótum sjái og
viðurkenni mengunina og nátt-
úmlífseyðilegginguna, sem nú er
að eiga sér stað. Það þarf þjóðfé-
lagið í heild sinni að gera. Þar
þurfa allir að leggjast á eitt ef
ekki á verr að fara nú fyrir okkar
velferóarþjóófélagi í samskiptum
við náttúmna en fór fyrir bænda-
samfélaginu um aldir.
Lífríkiseyðilegginguna bæði
Guðbrandur Þór Jónsson.
á láði og legi verður þjóðfélagið
að stöðva áður en það er um
seinan. Þar er um lífshagsmuni
íslensku þjóðarinnar að ræða, því
að hið villta náttúmlífríki lands
og sjávar er dýrmætasta auðlind
þjóðarinnar“ auðlind sem þjóóin
er búin að lifa á og með í landinu
um aldir. Þar var og er „fjöregg
þjóðarinnar“ sem engin „matar-
karfa ífá Bmssel“ eóa neinu öðm
stórveldi getur komið í staðinn
fyrir og velferðarþjóðfélagi nú-
tímans ber skylda til að vaiðveita
og skila til komandi kynslóða,
annars er illa komið fyrir framtíð
íslensku þjóðarinnar í okkar
sumarfagra landi, sem þá hljóta
að bíóa sömu örlög og villta nátt-
úmlífsins. Fari svo hefur velferð-
arþjóðfélag okkar tíma farið illa
meó þjóðarinnar góðu gáfur, illa
farið með þjóðarinnar miklu
menntun, illa farið með þjóóar-
innar miklu tækni og illa farið
með þjóðarinnar miklu velmeg-
un á síðari hluta þessarar aldar.
Þá hefur íslenska þjóðin illa leik-
ið „mlluna“ sína á leiksviði ís-
lensku náttúmnnar.
Saurbæ í Fljótum
Guðbrandur Þór Jónsson.
Gyða Ölvisdóttir og Elísabet Sigurgeirsdóttir. Mynd/S.Kr J.
Málverkasýning á Blönduósi
Frá sumardeginum fyrsta hafa þær stöllur Gyða Ölvis-
dóttir og Elísabet Sigurgeirsdóttir staðið fyrir sýningu á
verkum sínum á Hótelinu á Blönduósi. Sýningin stendur
fram til næsta mánudags 8. maí, og Húnvetningar og aórir
þeir sem áhuga hafa á því að líta inn á Hótelið og skoða
sýninguna hafa því enn upp á nokkra daga að hlaupa.
Opnum fimmtudaginn 4. maí kl. 13
Bílasölu - Bílaleigu
Borgartúni 8 Sauóárkróki
Vantar bíla á skrá og til að standa á rúmgóðu útisvæói. Látum
söluskoða alla bíla af fagmönnum sé þess óskað.
Ath. starfsábyrgóartrygging bifreiöasala samkvæmt nýjum
lögum.
Auglýsum bílinn þinn meö mynd þér að kostnaóarlausu. Til
sýnis þrír nýir Hyundai Accent (reynsluakstur).
Reynið vióskiptin. Heitt á könnunni.
Greiöslukortaþjónusta
Opiö virka daga kl. 10-18 og laugardaga 13-16 eða eftir
samkomulagi.
Bílaleiga Skagafjarðar sf - Bílasala
Borgartúni 8 550 Sauðárkróki
sími 95-36399, 95-36050, fax. 95-36035.
Heimasími sölumanns 95-35410, Gylfi.