Feykir - 03.05.1995, Page 6
6FEYKIR 16/1995
værir meö oss í vetur frændi."
Ingimundur kvaðst fyrir hinu ráð hafa gert og svo
gerðu þeir. Ingjaldur tók við þeim forkunnar vel og
sýndi á sér aufúsusvip og voru þeir þar um veturinn
það er eftir var. Og er voraði þá segir Ingimundur að
hann vill að þeir búi ferð sína í hemað, segir þá nú til
alls betur færa en fyrr. Ingjaldur kvað það sannindi.
Síðan fóru þeir annað sumar í hemað og fengu
miklar tekjur fjár af reyfurum og ránsmönnum þeim
sem lögðust á fé bænda eða kaupmanna, fóra svo um
sumarið.
‘fÞáttKó
*7&xtc: Pón/i. /4d**ut*tddd.
29. Ingimundur tjáði Grími að hann ætlaði heim
til föður síns að hausti og vera þar um veturinn með
tuttugu menn.
Það fannst á heldur að Þorsteini þótti nokkuð svo
vita ofsa þarvist þeirra og eigi með fullri forsjá.
Ingimundur svarar „Eigi líst mér svo og eigi áttu
svo að mæla og sannrlega er hitt að þú beióist slíks í
móti sem þú vilt af fjáraflanum eftir siðvenju her-
manna og neyta þess svo að sæmd fylgi. Nú samir
þér vel að veita oss vistina með vorum tilföngum."
Þórdís mælti: „Vel er slíkt mælt og drengilega og
svo mundi gert hafa móðurfaðir þinn.“
30. Þorsteinn mælti: „Eg skal og svo gera og er
sköralega mælt.“
Þar era þeir um veturinn fram um jól og er þar
góð vist og glaðleg. Öllum þótti mikils um Ingimund
vert, bæói um háttu hans og yfirbragð. Hann var
kænn við alla leika og að allri atgervi vel fær og óá-
gjam við sér minni menn en harðfengur og framgjam
við sína óvini.
Og er jól leió mælti Ingimundur til föður síns:
„Nú munum vér kumpánar fara til fóstra míns og
vera þar það sem eftir er vetrar því að hann mun
kunna þökk aö vér séum þar.“
32. Þá mælti Ingimundur: „Ef eigi verða stórar
mannraunir í voram feróum þá er einstætt að fara
með hemaðinum drengilega."
Allir hlýddu hans boði og banni.
Og er nokkuð svo var haustað komu þeir við
Svíasker. Þar vora víkingar fyrir og bjuggust þegar
hvorirtveggja til bardaga og börðust fyrst með skot-
um og grjóti. Engi var liðsmunur. Þar urðu margir
menn sárir af hvorumtveggjum. Ingimundur fékk þar
góðan orðstír þann dag og sannarlega þóttust þeir
góðum höfóingjum þjóna er hans menn vora. Og er
kveldaói varð á hvíld nokkur bardaganum.
Karlakór Bólstaða-
hlíðarhrepps sjötugur
sunnudaginn fyrsta í sumri 1995
Sunnudaginn fyrsta í sumri
1925 hélt Karlakór Bólstaðahlíó-
arhrepps sína fyrstu tónleika, en
þeim stjómaði Guðmunda Jóns-
dóttir frá Eyvindarstöðum systir
Gísla Jónssonar, en hann var
söngstjóri þennan fyrsta vetur,
meðan bróðir hans Þorsteinn
sinnti námi sínu við Hólaskóla.
Var söngnum mjög vel tekið og
endurtekin mörg lög, en söng-
skráin var að vísu aðeins 8 lög
og flest útlend. Þorsteinn bróðir
þeirra var síóan söngstjóri kórs-
ins ásamt Gísla fyrstu 20 árin.
Þessi söngvinu systkini voru böm
Eyvindarstaðahjóna, en Osk Gísla-
dóttir móðir þeirra ólst líka upp í
söngglöðum og íjölmennum syst-
kinahópi þar á Eyvindarstöóum.
Hún var föðursystir Agústar Andr-
éssonareins af stofnendum kórsins.
Fyrsta jarðarför, sem kórinn
söng vió var útför sr. Stefáns M.
Jónssonar á Auðkúlu 1930. Kór-
inn æfði vandlega útfararsálma,
sem hann flutti síðan og þótti
söngur hans takast vel. Síóan
hefur kórinn sungið við nær allar
jarðarfarir í sinni heimasveit og í
Svínavatnshreppi eftir að Svín-
vetningar fóm að taka þátt í kór-
starfinu, en það geróist eftir að
Blöndubrúin var byggð 1952.
Stundum hefur hann farið í önn-
ur hémð til aö syngja yfir göml-
um félögum eða fólki tengdu
kórnum. Einhver lengsta ferð
þeirra var fyrir miðja öldina til aó
syngja yfir Margréti frá Kolvið-
amesi móður Tryggva í Finns-
tungu. Hún var jöróuó ffá Rauða-
melskirkju og kórmenn komu í
bíl aö austan til athafnarinnar og
fóm síðan heim um nóttina svo
þetta hefur verió erfið ferð.
Þessi þáttur í starfsemi kórs-
ins hefur oft lagt á herðar söngfé-
laganna erfið ferðalög til æfinga
og jarðarfara, en einnig hefur
þessi skylda cflt samhug og sam-
Skagstrendingar
í pungaprófi
Þann 12. apríl sl. luku 17
nemendur Farskóla Norðurlands
vestra námi til 30 rúmlesta skips-
stjómarréttinda. Námskeiðið var
haldið í Höfðaskóla á Skaga-
strönd, en mikið og gott sam-
starf hefur verið milli Farskóla
Noröurlands vestra og grunn-
skólanna í kjördæminu. Aðal-
kennari á námskeiðinu var Gylfi
Guðjónsson stýrimaður á frysti-
togaranum Amari.
Nemendur sem stundað hafa
nám fyrir tilstilli Farskólans em
nú orðnir ríflega 400, en hann
hóf starfsemi sína haustið 1993.
Skipulagsstjóri skólans frá 15.
janúar 1995 er Anna Kristín
Gunnarsdóttir.
Karlakór Bólstaðahlíðarhrepps syngur í Víðistaðakirkju. Mynd/Heiðmar Ingi.
heldni og kannski hefur einmitt
þetta hlutverk kórsins orðið til að
skapa honum sinn háa aldur.
Tungubræður, þeir Jónas og
Jón í Artúnum Tryggvasynir,
tóku við stjóm kórsins 1945, er
Þorsteinn Jónsson flutti til
Blönduóss. Jónas stjómaði kóm-
um í fimm ár en Jón var söng-
stjóri í alls 35 ár. Faðir þeirra,
Tryggvi í Finnstungu, var einn
stofnenda kórsins og fyrsti for-
maður og gegndi því starfi í
meira en tvo áratugi.
Gestur Guðmundsson rafvirki
og söngvari á Blönduósi var
söngstjóri kórsins um langt ára-
bil ásamt Jóni og síðan, er Jón
hætti, eini söngstjóri hans. Sl. tvö
ár hefur Sveinn Amason tónlist-
arkennari og organisti á Víðimel
verið söngstjóri kórsins og
stjómaði hann kómum á söng-
skemmtun í Víóistaðakirkju 21.
apríl sl., scm var fyrsti föstudag-
ur í sumri og þá vom einmitt nær
70 ár lióin frá þeirra fyrsta sam-
söng. Kórinn hóf söngskrána á
sama lagi sem þá, þ.e. Heill þér
fold eftir Wetterling.
Söngur kórsins í Víðistaða-
kirkju bar engin ellimerki. Margt
kórfélaga em ungir menn, tenór
er fjölmennari bössum, söngur-
inn ömggur og líflegur, og ein-
söngur Svavars Jóhannssonar í
Litladal og Jónu Fanneyjar dótt-
ur hans tókst mcó ágætum. Sig-
urður Ingvi og Sigfús Guð-
mundsson sungu líka ágætlega
sinn einsöng. Söngstjórinn
Sveinn og kórinn glöddu hjörtu
margra norðanmanna og annarra
sem hlýddu á sönginn þar í kirkj-
unni og þeim fylgja norður hlýj-
ar afmælisóskir.
Fyrstu söngstjórar karlakórs-
ins, þeir Gísli, Þorsteinn, Jónas
og fleiri hafa samið margt söng-
laga íyrir kórinn, og mörg þess-
ara laga em varðveitt í aftnælis-
ritinu Tónar í tómstundum ftá 35
ára afmæli kórsins. Þar rekur
séra Gunnar Ámason frá Æsu-
stöðum sögu kórsins og þar em
varóveittar ítarlegar upplýsingar
um sögu kórsins.
Rökkurkórinn hélt tónleikana
í Víðistaðakirkju ásamt karla-
kómum, en Svcinn er söngstjóri
beggja kóranna. Sömuleiðis hafa
báðir kóramir sama undirleikar-
ann, traustan og góðan, sem er
Thomas Higgerson tónlistar-
kennari í Vamiahlíð.
Söngur Rökkurkórsins var
góður og þar komu fram ágætir
einsöngvarar. Formaður Rökkur-
kórsins, Árdís á Vatnsleysu, átti
stóran þátt í skipulagi þessarar
ferðar, sem tókst glæsilega.
Skrifað á Flúðum sunnudag-
inn fyrsta í sumri 1995.
Ingi Heiðmar Jónsson.