Feykir - 03.05.1995, Page 7
17/1995 FEYKIR7
Hver er
maðurinn?
Góð svör bárust um seinustu
myndir og margir höfðu sam-
band: Sigurlaug Sveinsdóttir,
Ogmundur Svavarsson, Ósk
Sigurðardóttir, Sigurlaug Jóns-
dóttir, Brynjar Pálsson. Öllum
eru þeim færðar bestu þakkir.
Nr. 50 reyndist vera Guðrún
Björnsdóttir, Skúlasonar frá
Sauðárkróki og bróóir hennar,
Hafsteinn Bjömsson miðill var á
mynd nr. 52. Nr. 51 var af Hans-
ínu dóttur Jóns Jónssonar Skag-
firðings, sem kallaður var. Ekki
hafa fengist áreiðanlegar upplýs-
ingar um mynd nr. 49.
Óvíst er hvort óþckktu mynd-
imar að þessu sinni eru af Skag-
firðingum. Nr. 53 og 55 eru teknar
af ljósmyndurum í Reykjavík, en
hinar á Akureyri. Vinsamlegast
komió upplýsingum til Héraös-
skjalasafnsins á Sauðárkróki, sími
95-36640.
Mynd nr. 53.
Mynd nr. 55.
Bragi Reynir Axelsson
Bragi Reynir Axelsson fædd-
ist 16. nóvember 1954 og lést
þann 5. apríl sl. Hann lætur eftir
sig eiginkonu, Guðbjörgu Hin-
riksdóttur og barn þeirra Ingu
Jónu auk bama Guóbjargar, Hin-
rik Inga og Þorgrím Gunnar.
Foreldrar Braga em Axel Þor-
steinsson og Kristbjörg Sigur-
jóna Bjamadóttir. Þau em búsett
að Litlu-Brekku á Höfðaströnd.
Bragi er elstur sex systkina, en
þau em Ingibjörg, Bjami, Aldís
Guörún, Guðný Hólmfríður og
Þorsteinn.
Bragi hóf störf hjá Rafmagns-
veitum ríkisins 21 árs að aldri og
starfaði við byggingu háspennu-
línu þ.m.t. byggðalínu og einnig
vió rekstur dreifikerfis fyrirtæk-
isins. Eftir að hafa unnið við
línubyggingar víða um land hóf
Bragi að læra rafvirkjun árið
1986. Rafvirki varð hann árið
1990 og rafveituvirki 1992.
Bragi varó flokksstjóri raf-
virkja og línumanna strax og
hann var rafvirki. Til Blönduóss
llutti fjölskyldan árið 1990 og
þar tók Bragi við ábyrgðarmiklu
starfi sem flokksstjóri hjá Raf-
magnsveitunum sem hann
gegndi uns hann lést.
Margir nutu góðs af þeirri
reynslu sem Bragi öðlaóist hjá
Rafmagnsveitunum og oft var
hann fenginn til að sýna yngri
starfsmönnum verklag, sem hann
gerði ætíð fúslega. Bragi var
mjög eftirsóttur starfsmaður.
Hann leysti verk sín ætíó vel af
hendi og víða má þekkja hand-
bragð hans af góðum frágangi.
Hann var sérstaklega ósérhlífinn,
verklaginn og ábyggilegur. Hann
naut virðingar allra samstarfs-
manna sinna sem og yfirmanna.
Bragi var mjög einlægur og
góóur félagi. Hann hafði einstak-
lega góða og létta lund og er
hans sárt saknað.
Guóbjörgu, bömunum, for-
eldmm, systkinum, tengdafor-
eldmm og öðmm aðstandendum
vottum við okkar innilcgustu
samúð.
Haukur Asgeirsson og sam-
starfsfólk á Norðurlandi vestra.
VINNUSKÚR ÓSKAST!
Góður 20-50 fermetra vinnuskúr óskast
keyptur. Tekið á móti upplýsingum í
síma 95-35257 virka daga frá kl. 8-17
(Páll eða Halldór).
Einnig má senda upplýsingar á fax
95-36267.
Mynd nr. 54.
Mynd nr. 56.
Ókeypissmáar
Til sölu!
Til sölu Susuky Alto árgerð
1980. Fæst fyrir lítinn pening.
Upplýsingar í síma 38031.
Til sölu sem ný, vönduö ítölsk
harmonikka. Upplýsingar í sínia
38031.
Til sölu Emmaljunga bamakerra
og stóll á reiðhjól. Upplýsingar í
síma 35914.
Til sölu Eurostar 20 tomniu
stelpnahjól, ágætt fyrir 7-10
ára.Verð 5000 krónur. Upplýs-
ingar í síma 35225.
Hlutir óskast!
Óska eftir vel meðfömum Combi
Camp Family tjaldvagni. Upp-
lýsingar í síma 95-35853.
Óska eftir húsi og bretti á Zetor
4718 dráttarvél. Upplýsingar í
síma 36523.
Óska eftir gönguskíðum 180 sm,
skíðastöfum ca 135 snt. og skíða-
skóm nr. 39. A sama stað óskast
overlock saumavél. Upplýsingar
gefur Jónína í síma 95-12533.
Au-pair óskast!
Þýsk fjölskylda óskar eftir aupair
til almennra heimilsstarfa. Má
ekki rcykja. Upplýsingar í síma
35452.
Bændur
Skorin bíldekk,
hentug í mottur
undir hross, fást hjá
Verslun
Haraldar
Aðalgötu 22
Sauðárkróki
sími 35124.
Askrifendur Feykis!
Þeir sem enn hafa ekki greitt heimsenda
gíróseðla fyrir áskriftargjöldum eru vinsamlega
beónir aó gera þaó hió allra fyrsta.
OPNUN HRAÐBANKA
Á SAUÐÁRKRÓKI
Þann 5. maí n.k. mun Búnaðarbankinn
opna nýjan HRAÐBANKA í anddyri
SKA GFIRÐINGABÚÐAR.
í tilefni opnunarþessa nýja HRAÐBANKA
okkar í Skagfirðingabúð, höfum við ákveðið
að bjóða upp á ókeypis myndatöku vegna
DEBETKORTA í Skagfirðingabúð
föstudaginn 5. maí nk. eftir hádegi og
laugardaginn 6. maí, meðan búðin er opin
frá 10-14.
Starfsmaður bankans verður á staðnum og
tekur á móti umsóknum um debetkort og
veitir upplýsingar.
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
ÚTIBÚIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI