Feykir - 03.05.1995, Síða 8
3. maí 1995,17. tölublað 15. árgangur.
Auglýsing í Feyki fer víða!
Það komast allir í Gengið
unglingaklúbb Landsbankans
ISIáðu til og komdu í Gengið
Pottþéttur klúbbur!
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Unglingar í Grósku, íþróttafélagi fatlaðra í Skagafirði, stóðu sig
vel á Hængsmótinu sem fram fór á Akureyri sl. laugardag. Aðal-
heiður Bára Steinsdóttir sigraði í sérflokki í boccia þar sem
rennur eru notaðar sem hjálpartæki og Steinar Bjömsson varð
í þriðja sæti. Þá sigraði Rökkvi Sigurlaugsson í opnum flokki í
boccia. A myndinni em þau Aðalheiður og Steinar að taka á
móti verðlaunum sínum ásamt Hermanni Gunnarssyni sem
varð heiðursgestur mótsins.
Útlit fyrir lélega
grásleppuvertíð
Framkvæmdir hjá Blönduósbæ í sumar:
Viðlegukantur við bryggjuna
langstærsta framkvæmdin
Flest bendir til að grásleppu-
vertíðin á þessu vori verði
ákaflega léleg. Grásleppu-
bændur á Norðvesturlandi
hafí flestir ekki einu sinni náð
10 tunnum, sem er ákaflega
lítið. Svolítill bati virtist vera
að koma í veiðarnar á dögun-
um, en síðan minnkaði hún
aitur. Malmánuður verður að
gefa sérstaklega vel ef vertíðin
á að komast upp í það að telj-
ast þokkaleg.
Veiðamar viróast vera jafnlé-
legar á öllu svæðinu. Mikil
þorskgengd var út með Skagan-
um í byrjun vertíðar og hefði
grásleppan þá ekki komist í
trossumarþó hún hafði verið til
staðar. Bændur á Skaga eru
flestir komnir með tæpar 10
tunnur og veiðar munu vera
álíka annars staóar. Oskar
Hjaltason á Hofsósi sagðist ekki
muna eftir því að vertíðin hefði
byrjað jafnilla og núna. Það
hefði gjörsamlega ekki verið
neitt í netunum.
Það hefur þótt gott á þessari
vertíð að fá 40-50 grásleppur í
trossuna. Mjög margir bátar
stunda veiðamar að þessu sinni,
enda gott verð sem greitt er íyrir
hrogin. Rúmlega 70 þúsund fyrir
tunnuna. Mestur er fjöldi báta frá
Siglufirði og þar tala menn um
að nánast sé girt með grásleppu-
netum á miðunum.
Grásleppuvertíóin stendur
venjulega fram í miðjan júní.
Seinnihluti vertíðar hefur þó ver-
ið ódrjúgur að því leyti að þá er
grásleppan komin upp á gmnnið
og því erfiðara að ná henni.
Aðalframkvæmdin hjá Blöndu-
ósbæ í sumar verður gerð við-
legukants við bryggjuna. Hönn-
un er ekki lokið en að sögn
Skúla Þórðarsonar bæjar-
stjóra er reiknað með að verk-
ið verði boðið út um næstu
mánaðamót og framkvæmd-
irnar munu eiga sér stað í júlí
og ágúst. Gert er ráð fyrir að
gerð viðlegukantsins kosti á
bilinu 15 til 20 milljónir.
„Aörar framkvæmdir verða
viöhald bygginga bæjarins, svo
sem gmnnskólans og leikskól-
ans, og viðhald gatna og hol-
ræsakerfis. Undanfarið hefur
verið unnið að undirbúningi og
skipulagningu varðandi þessar
framkvæmdir', sagði Skúli.
Þá má einnig geta þess að
innan skamms verður boðin út
ræsting í skólum og öðrum
vinnustöðum á vegum Blöndu-
ósbæjar, en í vetur var fimm að-
ilum er sinna ræstingunni sagt
upp störfum. Að sögn bæjar-
stjóra er þaó nýlunda að bærinn
bjóði út þjónustu sem hann
kaupir. „Það hafa verið deildar
meiningar um réttmæti þessa í
bænum, enda er það alltaf spum-
ing hversu langt á að ganga í að
ná fram hagræðingu, þegar segja
þarf fólki upp störfum“, segir
Skúli Þórðarson bæjarstjóri.
Skagaströnd:
Leki í vatns-
veitunni
Skagstrendingar hafa ekki
fengið kalt vatn i krana sína
eins og skyldi undanfarna
daga og er ástæðan leki í
dreifikerfi vatnsveitu bæjarins.
Að sögn Magnúsar Jónssonar
sveitarstjóra standa vonir til að
takist að laga lekann á næstu
dögum, en ákaflega erfitt reynist
að finna hann enda víða í kerf-
inu. Magnús sagði að það hefði
komið fyrir áður aó slíkur leki
kæmi upp í dreifikerfinu, sér-
staklega að vori til. Ekki sé gott
að benda á sérstaka ástæðu fyrir
þessu, en lekinn sé víóar í kerf-
inu núna en jafnan áður.
Oddvitinn
Það er ekki auðvelt að setja
undir þennan leka.
Hluti hóps skólamannanna frá Svíþjóð ásamt Ieiðsögumönnum
sínum úti í Drangey. Þetta var fyrsta ferðin sem farin var út í
Drangey á þessu vori. Mynd/Valgeir Kárason.
Svíar kynna sér
áfangakerfið í FNV
Þann 30. apríl kom 20 manna
hópur skólamanna frá Sviþjóð
í þeim erindagjörðum að
kynna sér íslenska áfangakerf-
ið á framhaldsskólastiginu.
Fyrir valinu varð Fjölbrauta-
skóli Norðurlands vestra á
Sauðárkróki. Ársæll Guð-
mundsson aðstoðarskólameist-
ari segir það vissulega vera
mikla viðurkenningu fyrir
skólann að þar sé leitað fróð-
leiks og þckkingar frá öðrum
þjóðum.
Þann 1. maí fóru þrír kennarar
Fjölbrautaskólans, þeir Valgeir
Kárason, Jón Ámi Friðjónsson
og Geirlaugur Magnússon með
allan hópinn út í Drangey en um
morguninn höfðu þeir farið í
skoðunarferö um Skagafjörð.
Annan maí sátu Svíamir fyrirlestur
Arsæls Guömundssonar aðstoð-
arskólameistara um Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra og
áfangakerfió. Eftir hádegið var
farið aö Hólum og tók Jón Bjama-
son á móti hópnum þar og leiddi
Svíana í allan sannleikann um
þann sögulfæga stað og skólann.
í dag (miðvikudag) mun svo
hópurinn kynna sér fjölbrauta-
skólann og sitja kennslustundir
ásamt því að skiptast á skoóun-
um við kennara skólans. I hópn-
um er 10 manna vinnuhópur sem
eingöngu er aó kynna sér hvem-
ing áfangakerfió er útfært I þeim
hópi er fræðslustjóri og yfirmaö-
ur allra framhaldsskóla í Vaxjö
ásamt fjórum skólameisturum en
áætlað er að bjóða upp á fram-
haldsnám í Vaxjö með áfanga-
sniði þegar haustið 1996. Svíam-
ir halda af landi brott fimmtudag-
inn 3. maí.
Gæóaframköllun
BQKABIJÐ
BROTJARS