Feykir - 27.09.1995, Qupperneq 4
4FEYKIR 33/1995
„Nógir eru erfiðleikarnir, þó menn fari ekki að
koma saman til að gera hvern annan vitlausan"
Agnar i. Levý í Hrísakoti í hispurslausu viðtali
„Þaó er fyrst og ífemst grasiö hér í sveitinni sem viö veró-
um aö lifa af og ef viö getum ekki nýtt þaó í framtíóinni er
illa komið. Menn hafa verið meö alls konar átaksverkefni
og viö höíum oróið aö taka þátt í því, þó mér finnist þetta
afspymuvitlaust. Heimilisiönaður húsmæöra; aö prjóna og
mála, og gera keramik í skólanum. Þetta er gaman til aö
drepa tímann, en þetta skapar engar tekjur á móti því sem
að hefur tapast í hefðbundnu búgreinunum. Og ferðaþjón-
ustan á að taka yfir þetta líka. Hvemig í ósköpunum halda
menn að bændur geti orðið þjónustuaðilar þegar þeir
koma sér ekki einu sinni saman viö hvom annan. Svo eiga
þeir allt í einu að fara aó þjónusta ferðamenn. Þetta allt
saman er svo sem ágætt meö en að halda aó menn geti
skipt yfir í þetta, gengur ekki upp. Eg held aö menn séu að
veröa bilaóir. Menn koma á fundi og fundi til að leita leióa
og tala um þaö sem ekki er hægt. Eg er svoleiðis orðinn
hundleiöur á því. Annars hef ég trú á því aó þessi búskap-
ur í dag eigi eftir aó snúast í andhveríu sínu eftir nokkur ár.
Þá verði komin upp sú staóa að menn geti afsett sínar af-
uróir“, segir Agnar J. Leví bóndi, oddviti og hreppstjóri í
Hrísakoti í Vestur-Hópi. Agnar hefur ákveönar skoóanir á
málum og lét þær t.d. hressilega í ljósi þegar sameiningar-
málin vom uppi fyrir nokkmm missemm.
talsins 1. desember sl., og virðist fara fækkandi eins og þróunin
er víða til sveita.
„Eg er ekkert á móti samein-
ingum sé eitthvert vit í þeim. Ég
er bara ekkert hrifinn af því að
einhverjir karlar úr Reykjavík
komi og sameiningin eigi að
ganga út á að við eigum aó
bjarga þeim út úr einhverju rugli
sem þeir hafa búið til. Þeir geta
bara étió þaó ofan í sig sjálfir.
Ég er líka alfarið á móti því að
sveitarfélögin þurfi að senda sitt
aflafé suður og fái það síðan
skammtað til baka. Ég vil að vió
eigum okkar peninga sjálf og
sendum þeim það suður sem fer
í sameiginlegan kostnað“.
Dæmalaust kjaftæði
Nú er fyrirsjáanlegt að sveit-
arfélögin taki við rekstri grunn-
skólanna um mitt næsta ár.
Verður ekki erfitt fyrir jafnfá-
mennan hrepp og Þverárhrepp
að standa að rekstri skólans,
Vestuihópsskóla?
„Jú það gefur auga leið og
það kæmi mér ekki á óvart þó að
það mundi reynast erfitt aó reka
einn skóla í sýslunni. Þó að
sveitafélögin hér hefðu samein-
ast og það hefði verið keyrt á
rekstur eins skóla, þá stendur
það eftir að það er ekki verið að
hugsa um bömin. Þau em ekki
inni á blaði. Það er bara verið að
hugsa um aö fullnægja ákvæói
laga um að böm fái kennslu. Nú
svo þetta dæmalausa kjaftæði
með að lengja skóla í tíu mán-
uði. Bara vegna þess að þeir í
Reykjavík þurfa bamapössun.“
Ertu þá að segja aó þessi
minni skólar geti ekki sinnt
þeirri kennsluskyldu sem þeim
er ætlað?
,J»að hlýtur að koma út á það.
Og þessi breyting er fyrst og
fremst orðin vegna þess að
sveitarstjómarmenn hafa verið
svo vitlausir að þeir hafa aldrei
komið saman öðruvísi en að
biðja um að fá einhver veikeíhi
frá ríkinu. Menn hafa sagt að
heimaaðilar væm betur í stakk
búnir en ríkið að skipuleggja
ýmsiss verkefhi heima fyrir. Ég
veit ekki af hverju þetta mikil-
mennskubrjálæöi stafar eigin-
lega. Nú liggur það t.d. fyrir aó
ríkið hefur víðast hvar ekki staó-
ió við framkvæmd skólahaldsins
eins og lögin segja til um. En nú
er sem sagt komið að þessu og
þá snýst málið væntanlega við.
Nú fáum við verkefhið og ríkið
verður með lagasafnið. Þeir lesa
úr lagasafninu og segja, „nú
framkvæmið þið þetta svona
annars sjáum við okkur ekki
fært að greiða ykkur neitt, fyrr
en þessu hefur verið kippt í lag.“
Þetta er borðliggjandi, enda því í
ósköpunum ætti mönnum að líð-
ast að halda uppi skóla sem ekki
fer eftir lögunum um kennslu-
skyldu.
Fólkið gerir þetta sjálft
Ég held að það yrói ekki til
góðs aó sameina skólana og
minni skólamir mundu detta út.
Við höfum haldið fram að úr
litlu skólunum kæmu betri ein-
staklingar, og þeir séu þær bestu
uppeldisstöövar sem til em“.
Samkvæmt manntali 1. des.
sl. vom 92 íbúar í Þverárhreppi
og fer hreppsbúum heldur fækk-
andi. Það liggur því beinast við
að spyrja hvort lítið sé um fram-
kvæmdir á vegum hreppsfélags-
ins?
,Éig lít ekki svo á að hrepps-
félagið eigi endilega að standa
fyrir einhverjum framkvæmd-
um, enda yrði þá spurningin
hvað þarf að gera? Við stöndum
að nauðsynlegustu þjónustu, en
reyndar er það snjómoksturinn
sem stendur svolítið í okkur,
eins og t.d. síðasta vetur. Ég held
að hreppsfélögin eigi ífekar að
hliðra til viö íbúana, t.d. með
bærilegri sköttum. Það þýðir
ekkert að vera að rjúka í einhver
verkefni eins og þeir gera í
Reykjavík. Hér er það bara fólk-
ið sem sér um ffamkvæmdimar
sjálft, en að sjálfsögðu leggur
hreppurinn fram sitt framlag til
félagslegra verkefna í gegnum
héraðsnefhdina".
Hefur verið byggt eitthvað í
hreppnum undanfarið?
,Já í fyrra vom byggð íbúðar-
hús á Stómborg og Súluvöllum
og í ár er verið að byggja véla-
geymslu á Ægissíðu og hesthús
á Hvoli. Síðan em alltaf að bæt-
ast við sumarbústaóir hér í
hreppnum jafht og þétt. Hér er
skipulagt svæði fyrir sumahúsa-
byggð við Vesturhópsvatn og
þar bætast við bústaðir á hverju
ári“.
Nágrannar ykkar kalla svæð-
ið á Vatsnesinu „Grænland".
„Já þeir öfunda okkur alltaf
svolíúð af því hvað er grænt og
búsældarlegt héma útffá. En það
er kannski líka fyrir það að þeg-
ar þeir horfa í átt til Vatnsnes-
fjallsins að vetrinum sjá þeir off
ansi mikinn snjó. Annars held ég
þeir hafi lítið talað um það síð-
asta vetur. Það var þá eiginlega
verra hjá þeim“.
Verður að vera
meinlaust
Mér er sagt að þú sért aðal
annálsritarinn í þinni sveit þegar
kemur að þorrablótinu?
„Ég hef lent í því í nokkur ár
að semja pistla fyrir þorrablótið.
En það er fjöldinn allur af fólki
sem getur þetta.“
Ertu þá að skjóta svolítið á
sveitungana?
,Jíkki þannig að ég sé að taka
þá á beinið og hakka þá í mig.
Það verður að gera þetta þannig
að það sé meinlaust og sá sem í
hlut á hafi gaman af og fyrtist
ekki. Það er reyndar þannig í
sumum sveitarfélögum skilst
mér að þaö sé talið mjög æski-
legt að gera menn fokvonda, en
það er ekki þannig héma. Það er
bata út í hött. Nógir em erfið-
leikamir samt þó að menn séu
ekki að koma saman úl að gera
hvem annan vitlausan“.
Ertu búinn að ná þér í marga
nothæfa punkta frá síðasta blóú?
„Nei það er nú svo stutt síðan
það var. Vegna ófærðar og snjóa
komst það ekki á fyrr en um
miðjan júní. Þannig að ég hef lít-
ið í pokahominu ennþá, en eitt-
hvað samt. Sumir menn eru
alltaf svolíúð athyglisverðir, en á
öðmm bæjum gerist ekki nokkur
skapaður hlutur. Ef á að taka alla
með verður að ljúga einhverju
saklausu upp á þá“, sagði Agnar
í Hrísakoti að endingu.
„Já þeir öfunda okkur alltaf svolítið af því hvað er grænt
og búsæidariegt hérna útfrá“
Stóðréttardansleikur
Höfðaborg laugardagskvöld
Gautar frá Siglufirði
halda uppi fjörinu
Húsið opið bæði föstudags- og
laugardagkvöld kl. 20,00.