Feykir - 22.11.1995, Page 1
RAFVERKT AKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Sveitarfélögin tapa máli
gegn Landsvirkjun
Héraðsdómur Rvíkur fellst ekki á kröfu hreppa á Blöndusvæðinu
Héraðsdómur Reykjavíkur
heíur komist að þeirri niður-
stöðu að Landsvirkjun og
stjórnvöldum beri ekki að
greiða hreppum sem aðild
eiga að upprekstrarsvæðum
Blöndu bætur vegna virkjun-
arréttinda. Hrepparnir stefndu
Landsvirkjun til að greiða 50
milljónir króna fyrir virkjun-
arréttindin. Málin snérust
fyrst og fremst um eignarhald
hreppanna á Auðkúluheiði og
Eyvindarstaðaheiði. Niður-
staðan er í samræmi við það
sem lögfróðir menn hafa hald-
ið fram um eignarrétt sveitar-
félaga á afréttum, þegar deilur
hafa sprottið varðandi rétt
almennings til fuglaveiða á
heiðarlöndum.
Ríkisútvarpið greindi frá því í
hádegisfiréttum sl. mánudag aó
Héraðsdómur Reykjavíkur hefði
þá um morguninn dæmt í mál-
inu. Dómurinn, sem var þrískip-
aóur, komst aö þcirri niöurstööu
að hreppamir heföu ekki sýnt
fram á að heiðamar væru full-
komið eignarland þeirra. I
dómnum er farið yfir eignarhald
og nýtingu heiðanna um alda-
skeið, en gömul skjöl eru ekki
talin skera úr um hvort um
fullkomið eignarland hafi verið
að ræða, eða hvort þar hafi ein-
ungis verió afréttareign. Dóm-
urinn telur afréttareign líklegri
og byggir niðurstöður sínar á
því, auk þess sem hann telur að
hefð hafi ekki leitt til fullkomins
eignarréttar sveitarfélaganna
fimm á heiðunum. En þau eru
Svínavatns-, Bólstaðahlíðar-, og
Torfalækjarhreppur í A.-Hún. og
Seylu-, og Lýtingsstaðahreppur í
Skagafirði.
Ekki náðist í Jóhann Guð-
mundsson í Holti oddvita Svína-
vatnshrepps, helsta talsmann
sveitarfélaganna, en telja má
fullvíst að dómnum verði áfríjað
til Hæstaréttar.
□
Rækjuveiðar hafnar á Húnaflóa
InnQarðarækjuveiðar á Húnaflóa hófust um
síðustu helgi, en sjávarútvegsráðuneytið leyfði
veiðarnar frá síðasta fimmtudegi, 16.
nóvember. Veiðarnar fara mun seinna af stað
nú en venjulega af þeirri ástæðu að mikill fjöldi
þorsk- og ýsuseiða var á miðunum í haust
þegar þau voru könnuð, meira en tvöfalt meira
magn en æskilegt þykir miðað við þau mörk
sem sett eru varðandi fjölda bolfiskseiða í
rækjunni.
Miðin voru könnuó að nýju af fjórum
heimabátum fyrir hálfum mánuði. Reyndist seiða-
fjöldinn vera orðinn innan viðmiðunarmarkanna,
sem er 800 stk. í tonninu, nema inni á Stein-
grímsfirði, innan Grímseyjar vió minni fjarðarins.
Kvóti hcfur ekki verið gefinn út á Húnaflóann
ennþá, þar sem að Unnur Skúladóttir fiskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknarstofnun, sem hefur meó
rækjumálin að gera, er stödd erlendis. Tveir
Hvammstangabátar hófu þegar veióar á
fimmtudaginn og leggja upp hjá Meleyri. Hafa
veiðar gengið vel þessa daga. Tveir bátar cru
byrjaðir veiðar frá Skagaströnd og leggja þeir báðir
upp hjá Hólanesi. Tveir bátar til viðbótar munu
stunda innfjarðarveiðamar frá Skagaströnd. Veiðar
á Skagafirði em hafnar fyrir nokkm. Þær stunda
Innfjarðarrækjan unnin í Meleyri.
fjórir bátar. Sauðárkróksbátamir þrír leggja upp hjá
Dögun, en Berghildur frá Hofsósi flytur rækjuna til
Siglufjarðar.
Þetta er annað árið sem rækjukvótinn er ekki
bundinn verksmiðjunum og hafa forráðamenn
rækjuverksmiðja verið talsvert uggandi um hvar
kvótinn lenti. Til að mynda hefur rækjuvinnslan á
Hólmavík misst sjö af tíu heimabátum úr vió-
skiptum nú í byrjun vertíðar. Bátaeigendur á
Hólmavík leituðu verðtilboða og leggja sjö
bátanna nú upp á Olafsvík.
Hér etja þeir kappi Skagfirðingurinn Konráð Kolbeinsson
t.h. og Guðmundur Asgrímsson frá Akureyri á Norður-
landsmóti í júdó, sem fram fór í íþróttahúsinu á Sauðárkróki
sl. sunnudag. Þar voru saman komin á sjöunda tug ungmenna
úr Skagafirði og frá Akureyri. Akureyringamir vom um 40
talsins og fjær á myndinni má sjá þjálfara þeirra og yfir-
dómara mótsins, Jón Oðinn Amason.
Styrktarball í 20 ár
í Húnaþingi
Árleg fjáröflunarsamkoma
fyrir Styrktarsjóð Húnvetninga
verður haldin nk. laugardags-
kvöld 25. nóvember í Félags-
heimilinu á Blönduósi. Styrkt-
arsjóðurinn var stofnaður af
nokkrum félögum í Austur-
Húnavatnssýslu 16. mars 1974
og hefúr starfað samfellt síðan,
eða í rúm 20 ár. Á laugar-
dagskvöldið verður boðið upp
á dansleik þar sem hin vinsæla
hljómsveit Norðan þrír + Ásdís
leikur fyrir dansi. Einnig
verður happdrætti til fjáröfl-
unar og þar er fjölda góðra
vinninga í boði.
I samþykktum sjóðsins segir
m.a.: „Markmið sjóðsins er að
veita héraðsbúum hjálp þegar
óvænta erfiðleika ber að höndum,
þó fyrst og fremst: a) hjálp í
erfiðum sjúkdómstilfellum þar
sem ekki er veitt næg aðstoð af
hálfu opinberra aðila, b) fjár-
framlög til kaupa á lækninga-
tækjum eða öðrum þeim tækjum,
eða aðstöóu, sem skapar bætta
sjúkrahjálp og heilsugæslu í
héraðinu.
Árlega hafa verið nokkrar
styrkveitingar úr sjóðnum og oft
hefúr verió um að ræóa upphæðir
sem verulega hefur munað um,
segir í tilkynningu frá sjóðs-
stjóminni.
—ICTc^lll fcpl—
Aðcdgötu 24 Skr. sími 453 5519, fcólas. 853 1419, fax 453 6019
Almenn verktakaþjónusta,
Frysti- og kœliþjónusta,
Bíla- og skiparaímagn,
Véla- og verkfœraþjónusta
Æí
bílaverkstæði
Sími 453 5141
Sœmundargötu 16 Sauðárkróki íax: 453 6140
Bílaviðgerðir Hjólbarðaverkstœði
Réttingar Sprautun