Fréttablaðið - 12.05.2016, Síða 22

Fréttablaðið - 12.05.2016, Síða 22
Í dag 17.00 The Players Golfstöðin 17.50 ÍBV - Víkingur Ó. Sport 2 19.30 KR - FH Sport 00.30 OKC - San Antonio Sport 19.15 Valur - Fylkir Valsvöllur 19.15 Stjarnan - Þróttur Samsung-v. 19.15 ÍA - Fjölnir Norðurálsv. Stórleikur veStur í bæ Þriðja umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta hefst í kvöld með fimm leikjum. Þar ber hæst leik kr og FH á Alvogen-vellinum. FH er með fullt hús stiga en kr aðeins tvö stig. kr-ingar mega því alls ekki við því að tapa fyrir íslandsmeistur- unum ef þeir ætla að taka þátt í titilbaráttunni í sumar. Stjörnu- menn, með sín sex stig, mæta nýliðum Þróttar í Garðabænum og hinir nýliðarnir, víkingar ó., sækja eyjamenn heim. Stigalaus lið vals og Fylk- is mætast á valsvell- inum og Fjölnismenn geta haldið sigurgöngu sinni áfram gegn Skaga- mönnum. 1 2 . m a í 2 0 1 6 F I m m T U D a G U R22 s p o R T ∙ F R É T T a B L a ð I ð sport Haukar svöruðu fyrir sig Staðan orðin jöfn Haukar unnu þriggja marka sigur, 25-28, á Aftureldingu í N1-höllinni í Mosfellsbæ í gær og jöfnuðu þar með metin í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla. Liðin mætast í þriðja sinn á Ásvöllum á laugardaginn. FRéTTABlAðið/AnTOn BRinK FóTBoLTI „Það hefur margt breyst síðan ég kom hingað síðast,“ sagði kevin keegan, fyrrverandi lands- liðsmaður og landsliðsþjálfari eng- lands, þegar Fréttablaðið settist niður með honum í hádegishléi á business and Football-ráðstefn- unni sem fram fór í Hörpu í gær. keegan var einn af frægum fótbolta- mönnum og þjálfurum sem sat pall- borðsumræður á ráðstefnunni. keegan kom síðast til íslands árið 1979 með Þýskalandsmeisturum Hamburg en hann var á þeim tíma besti leikmaður evrópu og handhafi Gullknattarins. Hamburg mætti val á laugardalsvellinum og vann auð- veldan sigur í tveimur leikjum. „Það var smá ævintýri að koma til íslands því þetta var ekki staður sem enskur maður eins og ég myndi heimsækja í fríinu sínu. kannski í dag reyndar, en á þeim tímum fór maður til Spánar eða þangað sem var heitt,“ segir keegan. „við vorum alveg smeykir fyrir svona leiki því við gátum lent í vandræðum ef við töpuðum illa. Það var alveg möguleiki því við vissum ekkert um íslenska liðið og maður vissi ekkert hvernig völlur yrði. Það var vetur þegar við komum og snjór úti um allt og kalt,“ bætir hann við en á þessum tíma var allt öðruvísi að spila evrópuleiki en í dag. „við renndum blint í sjóinn þarna en þannig var fótboltinn á þessum tíma. við höfðum ekkert séð val spila. Okkur var bara sagt að ákveð- inn leikmaður væri leikstjórnand- inn og að þeir spiluðu svona taktík. Svona var þetta gert í gamla daga en auðvitað hafa miklar breytingar orðið á þessu,“ segir keegan. Ekki svo mikið á óvart keegan er auðvitað staddur á land- inu vegna afreks íslenska lands- liðsins en ráðstefnan var sett upp í kringum þann árangur sem og árangur í viðskiptalífinu eftir hrun- ið. Hvernig horfir þessi árangur við keegan? „Þegar maður sér svona afrek eins og hjá íslandi fer maður að hugsa: Hvernig getur þetta gerst? Allir halda að fótbolti og íþróttir í heild- ina snúist bara um tölur. england er með svona og svona marga íbúa, Þýskaland svona marga og brasilía er stórt land,“ segir hann og fer svo að tala um hópinn. „en ég lít fyrst á þjálfarana. Hverjir eru þeir? Hjá íslandi er annar þeirra lars lagerbäck sem er þrautreyndur og þeir Heimir ná vel saman. Síðan lítur maður á leik- mennina og hvar þeir spila. Sumir eru á englandi en spila í næstefstu deild sem er líka sterk deild. Svo horfir maður á hina leikmennina og áttar sig á því að íslenska liðið er með hina fullkomnu blöndu,“ segir keegan, sem er ekkert gapandi vegna árangurs strákanna okkar. „Það kemur í raun ekkert svo mikið á óvart að ísland sé komið á eM ef maður horfir á heildarmynd- ina og það kæmi mér heldur ekki í opna skjöldu ef liðið kemst upp úr riðlinum. liðið er sterkt og með nógu marga góða leikmenn þótt breiddin sé ekki mikil.“ Verða að þora að sækja David Moyes, fyrrverandi knatt- spyrnustjóri everton og Manchester united, var í viðtali við Fréttablaðið á dögunum þar sem hann bað stuðningsmenn íslenska liðsins og íslensku þjóðina að halda vænting- unum niðri. keegan er ekki alveg á sama máli þótt hann skilji hvað Skotinn eigi við. „Það virðist vera í tísku að gera sér ekki of miklar væntingar. Það er ekki langt síðan við horfðum á Manchester City spila seinni undan- úrslitaleikinn gegn real Madrid í Meistaradeildinni og ekki einu sinni að reyna að vinna ef þannig má að orði komast. Þeir gáfu sig ekki alla í þetta þrátt fyrir að eiga möguleika á að komast í úrslitaleik Meistara- deildarinnar,“ segir keegan og bætir við: „eina leiðin til að vinna bestu liðin er að mæta þeim í fótbolta. Það þýðir ekkert að láta lið eins og Manchester united eða eitthvert stórlið á evrópumótinu, ef við tölum um ísland, vera með boltann 80 prósent af leiknum. ísland vinn- ur engan leik ef það er bara tuttugu prósent með boltann nema með ótrúlegri heppni. Þegar rétti tíminn kemur í leiknum verður liðið að þora að sækja. Það þýðir ekkert bara að vona að hitt liðið eigi slæman dag og skjóti alltaf í stöngina.“ Sögubækurnar Spurður hvað strákarnir okkar þurfi að passa þegar þeir verða loks komnir á eM segir keegan: „Ég hlakka til að sjá hvernig þeir koma til leiks og og bera sig að fyrstu 10-20 mínúturnar. Það verður fróð- legt að sjá hvort þeir verða smeykir eða tilbúnir að mæta jafnsterkum mótherja og Portúgal. ísland þarf samt ekkert að óttast. liðið hefur nú þegar afrekað mikið.“ Hann vill samt ekki að íslensku strákarnir sætti sig bara við það eitt að komast á evrópumótið. „leik- mennirnir mega samt ekki mæta með það hugarfar að nú sé þetta komið fyrst liðið komst á eM. Ég vil að þeir hugsi um að skrifa annan kafla í sögubækurnar og komast upp úr riðlinum,“ segir keegan og heldur áfram: „Þegar ég horfi á liðið og leik- mennina sem eru í því er ég viss um að það mun gefa öllum liðum leik. Þannig er bara íslenski andinn og í raun allra á Norðurlöndum. við höfum séð það með íslenska leik- menn og aðra frá Norðurlöndunum sem koma til englands. Þeir leggja mikið á sig til að ná fram því besta í sjálfum sér. ef íslenska liðið hugsar þannig og spilar þannig þá verður erfitt að vinna það. íslensku strákarnir þurfa að hlaupa og berjast og vera í and- litinu á mótherjanum allan leikinn eins og það hefur alltaf gert. Svo, þegar tækifæri gefst, verður liðið að þora að spila boltanum. við vitum alveg að íslenska liðið getur það enda komst það á eM í gegnum mjög erfiðan riðil,“ segir kevin keegan. tomas@365.is Nú þarf að skrifa næsta kafla Kevin Keegan, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari Englands, segir það ekki koma sér mikið á óvart að Ísland hafi komist á Evrópumótið í fótbolta. Nú þurfi strákarnir að þora að komast lengra. Það kemur í raun ekki svo mikið á óvart að Ísland sé komið á Evrópumótið ef maður horfir á heildar- myndina. Kevin Keegan Nýjast pepsi-deild kvenna í fótbolta Stjarnan - Þór/KA 4-0 1-0 Harpa Þorsteinsdóttir (25.), 2-0 Harpa (55.), 3-0 Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir (67.), 4-0 Harpa (89.). Breiðablik - KR 4-1 1-0 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (25.), 2-0 Fanndís Friðriksdóttir (50.), 3-0 Rakel Hönnudóttir (52.), 4-0 Andrea (63.), 4-1 Ey- dís Lilja Eysteinsdóttir (70.). ÍBV - Selfoss 0-1 0-1 Lauren Hughes (21.). Fylkir - Valur 2-2 0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir (16.), 1-1 Ruth Þórðar Þórðardóttir (68.), 2-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (82.), 2-2 Lilja Dögg Valþórs- dóttir (86.). olís-deild karla, úrslit: Afturelding - Haukar 25-28 Afturelding: Árni Bragi Eyjólfsson 6, Mikk Pinnonen 5, Jóhann Jóhannsson 3, Jóhann Gunnar Einarsson 3. Haukar: Janus Daði Smárason 8, Jón Þor- björn Jóhannsson 6, Hákon Daði Styrmis- son 4. Staðan í einvíginu er 1-1. Efst Leicester 80 Tottenham 70 Arsenal 68 Man. City 65 Man. Utd 63 neðst Bournem. 42 Sunderland 38 Newcastle 34 Norwich 34 Aston Villa 17 Enska úrvalsdeildin liverpool - Chelsea 1-1 0-1 Eden Hazard (32.), 1-1 Christian Benteke (90+2). Sunderland - Everton 3-0 1-0 Patrick van Aanholt (38.), 2-0 Lamine Koné (42.), 3-0 Koné (55.). norwich - Watford 4-2 0-1 Troy Deeney (11.), 1-1 Nathan Redmond (15.), 2-1 Dieumerci Mbokani (18.), 3-1 Craig Cathcart, sjálfsmark (37.), 3-2 Odion Ighalo (51.), 4-2 Mbokani (57.). 1 2 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 6 8 -3 D 7 8 1 9 6 8 -3 C 3 C 1 9 6 8 -3 B 0 0 1 9 6 8 -3 9 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.