Fréttablaðið - 12.05.2016, Side 24

Fréttablaðið - 12.05.2016, Side 24
Dainius Bendikas var nýlega ráðinn í stöðu aðjúnkts við náms- braut í fatahönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Dainius, sem hefur fjöl- breytta reynslu á sviði hönnunar, útskrifaðist frá Vilnius Art Aca- demy í Litháen árið 2011. Meðan á námi hans stóð kom hann til Ís- lands sem skiptinemi og sneri hann aftur hingað til lands að út- skrift lokinni. Undanfarin ár hefur Dainius starfað í hönnunarteymi JÖR auk þess sem hann hefur líka hannað búninga fyrir hljómsveit- ina Of Monsters and Men og rokk- óperu í Litháen. Á meðan hann var í námi í heimalandi sínu segist hann hafa sótt mestan innblástur til náttúr- unnar. „Ég eyddi heilu sumrunum úti í náttúrunni þar sem ég þróaði og hugleiddi hugmyndir mínar. Eftir þrjú annasöm og afkasta- mikil ár þurfti ég að breyta til og finna um leið nýtt landslag til að veita mér innblástur. Þannig varð Ísland fyrir valinu.“ Byrjaði ungur Áhugi Dainius á hönnun og fatn- aði byrjaði snemma að sögn hans. Faðir hans er verkfræðingur og uppfinningamaður og móðir hans er klæðskeri. „Foreldrar mínir höfðu bæði mikil áhrif á mig. Þau stofnuðu fjölskyldufyrirtæki sem framleiddi föt og ég lærði af þeim, samhliða öðrum leik í æsku minni. Átta ára gamall hannaði ég fyrsta prjónamynstrið mitt á risastórri tölvustýrðri prjónavél. Næst hann- aði ég æfingaföt fyrir sjálfan mig þannig að ég byrjaði snemma. Ég var þó ekki beint heillaður af hönn- un á þessum tíma heldur fannst fyrst og fremst gaman að skapa eitthvað sjálfur.“ Skórnir heilla Honum finnst íslenskir karlmenn almennt klæðast vel en segir mestu máli skipta að velja föt sem passa við persónuleika hvers og eins. „Ég kann því vel að meta þá karlmenn sem eru óhræddir við að stunda tilraunastarfsemi í klæða- burði til þess að finna sinn eigin stíl og karakter.“ Uppáhaldsflík- ur hans eru skór en sjálfur hann- aði hann nokkrar skólínur fyrir fá- einum árum. „Ég á nokkur pör sem ég hef gengið til húðar og því hóf ég nýlega aftur að hanna skólínur í frítíma mínum. Það er eitthvað svo heillandi við skó og það verður gaman að sjá hvað kemur úr þess- ari vinnu minni.“ Ýmsir fylgihlutir eru í upp- áhaldi hjá honum, þá helst hring- ar og handtöskur. „Yfirleitt ber ég hringa eftir hæfileikaríkan skart- gripahönnuð sem heitir Benas Staskauskasen en einn hringa hans má m.a. sjá á plötuumslagi nýjustu plötu Bjarkar. Ég á einnig fimm handtöskur sem ég nota mikið enda eru þær mjög praktískar.“ ný lína framundan Þessar vikurnar er hann að leggja lokahönd á fatalínu í sam- starfi við fyrirtæki sem sérhæf- ir sig í útivistarfatnaði. „Vinn- an hófst fyrir næstum ári og er nú loks að ljúka. Það er töluverð áskorun að hanna innan ákveðins ramma en um leið að vera trúr sjálfum sér og eigin hugmynd- um. Í línunni notumst við við nýja nálgun að útivistarfatnaði, þar sem konsept og hönnun eru í fyrirrúmi. Ég var svo heppinn að fá fullt frelsi þegar kom að loka- útkomunni, markaðsherferðinni, umbúðum og fleira tengt fatalín- unni en hún ætti að koma á mark- að í lok sumars.“ Hönnun Dainius Bendikas má finna á Facebook (Dainius Bendi- kas) og á Instagram (dainius_ bendikas). Dainius er óhræddur við tilraunastarfsemi þegar kemur að eigin hönnun. Allur fatnaður á myndunum er hönnun Dainius, fyrir utan skóna á forsíðunni. MYNDIR/STEFÁN fólk er kynningarBlað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Lógó með adressulínu Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt) Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin BelladonnaStærðir 38-58 Alltaf eitthvað nýtt og spennandi Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 Vertu einstök – eins og þú ert stærðir 38-52 my styleStærðir 38-52 Netverslun á tiskuhus.is Flott föt, fyrir flottar konur ↣ Ég kann því vel að meta þá karlmenn sem eru óhræddir við að stunda tilraunastarfsemi í klæðaburði til þess að finna sinn eigin stíl og karakter. Dainius Bendikas 1 2 . m a í 2 0 1 6 F I m m T U D a G U R2 F ó l k ∙ k y n n I n G a R b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a R b l a ð ∙ T í s k a 1 2 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 6 8 -3 8 8 8 1 9 6 8 -3 7 4 C 1 9 6 8 -3 6 1 0 1 9 6 8 -3 4 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.