Fréttablaðið - 12.05.2016, Page 24
Dainius Bendikas var nýlega
ráðinn í stöðu aðjúnkts við náms-
braut í fatahönnun við hönnunar-
og arkitektúrdeild Listaháskóla
Íslands. Dainius, sem hefur fjöl-
breytta reynslu á sviði hönnunar,
útskrifaðist frá Vilnius Art Aca-
demy í Litháen árið 2011. Meðan
á námi hans stóð kom hann til Ís-
lands sem skiptinemi og sneri
hann aftur hingað til lands að út-
skrift lokinni. Undanfarin ár hefur
Dainius starfað í hönnunarteymi
JÖR auk þess sem hann hefur líka
hannað búninga fyrir hljómsveit-
ina Of Monsters and Men og rokk-
óperu í Litháen.
Á meðan hann var í námi í
heimalandi sínu segist hann hafa
sótt mestan innblástur til náttúr-
unnar. „Ég eyddi heilu sumrunum
úti í náttúrunni þar sem ég þróaði
og hugleiddi hugmyndir mínar.
Eftir þrjú annasöm og afkasta-
mikil ár þurfti ég að breyta til og
finna um leið nýtt landslag til að
veita mér innblástur. Þannig varð
Ísland fyrir valinu.“
Byrjaði ungur
Áhugi Dainius á hönnun og fatn-
aði byrjaði snemma að sögn hans.
Faðir hans er verkfræðingur og
uppfinningamaður og móðir hans
er klæðskeri. „Foreldrar mínir
höfðu bæði mikil áhrif á mig. Þau
stofnuðu fjölskyldufyrirtæki sem
framleiddi föt og ég lærði af þeim,
samhliða öðrum leik í æsku minni.
Átta ára gamall hannaði ég fyrsta
prjónamynstrið mitt á risastórri
tölvustýrðri prjónavél. Næst hann-
aði ég æfingaföt fyrir sjálfan mig
þannig að ég byrjaði snemma. Ég
var þó ekki beint heillaður af hönn-
un á þessum tíma heldur fannst
fyrst og fremst gaman að skapa
eitthvað sjálfur.“
Skórnir heilla
Honum finnst íslenskir karlmenn
almennt klæðast vel en segir
mestu máli skipta að velja föt sem
passa við persónuleika hvers og
eins. „Ég kann því vel að meta þá
karlmenn sem eru óhræddir við að
stunda tilraunastarfsemi í klæða-
burði til þess að finna sinn eigin
stíl og karakter.“ Uppáhaldsflík-
ur hans eru skór en sjálfur hann-
aði hann nokkrar skólínur fyrir fá-
einum árum. „Ég á nokkur pör sem
ég hef gengið til húðar og því hóf
ég nýlega aftur að hanna skólínur
í frítíma mínum. Það er eitthvað
svo heillandi við skó og það verður
gaman að sjá hvað kemur úr þess-
ari vinnu minni.“
Ýmsir fylgihlutir eru í upp-
áhaldi hjá honum, þá helst hring-
ar og handtöskur. „Yfirleitt ber ég
hringa eftir hæfileikaríkan skart-
gripahönnuð sem heitir Benas
Staskauskasen en einn hringa hans
má m.a. sjá á plötuumslagi nýjustu
plötu Bjarkar. Ég á einnig fimm
handtöskur sem ég nota mikið enda
eru þær mjög praktískar.“
ný lína framundan
Þessar vikurnar er hann að
leggja lokahönd á fatalínu í sam-
starfi við fyrirtæki sem sérhæf-
ir sig í útivistarfatnaði. „Vinn-
an hófst fyrir næstum ári og er
nú loks að ljúka. Það er töluverð
áskorun að hanna innan ákveðins
ramma en um leið að vera trúr
sjálfum sér og eigin hugmynd-
um. Í línunni notumst við við
nýja nálgun að útivistarfatnaði,
þar sem konsept og hönnun eru í
fyrirrúmi. Ég var svo heppinn að
fá fullt frelsi þegar kom að loka-
útkomunni, markaðsherferðinni,
umbúðum og fleira tengt fatalín-
unni en hún ætti að koma á mark-
að í lok sumars.“
Hönnun Dainius Bendikas má
finna á Facebook (Dainius Bendi-
kas) og á Instagram (dainius_
bendikas).
Dainius er óhræddur við tilraunastarfsemi þegar kemur að eigin hönnun.
Allur fatnaður á myndunum er hönnun Dainius, fyrir utan skóna á forsíðunni. MYNDIR/STEFÁN
fólk er kynningarBlað sem
býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í
blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn
efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir,
vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447,
Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage,
johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Lógó með adressulínu
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt)
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin BelladonnaStærðir 38-58
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Netverslun á tiskuhus.is
Flott föt, fyrir flottar konur
↣
Ég kann því vel að
meta þá karlmenn
sem eru óhræddir við að
stunda tilraunastarfsemi í
klæðaburði til þess að
finna sinn eigin stíl og
karakter.
Dainius Bendikas
1 2 . m a í 2 0 1 6 F I m m T U D a G U R2 F ó l k ∙ k y n n I n G a R b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a R b l a ð ∙ T í s k a
1
2
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
6
8
-3
8
8
8
1
9
6
8
-3
7
4
C
1
9
6
8
-3
6
1
0
1
9
6
8
-3
4
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K