Fréttablaðið - 12.05.2016, Page 42
Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildarmynda fer fram í tíunda sinn á Patreksfirði um
helgina. Hátíðin er tileinkuð alls
konar heimildarmyndum og á dag-
skránni eru bæði örstuttar myndir
sem og heimildarmyndir í fullri
lengd og eru efnistökin fjölbreytt.
„Í ár erum við að frumsýna þrett-
án íslenskar heimildarmyndir og
umfjöllunarefnin eru mjög fjöl-
breytt og myndirnar af öllum
stærðum og gerðum. Frá átta mín-
útum og upp í tveggja tíma myndir,“
segir Helga Rakel Rafnsdóttir, ein af
aðstandendum hátíðarinnar.
Heiðursgestur hátíðarinnar í ár
er spænski leikstjórinn Jose Luis
Guerin, sem er einna þekktastur
fyrir myndina En Construcción sem
vann til fjölda verðlauna á Spáni en
myndin verður sýnd á Skjaldborg í
ár. Einnig var mynd hans The City
of Sylvia frá árinu 2007 frumsýnd í
aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar
í Feneyjum.
Ókeypis er inn á allar heimildar-
myndir sem keppa um áhorfenda-
verðlaunin Einarinn en gestir eiga
möguleika á að kaupa armband,
sem gildir í sjávarréttaveislu, plokk-
fiskboð kvenfélagsins, dansleik og
í sundlaugina, á 4.000 krónur í for-
sölu eða 5.000 krónur á staðnum.
Helga Rakel mælir svo sannarlega
með að áhugasamir mæti í plokk-
fiskinn og sjávarréttaveisluna sem
eru fastir hlutar dagskrárinnar.
„Þetta er mikil stemningshátíð.
Það er ekki nóg að hafa bara góðar
heimildarmyndir því ég er ekki viss
um að fólk myndi nenna að fara alla
þessa leið nema einmitt líka fyrir
þessa góðu stemningu,“ segir hún
glöð í bragði og auðheyrt er að hún
hlakkar til helgarinnar.
„Svo erum við líka alltaf með
lið sem heitir Verk í vinnslu og þá
kemur fólk og kynnir það sem það
er að gera, sýnir aðeins úr mynd-
unum sínum og talar um þær.
Þessar myndir koma líka oft inn á
Skjaldborg seinna og þá eru margir
fastagestir kannski búnir að vera
að fylgjast með verkunum í lengri
tíma,“ útskýrir hún.
„Kolla Sibb sem er viðfangsefni
einnar myndarinnar á hátíðinni
kemur til okkar. Hún býr á Selfossi
og er trúbador og hún mætir með
gítarinn,“ segir Helga og bætir við
að einnig verði tónleikar í heitum
potti auk annarra fastra liða á borð
við limbókeppni og skrúðgöngu á
lokakvöldi hátíðarinnar á sunnudag.
Áhorfendaverðlaunin Einar eru
nefnd eftir smíðakennaranum í
bænum, Einari Skarphéðinssyni, en
hann sér um að smíða verðlaunagrip
hvers árs og leggur mikla vinnu í að
velja efniviðinn í hann. Í fyrra var
það myndin Hvað er svona merkilegt
við það? eftir Höllu Kristínu Einars-
dóttur sem hreppti hnossið.
Hátíðin fer líkt og áður sagði fram
á Patreksfirði og hefst annað kvöld.
Allar nánari upplýsingar er hægt að
nálgast á vefsíðunni skjaldborg.is.
gydaloa@frettabladid.is
Plokkfiskur, limbó og Einarinn
á heimildarmyndahátíð
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg fer fram í tíunda sinn um helgina. Þrettán ís-
lenskar heimildarmyndir verða frumsýndar og heiðursgestur er Jose Luis Guerin.
Frumsýningar
Keanu
Gamanmynd
Aðalhlutverk: Keegan-Michael
Key, Jordan Peele, Will Forte, Luis
Guzman
Frumsýnd: 18. maí
IMDb 7,1/10
Rotten Tomatoes 77%
eddie tHe eaGLe
Ævisöguleg drama- og
gamanmynd
Aðalhlutverk: Taron Egerton,
Hugh Jackman, Tom Costello, Jo
Hartley
Frumsýnd: 13. maí
IMDb 7,6/10
Rotten Tomatoes 79%
X-Men: apocaLypSe
Spennu- og ævintýramynd
Aðalhlutverk: James McAvoy,
Michael Fassbender, Jennifer
Lawrence, Nicholas Hoult,
Oscar Isaac og Rose Byrne
Frumsýnd: 18. maí
IMDb 8,3/10
Helga Rakel Rafnsdóttir er einn af aðstandendum hátíðarinnar sem hún segir mikla stemningshátíð. FRéttablaðið/SteFán
Þetta er MiKiL
SteMninGSHátíð.
Það er eKKi nóG að Hafa
bara Góðar HeiMiLdar-
Myndir Því éG er eKKi viSS
uM að fóLK Myndi nenna að
fara aLLa ÞeSSa Leið neMa
einMitt LíKa fyrir ÞeSSa
Góðu SteMninGu.
1 2 . m a í 2 0 1 6 F I m m T U D a G U R30 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a ð I ð
bíó
1
2
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
6
7
-F
D
4
8
1
9
6
7
-F
C
0
C
1
9
6
7
-F
A
D
0
1
9
6
7
-F
9
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K