Feykir


Feykir - 29.10.1997, Blaðsíða 5

Feykir - 29.10.1997, Blaðsíða 5
37/1997 FEYKIR 5 liugleitt 21 Og bíll r. 4.200" | livað Hótel Loftleiðir og Hótel Esja bjóða umfram onmtr bótel? • Brottfararskírteini í millilandaflug daginn fyrir brottför • Vildarpunktar • Fríar ferðir í Kringluna • Innisundlaug og ein fullkomnasta líkamsrækt Norðurlanda, Planet Pulse • 011 herbergi búin nýjum fullkomnum hótelsjónvörpum • Fjólbreytt herbergjaúrval • SérhannaðarSkáldastofur • Saga Class stofur Víðsýnisstofur • Funda- og ráðstefnusalir í sérflokki Allt þetta og miklu meira Verð frá 3.900 kr.‘ „Vonandi fæ ég þann styrk sem þarf tíl að byggja upp aftur“ segir Hallbjörn Hjartarson eftir brunann í síðustu viku Grænt númer 80 0 6322, sameiginlegur bókunarsími 50 50162 Nánari upplýsingar á síðu 788 í textavarpi Rikissjónvarpsins 'Nóttin í eins manns herberei - "Verð á mann í tveggja manna herbergi glæsibifreið frá Bílaleigu Flugleiða Innif. 100 km akstur, trygging og vsk. „Nú er bara að vera þægur strákur við alföður sinn og hlýða því sem framtíðin ber í skauti. Ég finn hlýan hug fólks og góðar hugsanir þess reynast vonandi mér sá styrkur sem ég þarf á að halda til að byggja þetta upp aftur”, sagði Hall- bjöm Hjartarsson kántríkóngur á Skaga- strönd eftir að hafa jafnað sig á mesta áfallinu þegar Kántríbær brann í síðustu viku. Hallbjöm segist ekki ætla að gefast upp, þó vænta megi þess að hann verði eitthvað beygður og ólíkur sjálfum sér á næstunni, en hann muni síðan rísa upp sterkur. Þjóðin hefur þegar brugðist við og ekki er ólíklegt að Hallbjöm fái ein- hveija aðstoð við að byggja upp Kántrí- bæ. Hvort það dugar er ekki gott að segja, en einungis tjónið vegna tækja í útvarpsstöðinni er um 5 milljónir króna. I Þjóðarsál Ríkisútvarpsins hringdi inn fólk strax daginn eftir sem ánafnaði Hallbimi þónokkrum peningum til upp- byggingarstarfsins. Óvíst er að hve miklu leyti tryggingar ná að bæta það tjón sem varð í brunanum. Það var um miðnættið aðfaranótt síðasta mið- vikudags sem vegfarandi á Skagströnd veitti því athygli að reyk lagði út um glugga Kántríbæjar. Lét hann Hallbjöm, sem býr gegnt Kántrýbæ, þegar vita. Hallbjöm tók slökkvitæki og gerði at- lögu inn í brennandi húsið en varð frá að hverfa vegna reyks. Niðurbrotinn fylgdist hann síðan með því þegar slökkviliðið barðist við eldinn og tókst að slökkva hann eftir stutta og snarpa viðureign. Hallbjöm segir að sér hefði ekki getað liðið verr. Það hefði verið eins og eitthvert bama hans væri inni í húsinu, enda var þama allt sem hann hefur verið að byggja upp. Utvarpsstöðin á efri hæð hússins er gjörónýt ásamt miklu og fágætu plötusafni. Stutta stund fannst Hallbimi allt vera búið og best hefði verið að hann sjálfur væri inni í eldinum. Hann var heldur ekki sáttur hvemig staðið var að slökkvistarfinu. Reyndi að koma leiðbeiningum til slökkviliðsmannanna, fannst þeir ekki beina slöngunum í rétta átt, þar sem eldsupptökin vom líkleg, en þau reyndust uppi í perustæði. Stjómendur slökkvistarfsins hafa svarað þessari gagnrýni og telja að að því hafi IR HOTELS verið staðið eins og frekast var unnt. Hallbjöm telur að almættið hafi þama verið að grípa í taumana, en er samt ekki reiður guði sínum. „Það er alveg ömggt að almættið ætlar mér eitthvað meira. Það em hreinar línur, en auð- vitað er harkalegt að taka svona í mann, en ég hef trú á því að það sé einhver tilgangur með þessu”, segir Hallbjöm. Nýlega kom út ný godspellplata frá Hallbimi, Kántrý 8. Fólki skal bent á að kjörin leið til að styrkja Hallbjöm í þessum erfiðleikum hans, er að kaupa þá plötu eða eldri plötur Kántrí- kóngsins. Hallbjörn Hjartarson neitar að gefast upp. Auglýsing í Feyki ber árangur

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.