Feykir - 29.10.1997, Qupperneq 6
6 FEYKIR 37/1997
Vatnsdæla
Teikning
Pálmi Jónsson
237. Þeir Föstólfur kváðu vel á komið að
finna Úlfhéðin „því að þeir bræður drápu mann
okkam í sumar og skal ríða eftir þeim.”
Eigi mun eg eftir ríða”, kvað Þorfmnur. Og
svo var.
Síðan riðu þeir bræður eftir í ákefð. Þetta sér
Þórólfur leikgoði og mælti hann: „Ríðum undan
hart. Hér fara þeir bræður eftir okkur.”
, ,Nei”, kvað Úlfhéðinn, „það geri eg eigi því
að þeir kalla mig þá renna.”
238. Þórólfur hleypti út í ána en þeir bræður
239. Síðan andaðist Úlfhéðinn en Húnröður
lét ólíklega við sættinni og bjó málið ti!
Alþingis. Þorfmnur bauð sætt og fébætur en
Húnröður kvaðst eigi vilja nema sektir þeirra og
svo varð og reið við það af þingi. Þeir bræður
gerðu virki mikið í Holti á Kólkumýium og
varð Húnröði torvelt að sækja þá.
240. Skúmur hét lausingi einn. Hann hafði
unnu á Úlfhéðni og lá hann þar eftir. Síðan riðu
þeir bræður aftur og sögðu Þorfmni tíðindin.
Hann kvað ómaklega gert við góðan dreng og
fór hann heim í Vatnsdal.
Úlfhéðinn var særður til ólífis.
Húnröður fór eftir honum, bróðir hans, og
flutti hann heim og bað hann Húnröð bróður
sinn sættast á mál þessi eftir sig og kvað eigi
hefna rnundu auðið verða „því að eg minnist nú
á ferðina hina fyrri og veit eg þann engan
sóttdauðan orðið hafa er í þeini ferð voiu.”
aflað fjár og orðinn auðigur. Húnröður eyddi
fyrir honum og fór hann utan og kom til Noregs
og fór norður í Þrándheim. Hann fékk þar stórfé
og dvaldist þar, kom auðigur í annan tíma.
Húnröður eyddi öllum peningum sínum og svo
þeim er Skúmur hafði áttt svo að hann varð
nálega félaus. Hann fór á fund Þorkels
Vatndælagoða og sagði honum sín vandræði.
Tindastóll í úrslit
Eggjabikarsins
Það gekk mikið á í Grindavík
á sunnudagskvöldið þegar
heimamenn börðust fyrir lífi
sínu í Eggjabikarnum gegn
frísku liði Tindastóls. Á bratt-
ann var að sækja fyrir heima-
menn sem töpuðu fyrri Ieikn-
um á Sauðárkróki með tutt-
ugu stiga mun. Þegar leiktím-
inn var úti var staðan 97:77
fyrir Grindavík og því þurfti
að framlengja leikinn enda
samanlögð stigatala jöfn.
Grindavík hafði sigur að lok-
um 106:100 en það dugði
skammt þar sem að Tindastóll
vann samanlegt með 14 stiga
mun.
Torrey John lék vel í Grinda-
vík sem og í fyrri leiknum á
Króknum. Hann skoraði 38 stig
fyrirTindastól og Amar Kárason
17. Hjá Grindavík skomðu
Danel Wilson 40 stig og Helgi
Jónas Guðfinnsson 25 stig.
Tindastólsmenn höfðu algjöra
yfirburði í fyrri leiknum. Náðu
strax í fyrri hálfleiknum 30 stiga
fomstu sem Grindvíkingum
gekk fremur erfiðlega að vinna á.
Lokatölur urðu 88:68. Torrey
John átti stjömuleik fyrir Tinda-
stól, skoraði 27 stig í fyrri hálf-
leiknum og alls 33 stig í leiknum,
Jose Maria gerði 18 stig og þeir
Sverrir Þór Sverrisson og Amar
Kárason 13 hvor.
Auk Tindastóls komust í und-
anúrslitin Keflvíkingar, Njarð-
víkingar og KR-ingar. Þau fara
fram í Reykjavík um miðjan
nóvember. Þar mætir Tindastóll
Njarvík og KR Keflavík. Úrslit
keppninnar verða leidd til lykta
um þessa sömu helgi með úr-
slitaleik sunnudaginn 16. nóv-
ember.
Gísli og Ólafiir þjálfa
meistaraflokkinn saman
Þjálfaramál Tindastóls í
knattspymunni fengu skjótar
lyktir fyrir helgina. Samkomu-
lag náðist við þá Gísla Sig-
urðsson og Ólaf Adolfsson um
að þeir sjái um þjálfun
meistaraflokks í sameiningu. Þá
mun Alfreð Guðmundsson
annast þjálfun meistaraflokks
kvenna og gengið hefur verið
frá ráðningu þjálfara fyrir alla
flokkaTindastóls í fótboltanum.
Ómar Bragi Stefánsson for-
maður knattspymudeildar segir
mikinn hug í knattspymufólki
nú og það sé ákaflega gott að
vera búinn að ganga frá þjálf-
aramálunum fyrir alla flokka.
Það sé mikill hugur í þeim Gísla
og Ólafi að gera góða hluti í
sameiningu með meistaraflokk-
inn og stefnt sé að því að leik-
mannahópur Tindastóls verði
sterkur næsta sumar. Þó séu
mestar líkur á að litlar breyt-
ingar verði á hópnum milli ára.
SveiTir Þór og Anna
Lea best í fótboltanum
Uppskemhátíð knattspymu-
deildar Tindastóls fór fram um
helginga. Á laugardag héldu
meistaraflokkar og unglinga-
flokkar karla og kvenna upp-
skeruhátíð sína í félagsheimilinu
Ljósheimum. Á sunnudag komu
yngri flokkamir saman í íþrótta-
húsinu og þar fengu allir við-
urkenningu fyrir þátttökuna.
Að venju vom skemmtíatriði
og pistlar, þar sem litið var yfir
tímabilið, fyrirferðarmiklir á
uppskemhátíð eldri flokkanna.
Meistaraflokkar karla og kvenna
náðu mjög góðum árangri á
liðnu sumri, sem og 2 flokkur
karla, en ekki var sent lið til
keppni í 2. flokki kvenna. Mfl.
karla vann sig upp um deild og
kvennaliðið var hársbreidd frá
því að komast í úrslit.
Hápunktur kvöldins var val
bestu leikmanna flokkanna. Sverr-
ir Þór Sverrisson var valinn besti
leikmaður meistaraflokks karla,
Anna Lea Gestsdóttir hjá mfl.
kvenna, Sólborg Hermundsdóttir
í 2 flokki kvenna og Ámi Geir
Valgeirsson í 2. flokki karla.
Efnilegustu leikmennimir
þykja Hilmar Hilmarsson í
meistaraflokki karla, Sólborg
Hermundsdóttir í meistaraflokki
kvenna og Atli Leví í 2. flokki
karla. Bestu ástundun sýndu
Viðar Einarsson í meistaraflokki
karla, Aníta Jónasdóttir í mfl.
kvenna og Rúnar Guðlaugsson í
2. flokki karla.
Markakóngar meistaraflokk-
anna vom Jóhann Steinarsson og
Sólborg Hermundsdóttír. Adidas-
bikarinn, sem veittur er þeim
aðila sem veitir knattspymu-
deildinni hvað dyggasta stuðn-
inginn, kom að þessu sinni í hlut
Fiskiðjunnar Skagfirðings hf.
Verðlaunahafar á uppskeruhátíðinni: Valgeir Leví með viðurkenningar sem Atli bróðir
hans hlaut, Aníta Jónasdóttir, Anna Lea Gestsdóttir, Jóhann Steinarsson, Sverrir Þór
Sverrisson og Sólborg Hermundsdóttir.